be Rauðhærði útlendingurinn

online

{Rauðhærði útlendingurinn } spacer
spacer

This page is powered by Blogger. Is yours?

spacer
powered by blogger

Íslendingar

Ásdís frænka
Bendt
Danni
Disco Dóri
Dísa skvísa
DJ Diljá
Eiríkur
Guðjón
Gummi Jóh
Gunna frænka
HÁS
Hlynur
Ívar
Jóinn
Kolla
Kreisígörl
Lára babe
Lukka
Maj-Britt
Ziggy
Vigdís
Örn Ingi og Elín

Danir

Ásta
Bryndís
Davíð
Elva
Freyja
Gummi
Gunnhildur
Gunni
Harpa og Elvar
Heiðdís
Helena
Hjördís
Katla
Kolla
Margrét Lára
Ragnheiður
Sigurrós
Sólveig

Daglegir linkar fyrir mig

Skólinn minn
FÍLÓ
FÍLD
FADL
medicalstudent.dk
doctor.is
Odense


{fimmtudagur, desember 29, 2005}

 
Jólasnjór!!

Hér snjóar og snjóar og mikil hálka á götunum. Snjórinn og hálkan er ad leika fólk grátt og thegar ég var ad hjóla hingad upp á spítala ádan thá sá ég mann liggjandi grafkyrr ofaná hjólinu sínu og gamall madur med staf stód yfir honum og hrópadi á hjálp. Ég stökk af hjólinu á ferd (eda thad hefdi verid töff allavega) og fór í huganum yfir endurlífgunarthrepin. Allt á fullu í hausnum á mér og adrenalínflædid í hámarki. Ég hljóp ad manninum og lyfti upp hettunni til ad sjá hvort madurinn væri med medvitund eda ekki. Ég vissi ekki vid hverju átti ad búast og var skíthrædd. Thegar ég lyfti hettunni, lyfti madurinn höfdinu og horfdi á mig med syndandi augum. Hann var blindfullur og nennti ekki ad reisa sig vid eda bara gat thad ekki. Thad endadi med ad ég bogradist vid ad reisa hann vid med hjálp frá körlum sem höfdu komid ad á eftir og madurinn stód brosandi og sagdi "Tak, skal I ha´" Úff, hvad hann hafdi gert mig hrædda!!! Thetta var senst hetjusagan mín.....:p

Jólin voru yndisleg. Ég hélt jólin med Bryndísi og Gumma og fjölskyldu hennar Bryndísar. Vid höfdum thad rosa gott og átum og spiludum Popppunkt eda po 3xp unkt eins og litla systir Bryndísar kalladi spilid. Vid Brynjar tókum hina í nefid en ég átti kannski ekki alveg heidurinn af thví. Hann vissi allt um Bítlana og ég allt um Britney Spears. Thannig unnum vid thetta sko...

jæja, ég er varla búin ad tala vid fólk í marga daga og er ad mygla yfir bókunum. Ég hlakka til thegar ég fæ frí.

Fortsæt god jul
kvedja Sara í snjónum

posted by benony 12:36:00 e.h.


{fimmtudagur, desember 22, 2005}

 
Komst loks á netid...

Bryndís og Gummi voru svo yndisleg ad bjóda mér ad vera á jólunum hjá sér thar sem frændi minn og family fóru til Íslands. Thad verdur pottthétt gaman hjá okkur og hátídlegt. Ég á ad sjá um möndlugjöfina og thad voru miklar pælingar í sambandi vid hana. :)

Ég fékk stóran pakka frá Íslandi í gær frá múttu minni. Hann innihélt 3 gjafir til mín og kíló af Nóa konfekti. Ég get aldeilis hygget mig yfir jólin.
Kellan sem kom med pakkann hefur örugglega haldid ad ég væri eitthvad kreisy thar sem ég trúdi henni ekki fyrst. "JEG HAR EN PAKKE TIL DIG"!! hrópadi hún í dyrasímann. Ég var alveg fullviss um ad Margrét væri nidri ad plata mig eitthvad og var ekkert ad svara. Svo sagdi hún aftur "JEG HAR EN PAKKE FRA ISLAND TIL DIG!!!!" thá trúdi ég henni thví hún var svo rosalega dönsk eitthvad og hljóp nidur tröppurnar á fleygiferd og reif af henni pakkann. Mikid rosalega var gaman ad fá svona pakka :)

Ég, Elva og Leen vorum ad framleggja mól D verkefnid okkar um enzymid TPMT á thridjudaginn. Ég sagdi brandara í framleggingunni og gaurinn sem var ad dæma okkur hló. Ég er samt ekki viss um hvort hann hló ad brandaranum eda hvort hann var ad hlægja ad mér thar sem ég stód fyrir ljósinu á myndvarpanum svo ad engin gat séd hvad stód á fínu glærunni sem ég hafdi útbúid. Honum leist vel á verkefnid og hafdi ekkert út á thad ad setja. Vid fengum thar med Bestået. Nú á ég BARA tvö próf eftir.

Er svo ad fara til London í janúar. Keypti mida á krónu med Ryanair. Ætla ad gellast og upplifa eins mikid af borginni og ég get. Eitthvad ad hlakka til

Ad lokum...gledileg jól allir saman :)

posted by benony 3:28:00 e.h.


{föstudagur, desember 16, 2005}

 
Heima að lesa...

Sit núna bara heima hjá mér alla daga að lesa sem er smá einmanalegt en svona er bara próflestur. Ég eldaði mér hakk og pasta í kvöld og Margrét kom að borða með mér. Ég borða svo oft hjá henni því hún er Martha Stuart for real, og nú reyndi ég að fara í hlutverkið. Heppnaðist bara ágætlega held ég, eða hvað Margrét?

Ég var á siðfræðinámskeiði fyrr í vikunni sem var í tvo daga. Mér fannst reyndar rosalega gaman á þessu námskeiði en samt smá stressandi til að byrja með. Okkur var skipt í hópa þar sem við áttum að diskutera "Ikke göre skade princip". Svo drógum við númer í hópnum og það lenti á mér og einni sænskri stelpu að halda fyrirlestur um niðurstöður okkar fyrir framan allan hópinn, svona 50 manns. Áður en ég steig í pontu var ég gjörsamlega nagandi neglurnar niður í kviku næstum, það var ekki fyrr en ein norsk stelpa sem sat við hliðina á mér sló mig að ég hætti að naga. Gekk ágætlega að flytja nema ég byrja alltaf smá að stama þegar ég tala dönsku undir pressu. (kjötpressu)
Thegar fyrirlestrunum var lokið fórum við aftur í hópana þar sem við áttum að leika leikrit fyrir hvert annað. Leiðbeinandinn okkar var eldri geðlæknir sem heyrði rosalega illa. Átti að vera með heyrnartæki en notaði ekki. Hann gekk upp að mér og Leen og spurði okkur hvort við vildum ekki taka að okkur hlutverk. Þar sem ég var nýbúin að halda fyrirlestur fannst mér að einhver annar ætti að taka að sér leikritin og sagði því "IGEN!!!". En kallinn heyrði illa og sagði "Det vil hun GERNE". Hann hélt að ég hefði sagt "GERNE"!! hahaha

Er smátt og smátt að undirbúa jólin mín hérna í Danmörku. Búin að kaupa hamborgarahrygg og hnetur og smákökur og hlakka til að fá sendinguna frá múttu.

Er búin að fá fyrirspurnir á emailinu um heimilisfangið mitt hérna úti. Fyrir ykkur sem eruð að spá í jólakortasendingu til mín þá er heimilisfangið:

Pjentedamsgade 30, 30E, 3, 36
5000 Odense C
Danmark

Þangað til næst :)

posted by benony 9:20:00 e.h.


{þriðjudagur, desember 06, 2005}

 
Ég er komin tilbaka...

...ótrúlegt hvad ein helgi lídur fljótt...í rauninni er ein helgi bara ekki neitt. Ég fór til íslands á fimmtudegi og flaug tilbaka til Danmerkur á sunnudagsmorgni og ég skaust sem sagt bara...hæ og bæ.
En ég vissi ad thetta yrdi svona og thví var ég bara tjillud og var ekkert ad stressa mig neitt. Ég allavega naut mín í botn og nádi ad knúsa familíuna mína og borda gódan mat med theim. Svo fór ég í rosalega fallegt brúdkaup hjá Kareni og Geira sem voru med mér í FB og thad var svo yndislegt. Fullt af gæsahúdum og fullt af gleditárum. Thau giftu sig í Háteigskirkju og héldu veislu á Grand Hótel. Thar gæddum vid okkur á jólahladbordi og nammi namm thad var svo gott.

Eftir ad hafa dansad med Kareni í hvíta kjólnum sínum fórum ég, Petra og María á Oliver og dönsudum. Svo var ég töff og fór beint í flug af djamminu. Ég geri thetta stundum en mikid rosalega er madur steiktur í fluginu og svo í lestinni til Odense. Einhver vibbaspanjóli á Oliver "really wanted me to stay" en ég sagdi bara eins og kúlisti "no, I have to go to the airport....I have a flight at eight". Madur gerist ekki meira kúl.

posted by benony 8:26:00 e.h.


{mánudagur, nóvember 28, 2005}

 
Ég elskadi Mugisontónleikana...

Mugison var í Kolding á fimmtudagskvöldid og ég skellti mér med lestinni ásamt gódum hópi fólks. Ég dýrkadi tónlistina og fékk oft gæsahúd og hrifningartilfinningu. Bandid sem var á undan var ekki alveg ad gera sig, var reyndar mjög fyndid fyrst en svo til lengdar var thad bara ekkert fyndid. Trommarinn var gladasti trommari sem ég hef séd thví allt andlitid var uppljómad.

Mugison er med thvílíka persónutöfra og madur getur ekki annad en heillast af honum. Elva hössladi hann thar sem hann skrifadi Elva sæta á diskinn sem hún keypti af honum :).

Vid "misstum" svo af lestinni heim til Odense og lestinn fór ekki fyrr en klukkan 5 aftur. Vid lentum í thvílíkum ævintýrum thá nótt, föst í Kolding!!

Er ad koma heim á fimmtudaginn í stutt stopp. Ætla ad vera vid brúdkaup Geira og Karenar sem eru vinir mínir úr FB. Thad verdur ædi.

posted by benony 2:52:00 e.h.


{fimmtudagur, nóvember 24, 2005}

 
Ég er ad fara á Mugisson í kvöld!!! Ég hlakka til

posted by benony 2:40:00 e.h.


{mánudagur, nóvember 14, 2005}

 
Súr móment...

Mér hefur alltaf fundist svolítid absúrt ad medhöndla sundurskorna líkamsparta thó svo ad stundum komi fyrir ad ég gleymi mér og finnist ekkert athugavert vid thad. Thessa vikuna erum vid í anatomiu kennslu uppí háskóla thar sem vid erum ad læra um æxlunarfærin, innri og ytri.

Í dag kom ég svolítid seint í tíma og missti thví af hópnum mínum. Stofan var tóm en ég sá ad töskurnar og jakkarnir voru tharna thannig ad thad var von á theim aftur. Einn sænskur strákur kom líka seint thannig ad vid settumst og bidum eftir lidinu thví vid vissum ekki hvert thau hin fóru. Eftir smá stund komu krakkarnir og vid fórum ad skoda röntgenmyndir. Eftir thad fór sænski strákurinn til kennarans og spurdi hvort thad væri hægt ad endurtaka yfirferdina sem krakkarnir höfdu fengid en vid misstum af. Honum fannst thad ekkert mál og fór med okkur tvö nidur í kjallara. Thar bidu eftir okkur á bakka karlmannskynfæri sem vid vorum ad fara ad skoda.
Thar sem vid vorum bara tvö sem fengum kennslu thá fengum vid alla athyglina frá kennaranum og vid fengum ad spurja og segja ef vid skildum ekki án thess ad thad trufladi. Thad var á einu mómentinu thar sem kennarinn hélt á eista í hendinni og ég stód alveg upp vid hann og stardi stíft og einbeitt á thad og hann var ad útskyra fyrir mér hvernig uppbyggingin var og hvernig thad leit út innan í, thegar hugsuninn flaug í gegnum hausinn á mér....."damn, hvad thetta er absúrt". (ein nidri kjallara ad horfa á dáid eista og fá útskyringu á thví...súrt madur)

Thessa dagana sit ég og stari í bækurnar mínar thví ég er komin á fullt í próflestur. Ég gerdi rosa uppgötvun um helgina thegar ég var ad lesa. Thetta stód: "Smegma er fedtlignende substans som ligger imellem preputium og glans". Thá uppgötvadi ég ad ég hlyti ad vera ad lesa um forhúdarost. Hann er semsagt kalladur "smegma" á latínu. Thar hafid thid thad gott fólk. Thad er alveg ótrúlegt hvad ég er í skemmtilegu námi... :p

posted by benony 4:27:00 e.h.


{miðvikudagur, nóvember 09, 2005}

 
Fyndnasti tími í heimi...

Ég fór í boxtíma í gær og ég er ennthá hlægjandi. Ekki nóg med ad ég var eins og göltur á svelli allan tímann heldur var alltaf næstum ad lída yfir mig og ég var næpuföl í framan. Ég veit ekki hvort ad ég hafi bara verid med svo lágan blódsykur eda bara af thví thad voru svo margir sætir strákar tharna....madur spyr sig.

Kennarinn byrjadi ad láta okkur sippa og ég get svo svarid thad ad ég held ég hafi ekki sippad sídan ég kom á kynthroskaaldurinn. Ég var ekki ad ráda vid allt thetta dót sem hoppadi og skoppadi á líkama mínum :p Enda hló ég mikid. Svo kom æfingin sem gerdi algjörlega útslagid fyrir mig, vid áttum ad leggjast flöt á magann med hendurnar fram og standa svo upp og hoppa. Thetta áttum vid ad gera oft og hratt og thá byrjadi mig fyrst ad svima. Svo var ekki aftur snúid...ég var föl med sortu fyrir augunum næstum allan tímann sem eftir var, thó ég hafi hvílt mig smá og fengid mér fullt af vatni.

Kennarinn var hönk med rosa töffarastæla. Vid pörudumst eitt skipti thar sem ég var í overtal í einni æfingunni. Ég átti ad liggja og setja fæturna uppí loft og hann ýtti fótunum fast nidur og ég átti ad vinna á móti med maganum til ad halda fótunum uppi. Thegar svo vid skiptum og ég ýtti hans fótum thá lék ég smá svona thjálfara í lokin á æfingunni og öskradi á hann "Du har kun fem tilbage...4....3...2...1!!! og det var fint!!! Honum fannst thetta snidugt, töffaranum.

Thegar vid svo byrjudum ad boxa thá var ég eins og tryllt kerling í módursýkiskasti og réd ekkert vid hreyfingarnar. Ég bara kýldi og kýldi og aumingjans kennarinn sá ad vid Elva vorum ad gera thetta svo bandvitlaust ad hann bara hristi hausinn og sagdi vid Helenu ad thad væri svo mikid vitlaust ad hann vissi ekki hvar hann átti ad byrja. hahahah Svo var kennarinn alltaf ad koma og spurja hvernig adal box ólympíuleikalandslidinu gengi!! HAHAHAHA, smá kaldhædni :)
Thó ég hafi verid ad gera mig ad algjörlega fífli thá ætla ég aftur, og verda boxmaster!! Ég er líka med svo skemmtilegar hardsperrur í dag. En í kvöld er thad spinning.

posted by benony 1:49:00 e.h.


{sunnudagur, nóvember 06, 2005}

 
Haustid ad hellast yfir....

....ég get nú ekki kvartad thar sem sídustu mánudir hafa verid mjög hlýir hérna í Danmörku. Ég finn adeins fyrir ad kuldinn er ad dadra vid hörund mitt (vibba-setning hehe). Ég er búin ad frétta af snjóstormi og látum frá Íslandi thannig ad ég er bara sátt vid mitt haustvedur. Laufblödin farin ad falla af trjánum og á gródursælum stödum hérna í bænum thá gjörsamlega vedur madur í laufblödum. Mér finnst thad ædi.

Annars er allt gott ad frétta. Vid nördarnir erum ad leggja lokahönd á verkefni og skýrslur annarinnar. Erum farin ad hlakka til ad segja skilid vid skriftirnar og fara ad hella okkur yfir bækur og byrja ad lesa fyrir próf. Sönnun fyrir thví hvad madur er ordin mikid nörd er thegar vid erum ad skipta nidur verkefnunum í hópnum thá er rifist og slegist um hver á ad gera hvad og madur verdur fúll ef einhver er ad gera meira en madur sjálfur. Í gamla daga reyndi madur ad komast sem ódyrast frá svona verkefnum.
Vid Elva vorum ad tala vid einn bekkjarbródir ádan, Christian, sem er líka ad vinna ad verkefninu sínu og hann benti inn í lessalinn og sagdi "ég öfunda thetta fólk, ég vil bara fara ad lesa líka". Vid gátum ekki verid meira sammála kauda. hahaha, nördalid. :)

Ég er ennthá í átakinu og er búin ad missa rúmlega 2 kg. Ég tharf ad fara ad herda á mér ef ég ætla ad ná markmidum mínum en ég er bara ad fíla thennan nýja lífstíl minn. Thad er gott ad borda hollt og mér lídur svo vel eftir ræktina. Ég fæ líka kick út úr thví ad sjá vigtina sýna lægri og lægri tölu. Enda tala ég varla um annad en hvad ég er búin ad borda og hvad ég púladi í ræktinni. Jú, svo tala ég svolítid um danska "Paradis Hotel" og er ekkert vodalega stolt af thví en thetta er rosa spennandi...ó mæ god sko.

Ég elska skólann minn og finnst allt svo spennandi sem ég er ad læra. Ég er samt farin ad kvída smá fyrir fyrstu alvöru klinikinni minni thví ég veit ad thar verd ég grillud í mauk. Ég læt mér thó huggast thví á theim tíma ætla ég ad vera ordin svo mjó hehe. Thegar ég er ordin mjó læt ég ekkert slá mig út af laginu. (yeah ræt)

Ég kem til Íslands fyrstu helgina í desember til ad fara í brúdkaup og er farin ad hlakka svo mikid til. Ég helst yfir námsefninu og get einbeitt mér ad fullu thar sem ég veit ad brádum er ég ad fá smá frí.

thangad til næst...

posted by benony 7:34:00 e.h.


{fimmtudagur, nóvember 03, 2005}

 
Ad missa kúlid...

Ég ætla ad missa kúlid núna fyrir ykkur blogglesendur thar sem ég hef verid svo löt ad skrifa undanfarid. Ég ætla nefnilega ad segja ykkur nördasögu af mér og vinkonu minni.

Vid Elva vorum ad hendast í tíma smá seinar eins og svo oft ádur thegar thad er kallad nafnid mitt. Ég sný mér vid og thar situr Søren bekkjarbródir og bendir mér ad koma til sín. Ég fer til hans og hann segist vera ad fara ad halda party med honum Jens um helgina og hvort ég og Elva viljum ekki koma í partyid. Ég hélt ótrúlega kúlinu á thessu mómenti (ég er svo stolt af mér) spurdi med stút á vörunum klukkan hvad og hvar partyid yrdi haldid. Sagdi svo vid hann ad vid kæmum pottthétt. :)

Thegar ég labbadi tilbaka til Elvu og Søren sá ekki andlitid á mér kom gedshræringin fram. Ég hvísladi hátt til Elvu "Ó MÆÆÆ GGOOOOOODDD, THAD Var verid ad bjóda okkur í PARTY"!!!!!!!!! Thad ískradi í Elvu af spenningi.

Svo fórum vid í partyid med hnullung í mallanum. Okkur leid eins og unglingsstelpum, vid vorum svo stressadar eitthvad. Ímyndudum okkur ad thad myndi enginn nenna ad tala vid okkur og fólk færi bara ad hlægja thegar vid kæmum inn.
En svo gekk bara vel og fólk nennti alveg ad tala vid okkur...samt eiginlega bara strákarnir í bekknum....danskar stelpur eru erfidari. Vid érum nördar en thad er bara okkur ad kenna thví vid erum of feimnar.

Málid med thessu er ad vid erum voda mörg náttúrulega í læknisfrædinni og thad myndadist mjög fljótlega litlir hópar. Vid Elva erum náttúrulega í Íslendingagrúppunni med nokkrum útlendingum. Belgískri konu sem gæti verid mamma okkar, og stelpum frá Sri Lanka sem eru ekki djammarar thannig ad vid urdum svolítid út undan. :) En núna erum vid back in the game..... THE NERDS COMEBACK MÚHAHAHAHA

posted by benony 5:45:00 e.h.


{fimmtudagur, október 27, 2005}

 
Vid vorum threyttar med bauga.....

...en hittumst fyrir utan barnadeildina til ad fá upplysingar um hvítblædi fyrir verkefnid okkar. Á hurdinni stód, thetta er heimili barnanna og thví enginn gegnumgangur. Vid litum hvor á adra en opnudum hurdina og gengum kurteisislega inn. Vid gengum rakleidis ad hóp af hvítklæddum konum sem virtust vera í miklum pælingum og vorum greinilega mjög uppteknar. Eftir ad vid höfdum útskýrt erindi okkar fyrir gódlegri hjúkrunarkonu sagdi hún ad thad væri best fyrir okkur ad tala vid lækni deildarinnar...en hann var thví midur á "intensive" deildinni med mjög veikt barn. Medan vid bidum eftir ad hún var búin ad finna fyrir okkur gögn kom lítill drengur til okkar sem var á ad giska 6 ára gamall med ekkert hár á höfdinu og mjög fölur í framan. "jeg har lige været i bad" sagdi hann og ljómadi allur. Alveg toppurinn hjá honum thennan daginn :)
Thar sem ég stód tharna og beid eftir gögnum gerdi ég mér grein fyrir hvad börn eru hreinskilin og örugglega gott ad vinna med theim. EF theim lídur illa thá sér madur thad svo skýrt á theim. Ef thau eru glöd thá ljóma thau.
Ég man eftir lítilli stúlku á slysó sem hafdi dottid á hendina og mamman var ekki viss hvort hún var brotin eda ekki. Litla stúlkan kunni ekki ad tala og sat bara ad leika sér med dótid inná bidstofunni og thá benti læknirinn mér á ad hún kubbadi bara med annarri hendi en hin höndin hvíldi bara í skauti hennar. Læknirinn sagdi thá vid mömmuna "já hún er brotin".

Eftir smá bid kom hjúkrunarkonan aftur og sagdi ad thad væri læknir ad bída eftir okkur, hann vildi gjarnan svara spurningum frá okkur. Thar sat lítill gódlegur eldri madur sem börnin á deildinni örugglega elska thví hann var thessi afatýpa. Mér leid vel ad vera ad tala vid lækninn um rannsóknir í sambandi vid sjúkdóminn og lyfjagjafir thví vid höfdum lesid okkur vel til og vissum alveg um hvad vid vorum ad tala. Hann svaradi okkur smá eins og hann væri í yfirheyrslu hahaha, "gefid thid sjúklingum 6-mercaptopurin og 6-thioguanin lyf?" spurdi ég og thá sagdi hann "JÁ, VID GEEEERUM thad". Svona eins og ég væri ad efast um gædi deildarinnar. :)

Thegar vid vorum ad labba út thá heyrdi ég barnsgrát...tharna voru margar litlar hetjur ad berjast fyrir lífi sínu.
Eftir thennan dag langar mig ad vinna med börnum í framtídinni.

posted by benony 1:14:00 e.h.


{laugardagur, október 22, 2005}

 
Efterårsferie

Nú eru bara sídustu dagarnir af fríinu og skólinn byrjar aftur á fullt á mánudaginn. Thad er ekki hægt ad segja ad ég hafi bara verid ad bora í nefid og lakka neglurnar í thessu fríi thví vid erum ad leggja lokahönd á efnafrædiverkefnid okkar sem var búid ad liggja svolítid á okkur. Thad er svolítid thannig ad heimdildavinnan tekur mestan tíma og svo örlítid fljótlegra ad koma nidur á blad.

Skemmtilegast var thó thegar Hlynur kom í heimsókn til mín. Alltaf svo gaman ad fá vini í heimsókn. Vid Hlynur nutum thess bara ad vera í fríi og ég sýndi honum heimabæinn minn og skólann minn.

Annars var ég í verslunarleidangri med Elvu og Helenu í dag. Ég keypti mér sætan kjól...hann er grænn. Hlakka til ad nota hann :)
Svo erum vid bara í ruglinu hérna uppi í skóla á laugardagskvöldi ad thykjast ad vera duglegar.

Ég er annars ótrúlega hress en sakna samt svolítid allra heima á Íslandi.

Góda helgi

:)

posted by benony 6:41:00 e.h.


{fimmtudagur, október 13, 2005}

 
Ég er ad fara ad gera nyrnaæfingu...

...og vid eigum víst ad pissa í glas og rannsaka thad og taka blódprufur af hvort ödru. Thetta verdur spennandi.

posted by benony 10:59:00 f.h.


{mánudagur, október 10, 2005}

 
Årsfest

Helgin var stórkostleg og ég fór á árshátíd uppí skóla á föstudagskvöldinu. Ég skemmti mér thrælvel thó ad ég hafi ekki nád ad hitta næstum alla vegna thess hve var mikid af fólki. Málid er ad årsfestin uppí skóla er ekki eins og árshátídir sem madur á ad venjast á Íslandi heldur er hún haldin í skólabyggingunni sjálfri og tharna eru samankomin thúsundir af fólki og thad voru thrjár hljómsveitir ad spila á mismunandi stad innan veggja skólans thví hann er jú svo kæmpe stór. Mest skemmtilegast var ad skoda fólkid og kjólana og bara láta sjá sig og sjá adra.

Vid byrjudum kvöldid í dinner hjá Helenu og thar bordudum vid dýrindis kjulla ádur en vid skelltum okkur á hátídina. Vid settum nidur takmark kvöldsins en takmark allra kvölda er ad safna rokkprikum. Thad er allra hinsta ósk ad vera mesti rokkari grúppunnar. Sem dæmi um hluti sem vid thurfum ad gera til ad vera rokkarar er:

1) Ad fara í bad med Svía
2) Kyssa Geirmund Valtýsson

Thar sem vid erum bara kjafturinn thá fær engin okkar rokkprik thví vid erum greinilega ekki nógu miklir rokkarar.

Thad sem ákvedid var fyrir thetta kvöld var ad:

1) Labba upp ad kærustupari og syngja til stráksins "Don´t you wish your girlfriend was hot like me"

2) Spurja einhvern ókunnugan hvort vid mættum taka mynd af okkur saman

Ég fékk svo rokkprik fyrir ad spurja einhverja félaga hvort ég mætti taka mynd af okkur saman og eitt fyrir ad spurja strák sem var ad taka mynd af vinum sínum hvort hann vildi ekki eiga mynd af mér líka. hehehe Ekkert prik fyrir Svíann og Geirmundur var ekki á stadnum og já ég thordi ekki í Cat fight vid einhverja stelpu sem væri ósátt vid "don´t you wish your girlfriend was hot like me" lagid.

Thetta er ungt og leikur sér ha!!!

Var svo komin heim til mín klukkan hálf átta thví vid fórum í eftirpartý heim til Davíds Jens thar sem strákarnir heilludu okkur stelpurnar med thví ad spila á píanó og gítar og syngja rómantísk lög. Snilld

Á laugardagskvöldinu fórum vid svo á Charlie and the Chocolate factory og ég mæli sko med henni. Frábær mynd og krúttleg...leid eins og lítilli stelpu aftur.

posted by benony 2:30:00 e.h.


{miðvikudagur, október 05, 2005}

 
Ég er med bilad net heima og hef thess vegna ekkert verid á msn. Endilega sendid mér email til ad gefa mér updeit kæru vinir.

Svolítid fyndid sem gerdist í gær. Thad var hringt í dyrasímann minn og ég svaradi:

Ég: halló
Gaur: hej, det er ravinsontravis, jeg skulle bare vide om hvordan du har det
Ég: hvad? hvad hedder du siger du?
Gaur: ravinsontravis
Ég: hvad?
Gaur: ravisontravis og jeg skulle bare vide om hvordan du havder det og om det var sket noget
Ég: nej, jeg har det fint
Gaur: nohh, det var godt at høre...men så kører jeg videre
Ég: ok
Gaur: vi ses så, hej hej
Ég: hej

Einhver brandarakarl :)

posted by benony 1:24:00 e.h.


{mánudagur, október 03, 2005}

 
Rosa stud...

Átakid heldur áfram en ég er ekki ad sjá neinn stórvægilegan mun enda kannski ekkert ad marka. Í sídustu viku fórum vid Elva í ræktina upp á hvern einasta dag og vid vorum heldur betur girnilegar í spinning á midvikudegi. Damn hvad spinning tekur á. Ég var alveg tryllt á hjólinu og svitinn lak nidur eldrautt andlitid. En váhh, hvad mér leid vel eftir á. Matarædid er líka breytt en ég hugsa stanslaust um sælgæti og sætabraud en ég er búin ad ná ad halda í mér.

Um helgina gerdist svolítid skemmtilegt sem fékk okkur stöllur til ad hugsa enn meira um hvad vid erum búnar ad vera í ruglinu. Vid vorum staddar í bænum ad reyna ad velja okkur föt í búdunum. (mánadarmót og svona) Eftir smá rölt verdum vid svangar og ákvedum ad thad sé nú í lagi ad fara á McDonalds thví vid erum búnar ad vera svo duglegar alla vikuna.... Tharna sitjum vid sveittar, grádugar og rjódar med feitan borgara og franskar thegar félagi okkar kemur inn.
Félagi: "Nei, blessar stelpur, hvad segidi"
Ég: allt fínt, vid erum í átaki
Félagi: já, ég sé thad
Ég: æi, sko vid erum búnar ad borda ávexti alla vikuna og vera í ræktinni ad púla, thridjudag, midvikudag, fimmtudag OG föstudag
Félagi: já, váhh duglegar
Elva: vid eigum thetta skilid (med sósu út á kinn)
Ég: já, en bara einu sinni í mánudi framvegis
Félagi: fyndid, ef ég hugsa tilbaka um thær stundir sem ég hef verid ad borda skyndibita thá hefur thad eiginlega alltaf verid med ykkur HAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
Ég: OJJJ, já stríddu okkur svolítid
Félagi: thid erud tharna skyndibitastelpurnar HAHAHAHAHAHAHA

Hann skal sko ekki eiga fleiri stundir med okkur og skyndibita :p

Annars er ég bara hress og er á fullu í skólanum. Ég er reyndar búin ad kaupa mér mida til Íslands eina helgi bara en ég er ekki búin ad segja neinum frá thví. Med thessari færslu er ég búin ad segja einhverjum. Ég fékk bara ódýra mida. Ég verd svo´hérna úti um jólin í fíling. Thad var svo rosa kósý sídast.

posted by benony 2:43:00 e.h.


{laugardagur, september 24, 2005}

 
Og þá er það þrítugsafmæli...

Hann Guðmundur oft kallaður Óli eða bara Gummi hennar Bryndísar eins og ég kalla hann alltaf er að fara að halda uppá þrítugsafmælið sitt í kvöld. Það var búið að lofa mér einhverjum sætum fótboltastrákum og eins gott að þeir verði á boðstólnum hehe. Ég er ekki búin að ákveða hvort ég hoppi uppá borð og dansi eins og ég eigi lífið að leysa eða hvort ég láti nægja að skvetta hárinu til og frá og brosi út í annað.... Hvort heldur sem er þá verður gaman :)

posted by benony 6:14:00 e.h.


{miðvikudagur, september 21, 2005}

 
Allt að verða vitlaust í skólanum...

...hann er svo spennandi. Í vikunni erum við búin að hafa þrjá kliniska fyrirlestra um sjúkdóma sem tengjast því sem við erum að læra núna og þeir hafa verið haldnir af yfirlæknum deilda sem meðhöndla þessa sjúkdóma og svo einum sexy bitch lækni í beinþynningarsérnámi. Ég get sagt ykkur eftir þessa viku að það er rosalega óhollt að reykja og alveg einstaklega óhollt að vera í yfirvigt. Ég er því búin að ákveða að byrja aldrei að reykja og svo er ég byrjuð að passa hvað ég borða og ætla mér að koma mér í gott form. Fyrst og fremst til að vera við góða heilsu og fyrirbyggja ýmsa sjúkdóma og svo væri líka ansi gaman að vera þessi sexy bitch sem allir virðast vera að reyna að líkjast. Ég borðaði salat í kvöldmat og kalkún í hádeginu með engri sósu og svo fór ég í ræktina og hljóp eins og vindurinn á hlaupabrettinu. Verst bara að ég er búin að vera svöng í allan dag og reyndi að maula ávexti á milli mála. Mitt mottó er ekkert brauð, ekki borða mig sadda og ekki borða eftir klukkan 20.

Damn, ég er orðin svona gella sem talar ekki um annað en mat og megrun....nei í alvöru þetta er alvarlegt. Mig langar rosalega mikið að þetta gangi upp hjá mér. Ég læt ykkur vita hvernig gengur í nýja átakinu...það er að segja ef það mun ganga vel. :p

posted by benony 11:21:00 e.h.


{þriðjudagur, september 20, 2005}

 
Ég var klukkuð og á því að segja fimm hluti um sjálfan mig, hér kemur það....

1) Mig langar að eignast gítar og læra á hann. Eftir að ég er orðin spilafær langar mig að læðast út þegar kvölda fer og setjast inn á sveitta bari og spila og syngja sorgleg lög. Hver veit nema Kim Larsen slysist inn og uppgötvi mig, við getum þá farið að túra saman.

2) Ég á það til að sjá lífið í "signum". "Signin" sem ég hef séð hafa aldrei ræst og oft veit ég ekkert fyrir hvað þessi "sign" standa n ég hef ákveðið að halda samt áfram í horfa á lífið með þessum augum.

3) Þegar ég var lítil og mér leið illa sagði mamma mér alltaf að fara í "happy place". Þá lokaði ég augunum og ímyndaði mér að ég lægi á túni undir eplatré í hvítum fallegum síðum kjól. Ég var að uppgötva að það er eplatré í garðinum mínum og ég hef aldrei legið undir því. Verð að fara að kaupa mér hvítan kjól....

4) Í staðinn fyrir að hjóla, ganga eða keyra í skólann væri ég alveg til í að koma ríðandi á hesti í skólann. Held ég yrði aðalgellan.

5) . Ég er svo happy í Danmörku

jæja þetta var mitt innlegg inní klukkið.... Ég hef ákveðið að klukka Diljá og Maj-Britt. (Stelpur þá eigið þið að skrifa 5 hluti um ykkur á síðuna ykkar)

posted by benony 10:53:00 e.h.


{sunnudagur, september 18, 2005}

 


Buhu

Alltaf svo erfitt að kveðja. Diljá vinkona var hjá mér yfir helgina og við skemmtum okkur vel eins og alltaf. Fórum í kreisý stelpuparty hjá Bryndísi sem endaði á því að ég, Diljá og Bryndís vorum mættar í trylltan dans uppá sviði á einum frekar laim dansstað bæjarins. Við vorum í stuði fyrir að vera hallærislegar....alltaf stuð.

Í dag erum við búin að láta realityshows í sjónvarpinu renna í gegnum heilana okkar án þess að hugsa neitt rosalega mikið. :) Perfekt sunnudagur haha

Nú veit ég ekki hvenær ég sé þessa vinkonu mína næst...svona er að búa í útlöndum.


posted by benony 7:32:00 e.h.


{miðvikudagur, september 14, 2005}

 
Alveg frá því ég flutti út...

..hef ég ekki haft sjónvarp á heimilinu. Ég er búin að búa í þrjú ár og því búin að vera án þess í þann tíma. Ég hef í sjálfu sér ekki saknað þess neitt, tölvan og internetið hefur haldið mér félagsskap ásamt bókum og vinum. En núna eru breyttir tímar... Það er komið sjónvarp á heimilið og allt er breytt.

Í matarpásum síðastliðin þrjú ár hef ég ekki verið alveg með....

Vinkona 1: Kathrine hélt bara framhjá!!
Ég: ha??? Kathrine hver, hvað?
Vinkona 1: já, í þættinum í gær
Vinkona 2: já, mér datt þetta reyndar alltaf í hug, hún er sottan drusla
Vinkona 1: maðurinn hennar er nú líka með eitthvað gruggugt í pokahorninu
Vinkona 2: einmitt
Vinkona 1: Svo fannst mér alveg rosalegt slysið....ég alveg fékk tár í augun
Ég: slys??? hvaða slys ertu að tala um???
Vinkona 1: agalegt að þeir hafi látið Michael deyja í þáttunum
Vinkona 2: hann var svo sætur
Ég: hey vitiði hvað ég var að gera áðan????
Vinkona 1: svo var svo sorglegt að sjá hvað Jennifer tók þessu illa
Vinkona 2: já, og aumingja börnin

Ég var búin að koma mér vel fyrir með lífeðlisfræðibók og kertaljós í nýja herberginu mínu sem er btw algjört æði í kvöld þegar Margrét hringir og segir "SARA, DESPERAT HOUSEWIFES Á TV2. Eigum við að horfa saman" og svo stuttu seinna sms frá Elvu "desperat houswifes á tv2".
Mér líður eins og ég hafi verið að byrja að reykja og sé tekin inn í reykingarfélagsskapinn á vinnustaðnum. Það verður gaman að vita hver talar hæst í matarpásunni á morgun í skólanum. Ég gæti byrjað með að skella fram "já, stelpur, svo er eiginmaður rauðhærðu kéllunnar bara fyrir að láta pynta sig".

posted by benony 10:48:00 e.h.


{mánudagur, september 12, 2005}

 
Vikan byrjar aftur...

...með nýjum verkefnum. Ég elska hvað það er mikið að gera...algjörlega þrífst á því held ég bara núna. Ég er eiginlega aldrei heima hjá mér og er ekki alveg búin að hafa tíma til að setja íbúðina mína í stand en hún er öll að koma til og það er ótrúleg vellíðan sem fylgir þessum breytingum sem ég er búin að gera.
Helgin leið og ég náði að fara á stelpukvöld heima hjá Valdísi á föstudagskvöldið og svo fögnuðum við fimmtugs afmæli Baldurs og Gunnhildar á laugardagskvöldið og þau tóku sig vel út þó þau séu komin á miðjan aldur. :p

Amma mín og föðursystur voru í Danmörku í fjóra daga og ég, Sveinbjörn, Guðný og strákarnir fórum að hitta þær í Nyborg hjá Birgitt frænku. Ég skemmti mér konunglega við að heyra ömmu (91 árs) og systurnar tala dönsku því Birgitt og maðurinn hennar eru dönsk. Þær voru nú ekki sáttar við að ég væri að hlægja að þeim en þær voru bara svo yndislegar eitthvað með íslenska hreiminn sinn. En það var notalegt að hitta fjölskyldumeðlimi frá Íslandi þó svo að ég hafi verið heima fyrir rúmri viku síðan.

jæja...hef lítið að segja núna..ég er að fara að skera upp nýru á morgun...held það séu svínsnýru..spændende

posted by benony 9:39:00 e.h.


{fimmtudagur, september 08, 2005}

 
Túristi...

Við vinkonurnar vorum eins og túristar í dag í Odense. Við leigðum okkur árabát og sigldum niður ána sem liggur í gegnum bæinn. Elva stóð sig vel í skipstjórahlutverkinu og sigldi eins og vindurinn. Ég var ekki eins klár og skildi ekkert afhverju báturinn vildi ekki hlýða mér og fór alltaf í andstæða átt en þá átt sem ég vildi fara. Þetta minnti mig soldið á þegar ég var að vinna á hestaleigu í gamla daga og var að fara með túrista í reiðtúra. Þá hrópuðu túristarnir alltaf með slakann tauminn upp yfir sig "hann vill ekki stoppa!!!!" eða "hann vill ekki beygja!!!!". Föttuðu nefnilega ekki að hestarnir lesa ekki hugsanir og gera ekkert nema knapinn stjórni þeim. Ekki skrýtið að við systkinin, ég og Dóri fengum alltaf kuldahroll þegar mamma og pabbi voru að hrópa á okkur að það væru komnir túristar sem vildu fara á hestbak...enda við líka með unglingaveikina. :)

Ég er búin að leggja kotið mitt í smá rúst því ég er að breyta öllu hjá mér. Ég er með skrifborð sem tekur allt plássið hjá mér og ég ætla á morgun að flytja það út og kaupa mér hillur og setja í staðinn. Ég er búin að vera á leiðinni að gera þetta svo lengi en núna sá ég að hillurnar voru komnar á útsölu og ég er í fríi á morgun í skólanum þannig að ég ætla bara að drífa í þessu.

Ég er algerlega búin að vera að pirra mig á pláss-og peningaleysi og sé að eina ráðið er bara að fara út á horn..svei mér þá. Eða bara fara á elliheimili og næla mér í einhvern moldríkan, krumpaðan fola sem getur fullnægt mínum þörfum...þ.e peninga og pláss þörfum hehe. Æ, hvað ég er ljót að tala svona...

En jæja, ég brosi að þessu seinna og kasta mér svo út í flottu sundlaugina mína í stóra garðinum mínum...

posted by benony 1:19:00 f.h.


{þriðjudagur, september 06, 2005}

 
úbbossíi

Ég er ekki enn farin að kíkja í bók en er þó búin að vera að hlusta af mikilli athygli og innlifun á fyrirlestra því þeir eru búnir að vera svolítið spennandi. Erum að fjalla um innkirtla og í dag svolítið um brisið og hormónaframleiðslu. Veðrið er búið að vera guðdómlegt og því alveg glatað að hanga inni enda kannski bara gott að njóta veðursins meðan það er ekki neitt rosalegt stress í skólanum...en það mun hellast fljótt yfir mig...engin hætta á öðru.

Eftir tíma í dag sátum við nokkur á teppi með nammi og hugguðum okkur í stórum garði sem er rétt hjá spítalanum. Yndislegt alveg hreint. Ég er líka komin með smá lit í andlitið en ég var við að fara gráta þegar ég sá hvað ég var hvít miðað við stelpurnar í bekknum. Allar svo brúnar og sællegar eitthvað og mig langaði svo sannarlega líka að vera brún og sælleg. Ég er núna að nálgast þær í svona kannski eilítið rauðleitari blæ :p

Við Elva erum búnar að vera að tala um að fara á ströndina næstu daga...en svo á spáin kannski bara að fara að breytast...jæja þá get ég byrjað að lesa hehe

Endilega látið heyra í ykkur

posted by benony 11:21:00 e.h.
 


Hvaða kélling er þetta???

Ein góð mynd af okkur Sóldísi Maríu Eikadóttur þegar við hittumst fyrst í köben nú um helgina


posted by benony 11:14:00 e.h.
 
Svona eiga dagarnir ad vera....

Dagarnir eru fullir af verkefnum og thad er sól og 25 stiga hiti. Ég er alveg búin ad komast ad thví ad ég er hvítust í allri Danmörku og reyni thví eins og ég get ad fá smá lit í andlitid.

Ég, Valdís og Gauti vorum ad hjálpa Elvu ad flytja í gær og svitinn alveg fossadi thar sem vid mössudumst med svefnsófann og Reolsystemet.

Svo í dag er ég bara búin ad vera ad vesenast í skattinum og svona og er ad spá í hvernig hjól ég á ad kaupa mér. Á ég ad fara á uppbod hjá löggunni...eda á ég ad kaupa mér eitthvad almennilegt hjól. Erfid ákvördun...

jæja...er ad fara í tíma.

túrilú

posted by benony 1:42:00 e.h.


{sunnudagur, september 04, 2005}

 
Home sweet home

Mikið rosalega er alltaf gott að koma heim til sín eftir langan tíma þó svo það sé líka skrýtið því allt í einu er maður einn aftur. Ég er búin að standa á haus í allan dag (rosa flippuð) við að þvo þvott. Veðrið er æði og því gott að þurrka á snúrunum. Ég fór líka í búð og er núna að taka svolítið til og koma mér almennilega fyrir. Ég á von á Elvu í kvöld og hún ætlar að gista eina nótt og svo er hún nefnilega að flytja í nýja íbúð á morgun og þar með vöknum við klukkan átta og förum í fyrsta tímann okkar og svo ætla ég að hjálpa henni að flytja. Rosa spennandi fyrir hana og gott fyrir mig því hún er að flytja nær mér.

Ég kom til Danmerkur á föstudagskvöldið og á Hovedbanegaarden í Kaupmannahöfn var tekið vel á móti mér af strákunum þeim Hlyn Dóra og Geir. Við bogruðumst með farangurinn minn heim til Hlyns og héldum gott eldhúspartý þar og Eiki bættist í hópinn. Töluðum í klukkutíma um loftið í eldhúsinu...það var btw flottasta loft sem ég hef séð. Fórum svo í bæinn og hristum skankana.

Átti svo rosa góðan dag í Köben á laugardaginn í faðmi góðra vina. Ég, Dóri og Hlynur fórum heim til Eika og Vigdísar sem voru búin að baka súkkulaðiköku sem var algjört hnossgæti. Ég hitti hana litlu Sóldísi Maríu sem er nýkomin í heiminn og ekki hægt að segja annað en að hún sé algjör gullmoli.
Við grilluðum okkur svo KÆMPE borgara og spiluðum XBox sem var rosa gaman. Leikurinn hét Partýcrasher og þar er tilgangurinn að keyra bíl og lenda í eins miklum árekstri og maður getur. Svo er talið upp hve mikið tjónið er og því meira sem það er því hærra stig fær maður. Þetta var snilld.

Ég tók svo lestina klukkan hálf eitt um nóttina til Odense. Ég hafði ætlað að fara heim einhverntímann á laugardeginum en þegar er gaman og mér líður vel þá er bara erfitt að slíta sig burt. Ég náði því síðustu lest heim...hahaha týpískt ég.

Best að halda áfram að taka til. Ég er að hlusta á nýja "Keane" diskinn sem ég keypti mér í fríhöfninni. Ég fíla hann mjög mikið...

þangað til næst....

posted by benony 6:07:00 e.h.


{föstudagur, september 02, 2005}

 
Við svífum um loftin, tvær ástfangnar flugvélar!!!

sjáumst í Danmörku og takk fyrir gott sumar

kveðja Sara

posted by benony 1:05:00 e.h.


{mánudagur, ágúst 29, 2005}

 

Falin myndavél

Við Drífa vinkona vorum að rifja upp æskuuppátæki okkar. Fyrir utan öll dyraötin þar sem við dingluðum og hlupum burt eins og flestir kannast við að hafa gert eitthverntímann á æskuárum sínum þá vorum við líka alltaf að plata fólk svona eins og falin myndavél nema hvað að það var engin myndavél tilstaðar. Brynja og Drífa voru þessar hugmyndaríku en ég þessi með þorið og þess vegna var ég klædd í ýmisskonar klæðnað og lék allskonar hlutverk.

Mjög vinsælt var að setja mig í risastór föt af mömmu stelpnanna og ekki mátti gleyma að setja bómul í kinnarnar svo að ég myndi ekki þekkjast. Svo var ég sett í stígvél sem voru svo stór að ég gat varla gengið og ég send stífmáluð í húsin í hverfinu annaðhvort til að selja happdrættismiða eða til að ljúga eitthverju. Brynja og Drífa földu sig svo í trjánum eða bakvið hús og flissuðu.

Oft urðu þessi grín okkar ljót. Sem dæmi um svoleiðis grín var þegar ég setti upp grímu sem pabbi Brynju og Drífu átti sem var af gömlum karli með hvítt hár og var ansi raunveruleg. Fór svo í frakka af pabba stelpnanna og stígvél og lagðist svo á miðja götu og þóttist vera dauð. Fólk sem kom að sá bara furðulegan pínulítinn og mjóann gamlan karl dauðan á götunni. Assgotans vitleysa :)

Ég man að oft vorum við skammaðar og einu sinni kallaði einn úrillur karl í hverfinu okkur krónupíkur hvað svo sem hann meinti með því.
Við höfum líklega verið óþolandi en ég held að mér myndi bara finnast sniðugt ef ég fengi svona heimsókn.

posted by benony 8:23:00 e.h.


{miðvikudagur, ágúst 24, 2005}

 
Bráðum búið..

Já, nú er ég búin að kaupa farmiðann heim og fer út 2 september til að byrja þriðja árið í læknisfræðinni og fjórða búskaparárið mitt í Danmörku. Já, tíminn líður ótrúlega hratt.

Ég er í óða önn að skipuleggja tíma minn sem ég á eftir á Íslandi sem best og endilega hringið í mig ef þið viljið hittast því ég er svo oft á síðustu stundu og gleymi mér þannig að oft verður ekki úr neinu. 6621249

Ég var í kjulla hjá Drífu á mánudaginn og stelpan er bara ansi góður kokkur, muldi ritskex og mozzarellaost yfir bringurnar. nammi namm, geggjað gott. Svo í gær fór ég til ömmu minnar í heimsókn. Eftir að við vorum búnar að horfa á Guiding light (hún má ekki missa af þeim þætti) þá gúffuðum við í okkur dýrindis kjötsúpu ala amma á hagamel og ég held að fátt sé betra. Seddutilfinningin eftir svona súpu er betri en eftir eitthvað annað.

Annars er ég happy, já svei mér þá bara


posted by benony 1:12:00 f.h.


{miðvikudagur, ágúst 17, 2005}

 
The Biggest Looser

Ég grenjaði yfir "the biggest looser" á Skjá einum í gær. Þetta var lokaþátturinn og mér fannst eitthvað svo frábært hvað fólkið var búið að áorka miklu og var búið að breyta lífi sínu til hins betra. Fjölskyldan var svo hamingjusöm og stolt af keppendunum...þetta var bara svo fallegt. Þar sem ég sat þarna og táraðist yfir þessu og gaf frá mér snýtu- og dæshljóð inn á milli var bróðir minn að missa sig yfir mér. Hann var svo hneykslaður. Horfði á mig með hneykslunarsvip og hrópaði á sjónvarpið. "ÞIÐ ÞURFIÐ EKKI AÐ VIGTA YKKUR!!!!!! THE BIGGEST LOOSER SITUR HÉRNA VIÐ HLIÐINA Á MÉR!!!" Þá gat ég ekki annað en brosað gegnum tárin.

posted by benony 4:10:00 e.h.


{fimmtudagur, ágúst 11, 2005}

 


Quality time

Við Bryndís áttum quality time í gær. Hittumst í bænum og tókum búðarrölt. Keypti mér einn bol og buxur og er því voða glöð. Alltaf svo gaman að kaupa föt. Svo vorum við voða histerískar að leita okkur að einhverju gúmmulaði á kaffihúsi. Kíktum bara á desserts en ekkert heillaði okkur. Svei mér þá, ég veit ekki hvað við vorum að leita eftir. Við enduðum svo á að sitja úti við umferðargötu og borða einhvern þann æðislegasta ís sem ég hef bragðað. Hann var frá lítilli ítalskri ísbúð og ísinn var svoooo girnilegur og bragðgóður. Ég verð fastagestur núna.

Svo var ég mætt í hátíðarkvöldverð. Gummi töfraði fram purusteik og kótilettur þannig að við vinkonurnar vorum vel mettar.

Til sidst horfðum við á Closure myndina og hún var fín. Alltaf fínt að horfa á hann Júdda Lög, hann hefur alltaf heillað mig svolítið. Hann missir samt fullt af prikum fyrir að halda framhjá sætu kærustunni sinni. Ég er alveg að komast inn á það að það ætti að gelda þetta lið!!

Ég var að koma úr klippingu og var klippt af stelpu með vafasama hárgreiðslu haha. Hún var með hárið allt eitthvað reitt og brjálað með æpandi liti. Hún gerði mig samt voða fína og hárið virkar mun heilbrigðara. Þannig að ég er eiginlega ready set go. Ég er svo að fara í flug eftir nokkra klukkutíma þannig að dreg að mér íslenskt loft innan skamms.

Þið heima, ég hlakka til að hitta ykkur aftur :)


posted by benony 11:10:00 f.h.


{sunnudagur, ágúst 07, 2005}

 

Er stödd í Odense eins og er að massa eitt sumarpróf sem er búið að liggja smá eins og mara á mér í sumar. Danmörk tók vel á móti mér og þrátt fyrir smá lestarvesen og rigningu. Mér líður alltaf svo vel hérna.

Ása er eina manneskjan sem ég hitti en við förum í mat saman og hringjumst til að peppa hvor aðra upp. Alltaf svo gott að hafa einhvern sem veit alveg hvernig manni líður og er í sömu stöðu. :)
Í gær fórum við út að borða á gömlum ítölskum pizzustað og það var bara lostæti. Ég fékk mér pizza pollo og bananasplitt. Vorum alveg í heitum samræðum um rosaleg efni og eins gott bara að engin skildi um hvað við vorum að tala. :)

Ég kem til Íslands aftur á fimmtudaginn og er búin að ákveða að vera búin að fara í klippingu og litun áður en ég kem, og kannski vera búin að kaupa eina til tvær nýjar flíkur þó svo að næstum öll launin mín hafi farið í að kaupa miðann út og borga reikninga.
Ég ætla að nota vikurnar þrjár sem eftir eru á Íslandi vel og njóta mín út í ystu æsar áður en ég kem aftur út og byrja þriðja árið. :) Já, það er svo gaman að plana og láta sér hlakka til þegar maður er í prófum :)

posted by benony 10:26:00 e.h.


{miðvikudagur, ágúst 03, 2005}

 
Ótrúlegt en satt...

Þessa ferðasögur mínar eru að ná hámarki svei mér þá. Ég lendi næstum því í ævintýri í hvert skipti sem ég flýg. haha en þessi er æði

Ég var mætt tímanlega í þetta skipti upp á Leifstöð en lenti öftust í röð sem náði út úr byggingunni. Þarna í röðinni var fólk sem var að fara til mismunandi staða í heiminum og ég stóð þarna alveg að fríka út yfir hvað röðin færðist hægt og var hrædd um að flugvélin færi barasta á undan mér. Þegar röðin var að koma að mér hrópaði ein afgreiðslustúlkan " If you are going to London Heatrhow, come up front". Og allir sem voru fyrir aftan mig og voru að fara til London þyrptust fram fyrir mig. Ég tuggði tyggjóið mitt ákaft því ég var svo stressuð en gat ekkert gert nema að bíða og það er hræðileg tilfinning.

Loksins kom að mér og ég skellti töskunni minni uppá færibandið. " Ég er að fara til Kaupmannahafnar" sagði ég eins og heimurinn væri að farast. Afgreiðslukonan var voða hress og brosti sínu blíðasta "nú, ertu að fara að fara til Kaupmannahafnar...má ég sjá.....heyrðu, það er allt fullt í vélinni til Kaupmannahafnar". Nú, er fullt spurði ég samt róleg því ég átti miða og þess vegna urðu þau náttúrulega að redda mér á leiðarenda. Konan brosti bara og ég sagði "já, ég sit þá bara á klósettinu á leiðinni.. (Saran bara að gantast)
Svo eftir smá tékk blikkaði konan mig og sagði "ég skelli þér bara á Saga Class".

Þar hafiði það skólastelpan á námslánunum ferðaðist í föruneyti Vigdísar Finnboga á Saga Class og tísti þegar heitu klútarnir komu fyrir matinn og þegar matseðillinn kom með forréttinn "Risa rækjur og humarhalar" og í aðalrétt "lambahryggvöðvi með ostahúðuðum kartöflum".
Gaman að vera að búin að prófa þetta en mér leið hálf kjánalega þegar ég sat þarna og þegar ég labbaði út úr vélinni framhjá fólkinu sem beið eftir að við á fyrsta farrými færum út á undan. Ansas snobb, en fólk borgar víst fyrir betri þjónustu...nema ég...ég er bara slugsi sem græddi á því í þetta skiptið.

posted by benony 11:27:00 e.h.


{miðvikudagur, júlí 27, 2005}

 
Og yndislegur alla tíð var skírður Máni...

Mér finnst ég með eindæmum rík því ég á svo marga góða að og ekki spillir fyrir að ég á tvo gullmola sem ég mun gera allt fyrir as long as I live. Já, ég er nú guðmóðir tveggja lítilla patta. Skírnarathöfnin hans Mána var haldin í Bústaðakirkju og var inní messuathöfn. Tvö önnur lítil börn voru skírð á sama tíma og þar á meðal var Gunnar sögukennari sem ávallt sópaði að sér verðlaunum í FB fyrir að vera besti kennarinn í sömu erindagjörðum þarna og ég þ.e að votta fyrir skírn. Hann var hress og gaman að hitta hann.
Tindur sem er hinn guðsonur minn og er sonur Silla bróður míns vildi ólmur sitja hjá Söru frænku sinni sem iljaði mér óneitanlega um hjartaræturnar því þar sem ég er alltaf í Danmörku þá er ég alltaf svo hrædd um að börnin í fjölskyldunni þekki mig ekki og séu feimin við mig. En við Tindur erum vinir svo mikið er víst ;)

Vinnan mín er búin að taka allan minn tíma og það virðist sem ég sé ALLTAF í vinnunni enda er ég búin að vera að taka tvöfaldar vaktir og læti. Mér líður rosalega vel í vinnunni þó svo að eftir margar vaktir í röð verði maður ansi þreyttur.
Það sem mér finnst skemmtilegast við Ísland er hvað við erum samheldin þjóð og fá og því alltaf þegar maður er í hóp eins og á vinnustað eða í skóla þá getur maður alltaf fundið tengsl við fólkið annarsstaðar frá. Eins og til dæmis er ég að vinna með tveimur skólafélögum frá Odense, vini mínum úr FB, mömmu gamallar vinkonu, eiginkonu fyrrverandi vinnufélaga, vini vinar míns, bróður skólabróðurs í Odense, systur gamallar skólasystur minnar, og svo er bossinn minn stjúpsystir vinkvenna minna. Alltaf nóg að tala um og fólk veit oft hver maður er áður en maður kynnir sig og kynnist því. Mér finnst þetta svolítið sætt. Þetta myndi ekki vera svona ef ég hefði unnið í Danmörku í sumar því þar hefur maður engin tengsl og er bara alltaf sami rauðhærði útlendingurinn.

Samt geri ég ekki annað en að láta mig hlakka til að fara út aftur. Ég veit það er leiðinlegt af mér en ég er enganveginn búin að vera að blómstra hérna á Íslandi í sumar. Það er án efa vinnuhelgarnar sem eru að eyðileggja blómstrunina og til að gefa ykkur dæmi þá er ég á næturvöktum alla verlsunarmannahelgina. jíbbý :)

Að lokum langar mig að óska Eika og Vigdísi til hamingju með litlu stelpuna sem þau fæddu í heiminn nú um daginn.


posted by benony 8:57:00 e.h.


{föstudagur, júlí 15, 2005}

 
Krúttara systir mín.

Nady sys hringdi síðustu helgi alveg æst í mig og sagðist vera búin að kaupa handa mér lottómiða. Ég tek aldrei þátt í lottó og ekki hún heldur þannig að ég var hissa á þessum lottóæsingi í tjellunni. Hún sagði mér þá að hún hafi dreymt okkur tvær í heimahúsi hjá einhverjum þar sem við sátum að spjalli og svo allt í einu eins og hendi væri veifað fylltist allt af skít. Alla nóttina vorum við systur að moka skít en því meira sem við mokuðum því meira kom af þessum blessaða skít.
Ég fékk að velja mér lottómiða og svo sátum við stjarfar yfir tölunum okkar og vorum svo vissar að önnur hvor okkar myndi vinna milljónirnar, það var bara spurning um hvor. Já, það þarf víst ekki að segja ykkur það að við unnum ekki neitt þó við ættum það sannalega skilið eftir allan þennan skítmokstur.

Ef ég fer að byrja að gefa englastjörnur aftur eins og í gamla þá fær systa eina fyrir lottómiðann og svo langar mig að gefa Stinna skólabró og vinnufélaga eina fyrir þetta samtal okkar:

Sara: heyrðu Kristinn
Stinni: já
Sara: ég var að spá, ertu nokkuð til í að skipta við mig um vakt
Stinni: Ekkert mál!!!
Sara: það er þarna sunnudagurinn...
Stinni: já, alveg sjálfsagt!!!
Sara: ég á að vera á morgunvakt og þú á kvöldvakt....
Stinni: já, ekkert mál ég skipti við þig
Sara: já, er það....þetta er sko 24 júlí
Stinni: ekkert mál Sara mín
Sara: ég var alveg búin að æfa ræðu
Stinni: nú já en ég vil endilega gera þetta fyrir þig
Sara: má ég klára að segja samt...sko nefnilega systir mín er að fara að skíra
Stinni: já já, ekkert mál!!!!
Sara: ok, takk :)

Englastjörnu á kappann fyrir að vera svona rosalega til í að gera mér greiða.

Annars er ég lurkum laminn af harðsperrum og marblettum. Fór í brenno og skotbolta með genginu og komst að því að strákar þrykkja mun fastar í dag heldur en fyrir 15 árum síðan enda kannski búnir að stækka og þroskast smá síðan þá. En þetta var GG (good game)

posted by benony 2:13:00 f.h.


{föstudagur, júlí 08, 2005}

 















Þarna erum við frænkurnar.

Gunna frænka var að setja inn myndir frá brúðkaupi Simma og Bryndísar.
Hér eru þær

posted by benony 1:02:00 e.h.
 
Skrýtið að vera vöknuð klukkan 6...

...enda ekki vani minn að vera mjög morgunhress. Nú er ég búin að vera á næturvaktatörn þannig að sólarhringurinn minn er í einhverju rugli. Ég er bara búin að vera að lesa í bók því mamma og pabbi og steinsofandi og ekkert skemmtileg til viðræðu.

Mér finnst annars frábært að vera byrjuð að vinna. Margir nýir byrjaðir en samt líka nokkrir af þeim gömlu. Ég var svo heppin að byrja á næturvöktum með Togga vini mínum og við náðum alveg nokkrum trúnóum enda lítið að gera á nóttunni þegar allir sofa.

Ég svaf svo allan daginn í gær af mér meðan sprengjurnar í London sprungu og var því alveg ringluð þegar ég kveikti á sjónvarpinu í gærkvöldi og sá hvað hafði gerst. Þetta ætlar engan endi að taka... Ég fékk email frá Ásu vinkonu minni fyrir þrem dögum síðan þar sem hún sagði frá ævintýrum sínum. Hún hafði verið stödd í London að taka lestina upp á Heatrhow og þá var þeim sagt að hlaupa úr lestinni því það hafði borist sprengjuhótun. Ég þakka Guði fyrir að Ása mín hafi ekki lent í alvöru sprengjunni, en þetta hefur verið undanfari þess sem seinna kom.

Hryðjuverk sem þessi eru komin af svo miklu hatri gerandans en bitnar alltaf á saklausu fólki. Heimurinn er svo vitlaus

posted by benony 10:09:00 f.h.


{þriðjudagur, júlí 05, 2005}

 
hellú

Kerlingin er svona eiturhress þessa dagana. Átti svo skemmtilega helgi í faðmi góðra og klikkaðra vina sem láta ekkert aftra sér í að vera sniðugir og skemmtilegir. Við hittumst heima hjá Dóra bæði fös- og laugardagskvöld áður en við streymdum niður í bæ. Ég og Birna hans Jóa töluðum um hve mikið okkur langaði til að dansa. Einhver guð á himni lét okkur verða að ósk okkar og bæði kvöldin vorum við on FFFFIIIIIRREEE á dansgólfinu. Ekki ónýtt að dansa við tóna frá Gullfoss og Geysi.

Til þess að passa upp á að ég kæmist heil í gegnum þessa helgi eignaðist ég lífvörð sem sá um að halda öllum óæskilegum karlmönnum frá því jú það getur verið hættulegt að vera "Ungfrú Kolding" og dóttir ríkasta mannsins í Danmörku. :)

Svo tók ég mig til og rústaði liðinu í Fúsball inná 22, svei mér þá!

Ekki má gleyma litla unglingspiltinum sem hrópaði á mig rosa æstur "Rauðhærðar Konur eru 25% graðari!!!!". Ég náttúrulega gat ekki látið þetta eiga sig og notaði kjaftakerlingatóninn minn "nehh, hvað seegirðu...25%??? Eru þeir bara búnir að mæla þetta??"
Þannig að þá hafið þið það þeir eru búnir að mæla þetta þannig að þetta er satt og rétt!!

ótrúlega skemmtileg helgi að baki og nú er ég bara byrjuð að vinna. :)

posted by benony 8:57:00 e.h.


{föstudagur, júlí 01, 2005}

 
Ekki amalegt að fá sms þar sem stendur...

"elska þig ávallt sæta sæta" og uppgötva svo eftir fiðrildaflug í mallanum og með roðnandi kinnar að þetta var bara vitlaust númer.

posted by benony 2:46:00 f.h.


{miðvikudagur, júní 29, 2005}

 
Mér var sagt að ég ætti þriggja ára bloggafmæli....


Ekki slæmt það. Fyrir þremur árum voru heldur betur tímamót hjá mér. Ég byrjaði að blogga og setti hugsanir og upplifanir á netið fyrir alla sem vildu fylgjast með. Ég flutti líka til Danmerkur fyrir þremur árum þannig að það var bara allt að gerast. Þetta skrifaði fjórði kynþokkafyllsti maður Íslands þegar ég hóf ritstörf mín fyrir þremur árum Fyndnust er fyrirsögnin "allt er nú til" hahahaha

hamingjuóskir takk :p

posted by benony 7:33:00 e.h.
 
Hvað ætli ég hafi setið oft í tólfunni??

Ég sat og beið eftir strætó í góðu yfirlæti þegar þrír pattar um 10 ára aldurinn gengu framhjá strætóskýlinu sem ég sat inní. Einn pattanna kíkti inn í skýlið horfði smá stund á mig og sagði svo smámæltri röddu"AÐLLÐREi, ðetjaðst inní ðtrætó ðþaððr ðþem kona eðð við ðtýðði" . Ég hlustaði á unga piltinn og þýddi þetta sem svo að ef ég sæi konu undir stýri í strætisvagninum þá ætti ég að afþakka farið og af tóninum í röddu hans að dæma átti ég bara hlaupa eins hratt og ég gæti frá. Sem betur fer var karl um sjötugt að keyra þessa ferð þannig að ég gat óhult skellt mér inní vagninn. Þennan karl þekki ég í sjón fyrir það eitt að vera strætóbílstjóri tólfunnar og hefur oft skutlað mér til vinnu eða eitt og annað í gegnum árin. Hann er því vanur og þó sjóninn sé farin að segja til sín þá getur hann keyrt þessa leið algjörlega blindandi.
Já, það er eins gott að ungu piltarnir vöruðu mig við...úff þetta hefði getað farið illa.

posted by benony 2:54:00 f.h.


{sunnudagur, júní 26, 2005}

 
Ég gerði þann feil í gær að fara í einn ljósatíma á stofu sem er með rosa sterkar perur. Drífa átti kort og hún vildi endilega splæsa á mig einn tíma svo við fengjum nú smá lit í andlitið og yrðum svona ferskar. Niðurstöður þessarar ferðar okkar var sú að ég sem áður var hvítari en allt það sem hvítt er þoldi ekki styrk peranna og fékk því hörundslit sem er rauðari en allt sem rautt er.

Eftir að hafa verið með Brynju og Drífu heima hjá Nady sys þá fórum við heim að gera okkur til fyrir djammið. Ég fór í flotta bolinn minn sem ég fékk í afmælisgjöf sem er opinn í bakið og sá þá mér til skelfingar að bakið mitt var ekki það fallegasta, þar sem það var náttúrulega í brunarústum og svona nokkrir blettir á stangli sem voru samt enn skjannahvítir. Ég setti hendurnar upp fyrir haus og sá þá blasa við hvíta handleggi undir en samt svona rauð lína eftir höndunum. Þetta var náttúrulega ekki að gera sig en hvað átti ég að gera?? Ég ákvað með sjálfri mér að það myndi engin taka eftir þessu inni á skemmtistöðum bæjarins. Það er jú svo dimmt þannig að ég gæti alveg labbað inn á alla staði sveiflandi hárinu eins og brjálæðingur án þess að virka nokkuð rugluð og asnaleg með mínar brunarústir.

Ég stóð mig svo að því að standa á miðjum Laugavegi klukkan hálf fjögur í nótt að sýna gestum og gangandi brunarústirnar mínar...alveg rosa stolt. ;) Og svo inni á Select var ein brunarústarsýning líka svona meðan ég og félagarnir borðuðum pulsu með kartöflusalati. Ég veit ekki hvaða áhyggjur þetta voru í mér í byrjun ef ég var svo bara að gorta mig af þriðjastigs brunasárinu (smá ýkt) sem mér hafði áskotnast. Ég fékk viðurnefnið Barbapabbi þetta kvöldið.

posted by benony 4:52:00 e.h.


{fimmtudagur, júní 23, 2005}

 
Vinachill

Ég er búin að taka vikuna svolítið skipulega. Hitti alltaf einhverja vini á hverjum degi. Mánudagskvöldið var Hábergshangs með Brynslu og Drífslu. Við horfðum meðal annars á box og fleira skemmtilegt og öskrin létu ekki á sér standa. Þriðjudagskvöldið var kaffihúsakvöld með Joe þar sem allnokkur gullkorn féllu af hans vörum eins og við var að búast. "Sara, er sonur systur þinnar blökkumaður?". Miðvikudagskvöldið var svo tekið á Thorvaldsen með Lárunni þar sem við sátum og hneyksluðumst gasalega mikið á því hvað allir væru að þykjast vera eitthvað þarna inni, stóðum svo upp, settum sólgleraugun upp, glossuðum vel og löbbuðum svo löturhægt og uppreistar út af staðnum. :p Planið er svo að hitta HÁS á morgun. Það verður stúð.

Ég er öll heit í andlitinu eftir daginn. Yndislegur dagur að baki með systur minni og sonum hennar (blökkumönnunum). Vorum að dúlla okkur í Grasagarðinum í Laugardalnum og svo kom Silli bróðir beint frá Kúbu til að joina okkur ásamt Margréti sinni og litla Guðsyni mínum. Ég er svo að fara að skutla þeim upp á völl í nótt og fæ að hafa bílinn þeirra í láni meðan þau eru í DK. Ekki amalegt.

That´s all for now...

posted by benony 12:57:00 f.h.


{þriðjudagur, júní 21, 2005}

 
Ég er að njóta mín...

...eins mikið og ég get þar sem ég er í fríi núna. Ég sef út og þegar ég vakna sest ég fyrir framan skjá einn og horfi á myndbönd. Verð að koma mér inní hvað er í gangi hérna á Íslandi. Reyndar ekkert voða spennandi tónlist þarna á ferð. Svo er tölvan næst á dagskrá, er ég búin að fá póst eða ætli vinirnir séu búnir að blogga eitthvað. Best ég bloggi eina færslu eða svo. Spjalla við vinkonurnar í leiðinni sem eru að vinna. Já, allir að vinna!! Ætli sé ekki bara sterkur leikur að fá mér göngutúr...skoða hverfið mitt eða labba niður að elliðaá.
Stuð og stemmning í fríi. :p

posted by benony 4:41:00 e.h.


{mánudagur, júní 20, 2005}

 
Þar sem ég er á Íslandi núna getið þið náð í mig í síma 662-1249.

posted by benony 4:16:00 e.h.
 
Shalalala....

Ævintýrin eru alltaf að gerast svo mikið er víst. Ég kom til Íslands á föstudaginn 17 júní strax eftir fys B prófið og já, það var heldur betur ævintýraferð. Ég var samferða Kötu og ég held svei mér þá að við höfum hlegið alla flugferðina því jú jú, það munaði svo viðbjóðslega litlu að við höfum misst af flugvélinni að ég fæ alltaf angistarhroll þegar ég hugsa um það.

Við mættum smá seint í tékkið en það var samt í lagi því það var nógur tími. Konan sem afgreiddi okkur brýndi samt fyrir okkur að koma fyrr næst og við skildum ekkert í því hvaða stress þetta væri í konunni. En játtum því bara án þess að spurja frekar út í það. Við vorum heldur ekkert hissa að við vorum eina fólkið að tékka sig inn og vorum heldur ekkert hissa að við þurftum ekkert að bíða í röð. Við komum svo upp og settumst inn á einhvern subbubar þarna og Kata fékk sér sígó. Við sátum smá stund þarna uppi að kjafta og eftir smá tíma var ég farin að vera smá óróleg og spyr hvort við ættum ekki að fara að koma okkur að gateinu því vélin væri nú örugglega bráðum að fara að fara. Kata segir að hún þurfi að fara á klósettið og svo ætlaði að fá sér eina sígó í viðbót. Eftir sígó stöndum við svo upp og löbbum í átt að klósettunum og mér verður litið á skjáinn. Jú jú, það stóð ekki last call á skjánum fyrir Keflavík heldur það stóð fokking CLOSING. Ég argaði upp yfir mig "KATA, CLOSING!!!!" og byrjaði svo bara að hlaupa eins og vitleysingur. Kata hrópaði fyrir aftan mig "Sara mín, þetta er icelandair, við erum að fara með express". Við héldum áfram að hlaupa og ég hrópa "Nei þetta er express ég sá það". Svo komum við að gateinu og það var verið að loka vélinni.

Ég var í hálfgerðu móðursýkiskasti þegar ég kom inn í vélina og gat ekki hætt að hristast og hlægja. úff, þar munaði litlu. Í svefngalsa og eftirköstum af sjokkinu okkar fannst okkur allt fyndið sem gerðist í flugferðinni.

Á laugardaginn var ég svo í brúðkaupi hjá frænda mínum. Yndislegt að heyra Páll Óskar og Monicu syngja og spila í kirkjunni og frábært að skemmta sér með frændsystkinum sínum. Mér finnst svo gaman í brúðkaupum að ég var farin að díla við ógiftu pörin. "Ef þið giftið ykkur næsta sumar þá skal ég strippa". Það var tekið rosa vel í þetta og ég býst við rosa business næsta sumar. ;)

Svo eyddi ég öllum deginum í gær hjá systur minni og litla 2 mánaða gamla engilsins sem ég hitti í fyrsta sinn í gær. Hann er yndislegur og brosti svo fallega við frænku sinni. Svo lá hann um kvöldið sofandi í hjónarúminu og ég lagðist við hliðina og byrjaði að syngja rólega og lágt í eyrað hans. Svo leit ég á hann og þarna lá hann með lokuð augun en bros á vörum. Hve yndislegur er hægt að vera. Við verðum góð saman :)

posted by benony 3:22:00 e.h.


{miðvikudagur, júní 15, 2005}

 
Samtal feðgina

Ring ring

Faðirinn: Halló
Dóttirin: Hæ pabbi
Faðirinn: Hæ, elskan!!! Hvernig gengur??
Dóttirin: æi, ég er svo stressuð
Faðirinn: Já, þú ert alltaf svo stressuð
Dóttirin: nei, æ sko...ég er að fara í próf eftir 2 daga og ég sé ekki fram á að ná að fara yfir allt efnið.
Faðirinn: Já, afhverju skipuleggur þú þig ekki betur??????
Dóttirin: ég skipulegg mig vel....það er bara svo mikið efni!!! Ég er fram á nótt en næ aldrei að fara yfir það sem ég ætlaði mér yfir daginn
Faðirinn: já!!! Þetta er djöfullegt hjá ykkur
Dóttirin: já (rosa vælutónn)
Faðirinn: sko hlustaðu nú á mig (rosa ákveðinn)
Dóttirin: ok
Faðirinn: þú mátt ekki gefa þessu svona miklar tilfinningar...þú skalt bara vera ligeglad
Dóttirin: Ligeglad?? En þetta skiptir svo miklu máli fyrir mig
Faðirinn: já, en þú átt bara að skipta um hugsunarhátt..þetta er bara próf og þú segir bara fuck you
Dóttirin:
Faðirinn: þú heldur bara áfram þínu striki næstu 2 daga og ferð svo bara í prófið og NAUÐGAR því
Dóttirin: nauðga?
Faðirinn: já, bara beint í rassgatið og enga væmni....bara í rassgatið með það og segðu bara FUCK YOU og gerir þitt besta
Dóttirin: já, ég geri það þá pabbi
Faðirinn: og mundu, engar tilfinningar
Dóttirin: ok, pabbi minn
Faðirinn: svo sjáum við þig á föstudaginn...við hlökkum svo til að fá þig
Dóttirin: já, ég hlakka til að koma til ykkar
Faðirinn: gangi þér vel elskan mín
Dóttirin: takk pabbi
Faðirinn: bless
Dóttirin: bæ bæ

posted by benony 10:41:00 e.h.


{sunnudagur, júní 12, 2005}

 
Sjö litlir andarungar....

....urðu svo bara sex í lok dags.

Já, það voru litlir andarungar sem biðu okkar í dag í garðportinu fyrir utan lessalinn okkar. Það var önd sem var með hreiður þarna og ungarnir voru búnir að klekjast út einn af öðrum síðastliðna nótt og voru því sprækir að elta mömmu sína í dag.
Við Elva ásamt einum dönskum gutta vorum dugleg að kíkja eftir öndinni og ungunum því það var alltaf einhver bévítans kráka að skipta sér að þeim. Hún sat uppá þaki og steypti sér annaðslagið niður á ungana. Öndin var alveg tryllt og gargaði á krákuna og litlu ungarnir tístu og skildu ekkert í því hvað var að gerast. Við vorum alltaf að hlaupa út til að reka krákuna frá en hún virtist ekkert vera hrædd við okkur. Ætluðum að henda steinum í hana en eins gott að við gerðum það ekki því við hefðum pottþétt brotið einhverja glugga og það hefði ekki verið sterkur leikur.

En já, hugsið ykkur, ég sit niðursokkin í bókina þegar Elva kemur hlaupandi að mér og segir mér að krákan sé að éta einn ungan lifandi. Ég stekk upp og þá er krákan horfin á braut með litla ungan í kjaftinum. Hve sorglegt er þetta...bara sex ungar eftir. Öndin búin að missa barnið sitt ....ég meina ungan sinn og litlu ungarnir búnir að missa systkini.

Ég fór mikið að pæla í því hvað lífið væri eitthvað grimmt. Þarna fæðast þessir ungar og eru strax komnir í lífshættu og stríð og eru að berjast fyrir lífi sínu. Og eitt annað...HVAR VAR ANDARPABBI???? Týpískt alveg. Ég er alveg búin að taka eftir því núna í vor að það eru alltaf tvær endur saman í pörum...karlkyns og kvenkynsendur að rölta í rólegheitum. En jú, svo kemur sumar og karlendurnar eru búnir að barna...ég meina unga kvenendurnar og þá eru þær bara skildar eftir með ekkert minna en sjö unga til að passa fyrir krákum og öðrum brjálæðingum. Alveg týpískt sko...
Sjö unga einstæð andarmamma varð fyrir því að kráka borðaði nýfæddan ungan hennar fyrir framan augun á henni. Þetta er forsíðufrétt!!!!!

Ég hata krákur.

Og já, ég borðaði kjúkling í hádeginu.

posted by benony 1:10:00 f.h.


{fimmtudagur, júní 09, 2005}

 
Krónískur hausverkur...

....lesleiði...pirringur og þreyta....en tilhugsunin um að það er vika þangað til að ég faðma mömmu og Dóra uppá flugvelli heldur lífinu í mér.

Mikið rosalega er ég stolt af vinum mínum hérna í Danmörku...þetta er allt svo duglegt fólk...öll að puða í prófum í júnímánuði. Ótrúlega ánægð með ykkur. :)

Gauti er að útskrifast núna og því að kveðja okkur. Krakkarnir ætla út að borða til að fagna með honum og kveðja hann. Hann er bara á síðustu sentimetrunum að verða læknir karlinn og búinn að fá stöðu á Akureyri. Ég næ því miður ekki að fagna með honum og krökkunum því ég verð komin í faðm familíunnar og vina minna sem sjá mig alltof sjaldan. Mun sakna Gautans á dansgólfinu :)

Jæja, þarf að halda áfram að lesa. Alltaf fyrir þessi próf er maður að efast getu sína en Elva vinkona mín peppar mig upp...við skiptumst á að arga á hvor aðra....eins og um daginn var ég eitthvað niðurdregin og þá sagði hún "Sara, þú eeert svoooo langt frá því að vera heeeimsk". Mér leið strax miklu betur hahahaha

posted by benony 10:42:00 e.h.


{miðvikudagur, júní 08, 2005}

 
Var að skríða inn...

...til mín og klukkan er hálf eitt og því komið fram yfir afmælisdaginn hennar Valdísar. Þó ég sé búin að knúsa hana afmælisknús þá langaði mig að segja heiminum frá því að Valdís varð 25 ára í gær 7 júní. Til hamingju krúttarapútt. Ég hugsa rosa fallega til þín.

Annars prufukeyrðum við fimm stelpur saman nýjan Opel í dag á milli lestratarna. Einn íslenskur maður var að safna fólki til að prufukeyra hann til að geta svo fengið að eiga hann. Við náttúrulega skelltum okkur uppí kaggann og þóttumst eiga heiminn því ekki á hverjum degi sem maður keyrir bíl hérna. Fórum og keyptum okkur ís og svo til baka aftur.

Við hlægjum ansi mikið stelpurnar í pásunum...ég held að það haldi lífinu í okkur. Ég er í því að snúa öllu sem Elva mín segir uppí eitthvað rugl. Eins og t.d:

Elva: Sara, við kýlum bara á þetta
Sara: Kýli???? ertu að segja að ég sé bólugrafin???

Elva: Já, ég fíla það
Sara: fíll???? ertu að segja að ég sé feit???

Þetta er svo lélegt en samt hlægjum við eins og....eins og....eitthvað.
Reyndar hló ég kannski meira og Elva sagði eiginlega bara:
Elva: þú ert svo leiðinleg!!!!
hahahhahaha

Svo fengum við fimm fræknu (Ég, Elva, Ragnheiður, Helena og Hjördís) hláturskrampa af því að pæla í orðinu afsakið. Eins og maður yrði voða dramatískur og segði AF-Sakið mig, gerið það fyrir mig Af-sakið mig!!!"

En hvað er ég að segja frá þessu....alveg had to be there moment.

En hláturinn lengir lífið...ég ætla að segja það við sjúklingana mína og kitla þá alltaf þegar þeir koma í vitjun til mín. Haldið að ég verði nokkuð óþolandi???

posted by benony 12:22:00 f.h.


{mánudagur, júní 06, 2005}

 
Samtal mæðgna

Dóttir:
hvernig líst þér á að fá geirmund valtýs fyrir tengdason?
Móðir:
Svaka stuð, stendur það til?
Dóttir:

Móðir:
hann og pabbi þinn geta farið á Nikkabar saman
Dóttir:
Alveg í sveiflu, hann er nú svo lekker mamma
Móðir:
rosalega *á innsoginu*
Dóttir:
ég gæti hösslað hann á að ég búi rétt hjá kim larsen
Móðir:
höslaðu frekar kim
Dóttir:
ojj, hann er ógeð
Móðir:
er hann meira oj en Geirmundur
Dóttir:
ég get svo svarið það já, Kim er alltaf fullur....Mundi er meira elegant
Dóttir
en ég held að ég mundi fá rokkprik ef ég hösslaði Kim samt...eða bara ekki...hann er töff en bara svo helv*** ógirnilegur
Móðir:
en þú fengir ekki rokkprik ef þú hösslaðir Geira
Dóttir:
ertu viss? Hann er nú rokkari inn við beinið karlinn
Dóttir:
hann gæti verið með gigg hérna á ryans
Móðir:
hahahahahahahahaha, það yrði sko fjör
Dóttir:
greyið stelpurnar þyrftu að elta mig að horfa á munda troða upp
Móðir:
hahahahahahahahahahahhaa
hann bíður hérna heima
Dóttir:
hver?
Móðir:
hann hvíti prinsinn á hestinum
Dóttir:
mundi þá??
Móðir:
of course my dear, who else is there
Dóttir:
Tíhíhíhíhíhíhíhi
Móðir:
það er svo mikið af hestum í Skagafirðinum
Dóttir:
hahahahhahahahahaa

posted by benony 12:39:00 f.h.


{fimmtudagur, júní 02, 2005}

 
Kom heim úr prófi....

....kastaði af mér fötunum, sveiflaði hárinu og henti mér undir sæng og svaf svefn hinna þreyttu. Kannski smá ýkt en já, það var gott að sofa þó svo að það væri miður dagur og bjart úti.

Ég var svo vakin við símann þar sem eins mánaða gamall systursonur minn umlaði og hjalaði svo fallega í símann. Get ekki sagt annað en að það var yndislegt að vakna við litla manninn sem er víst búinn að heita allt stafrófið. Við eigum eftir að vera góð saman ;)

Nú byrja ég á fysiologi B undirbúningi á morgun og það er kominn einhver trylltur karl í hausinn á mér sem er öskrandi á mig!! Já, þú bara tekur þetta!!! er hann alltaf að öskra. Er að spá í að segja honum að róa sig smá og kannski öskra smá á mig ef ég slaka eitthvað...spurning hvort ég geti stjórnað honum. En já, ég hljóma on the edge tíhíhí

posted by benony 1:20:00 f.h.


{miðvikudagur, júní 01, 2005}

 
Nú megið þið hugsa fallega til mín...

er nefnilega að fara í próf núna. Ég er eitthvað rosalega hrædd við þetta...en ég segi bara fuck you próf, ég geri mitt besta.

posted by benony 7:46:00 f.h.


{mánudagur, maí 30, 2005}

 
Guðsonur minn er 2 ára í dag...

Já, það eru tvö ár síðan hann Tindur litli fæddist. Dagurinn sem hann fæddist var stór dagur í fjölskyldunni okkar. Ég fékk að vita þennan dag fyrir tveimur árum að ég hafi komist inn í læknisfræði og ég held svei mér þá að öskrin og hoppin í mér hérna í Danmörku hafi valdið því að Margrét fékk hríðir á Íslandi og fæddi yndislegan og sætan strák.
Tindur þekkir mig ekkert voðalega mikið en ég ætla sko aldeilis að breyta því nú í sumar. Ég þarf að lauma að honum allskonar góðgæti og vera rosalega skemmtileg þannig að ég verði nú örugglega uppáhalds og svo hann muni nú eftir mér kannski smá næst þegar ég kem til Íslands.

posted by benony 8:52:00 e.h.


{föstudagur, maí 27, 2005}

 
Þetta er náttúrulega bara ótrúlegt....

...ég get ekki talað um annað en veðrið að svo stöddu. Það á að vera 26 gráður í dag og spáð 30 gráðum á morgun. Ég sit heima með gluggann upp á gátt en þrái náttúrulega mest að vera úti að lenda í ævintýrum en það þýðir samt ekkert að hugsa svona. Allir sáttir og sællegir þeir sem úti eru, en danskir námsmenn eru í felum inni hjá sér. En það er náttúrulega líka bara rugl að hafa prófin í júní eins og er hérna úti.

Í gær þegar ég var orðin þreytt og pirruð yfir bókunum lenti ég í samtali við Bryndísi vinkonu á msn:

Sara says: ég nenni þessu ekki lengur...ég er hætt...farin heim
Bryndís says: ha?
Sara says: já, bara búið, bless
Bryndís says: heim til Íslands eða bara á pjente?
Sara says: Íslands
Bryndís says: hahahahahahhaha

Ég er tekin svo alvarlega hérna :)

Fór svo að fá mér Pizzu með Kötlu og hittum Davíð á leiðinni sem kom með okkur. Ég fékk munnræpu og hafði ekki tíma til að borða pizzuna og labbaði því heim á leið með hálfétna pizzu og fulla kókflösku. Ég verð eitthvað svo furðuleg í próflestri. Annað hvort er ég pirruð og stressuð eða bara samkjafta ekki og hlæ að ÖLLU. Sat í tíma áðan og fór að flissa því mér fannst André sænski segja hjerte svo fyndið. "HJEEERTEE" tíhíhíhí
Veit ekki hvernig ég verð eftir daginn...mmmm, spennandi, ég læt ykkur vita :)

posted by benony 12:07:00 e.h.


{fimmtudagur, maí 26, 2005}

 
Tjéddlingin fersk...


Loksins nádi ég ad vakna fyrir 8 og mæta uppí skóla. Katla og ég hjóludum saman og thad er sama hvort madur hjóli hægt madur verdur alltaf pungsveittur og girnilegur. Thad er komid sumar í Danmörku, rakinn er mikill og svo er ordid svo hlýtt. Thad er meira ad segja spád 30 grádum um helgina. Mér finnst thad alltof mikid, sérstaklega thar sem ég veit ad ég verd lokud inni yfir bókunum, nefnilega próf eftir helgi. Ég thrái svo heitt ad standa mig á thví prófi...langar svo ad byrja á thridja ári hreinu næsta haust. koma svoooo "green eyes, I want you to fly"

En já, ég er á leidinni heim, ætla ad fara ad kaupa mér sjampoo og hárnæringu, thvo pungsvitann og koma mér vel fyrir med einhvad smá gódgæti og hakka í mig lesefnid. Thid hugsid bara fallega til mín ik´os??

posted by benony 10:19:00 f.h.


{þriðjudagur, maí 24, 2005}

 
Ég elska þegar ég upplifi....

...að þegar ég hlusta á lag og fatta allt í einu um hvað textinn er. Það er nefnilega svo oft sem ég babla og raula með einhverju lagi en veit ekkert um hvað ég er að syngja. En stundum hlusta ég á það sem er verið að segja með textanum og þá öðlaðst lagið meiri gildi og verður betra fyrir vikið. Þ.e ef textinn er ekki "Cool wibes, why don't you kill me" eins og einn Eurovision textinn var. Lagið varð bara vont fyrir vikið að mínu mati.

Uppáhalds Coldplay lagið mitt Warning sign hefur nú öðlast meira gildi...

A warning sign
I missed the good part, then I realised
I started looking and the bubble burst
I started looking for excuses

viðlag

A warning sign
It came back to haunt me, and I realised
That you were an island and I passed you by
And you were an island to discover

Come on in
I've gotta tell you what a state I'm in
I've gotta tell you in my loudest tones
That I started looking for a warning sign

When the truth is, I miss you
Yeah the truth is, that I miss you so

Allir lent í því að leita að warning signs myndi maður halda, ég er alveg meistari í því :P

Annars held ég að ég sé að springa og held að besta ráðið sé að fara að sofa núna og vakna bara allt öðruvísi týpa á morgun. Er að spá í að vera rosalega jákvæð þegar ég vakna á morgun og finnast biokemi léttast í heimi. Ég er líka að spá í að vera rosa kröftug og með mikla einbeitingu. Taka tvöfaldan dag á morgun amk :p

Annars kom Davíð með pizzu fyrr í kvöld og það gerði mér gott. Svo hitti ég Kötlu í morgun og þar með er upptalið það fólk sem ég hitti í dag. Maður vill verða hálf einokaður í próflestri. Kannski ég kíki bara uppí skóla á morgun og læri þar.

Og já, að lokum. Saran klæðist svörtum boxernærbuxum af bróður sínum þar sem ekkert annað var hreint. Eruð þið ekki glöð að vita?? tíhíhíhí

posted by benony 11:22:00 e.h.
 
Ég er stúlka...

...sem er á þrítugsaldri
...sem grét alltaf á afmælisdögum á barnsaldri af hræðslu við að eldast
...sem er að koma heim til Íslands eftir 24 daga
...sem er búin í prófum eftir 24 daga
...sem langar að syngja í Eurovision
...sem langar að syngja inn á plötu
...sem er samt líka bara mest glöð að syngja í brúðkaupum og skírnum
...sem er að fara að syngja í skírn í sumar
...sem segir lélega brandara og hlær hæst sjálf
...sem er næstum einn þriðji læknir
...sem er stolt af mömmu sinni
...sem á mömmu sem er blondína
...sem á pabba sem er alltaf í skóla
...sem á svo mikið af góðum vinum
...sem leiðist...og man ekki meir í augnablikinu

posted by benony 12:40:00 f.h.


{mánudagur, maí 23, 2005}

 
Þið klakabúar getið nú farið að láta ykkur hlakka til....

...því nú er ég að fara að koma og gera allt vitlaust. Ég er komin með miðann og kem heim eftir 25 daga. Ég heyrði að það ætti að vera voða hátíðarhöld vegna komu minnar til landsins. Þúsundir manna að tala um að fjölmenna niðri í bæ til að borða kandífloss. Ég er bara snortin sko.. Takk fyrir stuðningin kæru landsmenn, við sjáumst þegar ég lendi á Íslandi kl 22 þann 17 júní.

posted by benony 2:42:00 e.h.


{föstudagur, maí 20, 2005}

 
Athyglin var mín....

...ég braut nokkra diska uppí skóla bara svona til að fólk mundi nú örugglega taka eftir mér. Var bara að ganga frá matnum mínum og lagði diskinn minn efst ofaná stafla af diskum. Jú jú staflinn hrundi ásamt glösum sem lágu við hliðina allt á gólfið bara *SPLASS* *KLIN* *KLAKS*. Ég var eitthvað að einbeita mér að bjarga einhverju en allt hrundi á hvort annað og þetta var bara katastrófía. Svo þegar ég það varð þögn í leirtauinu og þau voru hætt að splassast í gólfið þá leit ég upp og þá var búið að myndast svona hringur í kringum mig. Ég brosti eldrauð í framan framaní áhorfendurnar og þá fór allur matsalurinn að hlægja. (Var að hugsa um að hneigja mig) Ekki leið að löngu áður en pirruð eldhússtelpa kom til að þrífa eftir mig og ég hékk eitthvað vandræðaleg í kringum hana og spurði hvort ég gæti hjálpað henni því þetta væri eiginlega mér að kenna en þá sagði hún bara "Det er ikke kun din skyld...bare gaa". Þannig að ég læddist burt.
Arna kom svo hlægjandi úr tíma og sagði "hahaha, voru lætin í þér...mér datt það í hug". Hún sagði mér að kennarinn hennar hafi hlaupið úr tíma þegar brothljóðin ómuðu um allt.

Svo er ég svo leið yfir að Selma komst ekki áfram í lokakeppnina. Leiðinlegt fyrir hana bara þar sem ALLIR voru svo vissir um að við myndum taka þetta. Svo var Lovísa að dansa þarna og leiðinlegt fyrir hana að komast ekki í lokakeppnina. Ætli við eigum nokkurn tímann eftir að komast upp úr þessari undankeppni. Ekki nema að við setjum trompið út næst og sendum RealFLavaz :) Þá rústum við þessu.
En ég var samt svo stolt af honum Jakob líka sem söng fyrir Danmörk, hann er líka frá Odense og ég hef séð hann í Rosengaardcenter...já, snertið mig bara!!! ÁFRAM DANMÖRK!!!!!!!!

Annars er ég að hugsa um að shake my bootie í kvöld...ég á það skilið, er búin að vera dugleg að lesa!

posted by benony 4:25:00 e.h.


{miðvikudagur, maí 18, 2005}

 
Í dag...

...hló ég svo mikið að eigin fyndni að tárin láku í stríðum straumum. Mér fannst ég svo ótrúlega sniðug eitthvað en það skrýtna var að tárin láku ekki niður kinnarnar heldur fóru upp á nefið og láku svo eins og foss niður af nefbroddinum. Spurning hvort hallinn á hausnum hafi verið í einhverja skrýtna átt. Held bara að ég hafi kastað höfðinu svona til í hlásturskastinu. Já, svona finnst manni, maður sjálfur vera fyndinn.

posted by benony 11:10:00 e.h.
 
Að halda sönsum í próflestri...

1) Alltaf vera hrein og sæt og því sátt við sjálfan sig...gefur meiri orku. Ég hef oft verið í keppni við sjálfan mig í prófum um hve viðbjóðsleg ég get orðið, en nú hef ég ákveðið að vera alltaf tilhöfð fyrir hvern lestrardag. Sjáum hvað ég næ að halda því lengi :)

2) Finna eitthvað til að hlakka til, eins og t.d hlakka til að sjá hvað er í matinn og hlakka til að njóta hádegismatarins og kvöldmatsins í kantínunni. Svo hlakka ég til pjásupartýsins þar sem bara pjásur verða til staðar og það er bannað að klæðast fötum neðan mittis :p. Ohh, hlakka svo til :p

3) Bregða Elvu svo sem einu sinni á dag, gefur deginum gildi

4) Hugsa aðeins smá stund um hvað ég ætla að gera skemmtilegt í sumar

5)Labba út á stétt og anda að mér sumrinu

6) Brosa til fólks sem ég veit ekkert um nema að það er alltaf að lesa á sama stað og ég og því skiljum við hvort annað.

7)Bulla aðeins í pásum

8)Taka eins og eitt dansspor eða dilla rassinum þegar ég labba inní lessalnum þar sem allir eru grúfðir ofaní bækurnar

9)Prófa að ropa í þögninni í lessalnum og sjá hvað gerist

10) Fá sms :)

En þess á milli er það bara Lífefnafræði.

posted by benony 12:10:00 f.h.


{mánudagur, maí 16, 2005}

 
Fredagsbarinn...

...á föstudaginn kíktum við á Fredagsbarinn þegar við sátum í skólanum að lesa. Fredagsbarinn varð 20 ára og þess vegna var til sölu lagkage og brunsviger ásamt öl og cola. Þar sem það var svo dejligt veður úti þá sátu allir úti og það spilaði hljómsveit undir öldrykkjunni og allir voru glaðir. Btw mig langar reyndar að koma mér í svona band eins og þeir voru með þarna...svona flott soultónlist...svona sörugæsahúðatónlist sem fá mig til að elska lífið.
En allavega...við lestrarhestarnir ég, Elva, Nusha, Shailajah, Bryndís og Gummi tókum okkur smá pásu til að kíkja á fjörið og áttum yndislega stund. Ég leit yfir hópinn af fólkinu sem sat að sötra og sá hvað allir voru eitthvað útiteknir. Leit svo yfir vinahópinn minn og við vorum öll eitthvað svo hvít, þá fyrir utan Nushu og Shailajuh auðvitað. Ég skildi ekkert í þessu...eru hinir ekki í skóla eins og við og í próflestri? hugsaði ég. En jú, ég varð abbó út í útitekna liðið.

Í dag var svo æðislegt veður, sól og blíða og alveg steik á svölunum mínum. Og viti menn, ég er alveg eldrauð og sælleg í andlitinu, með smá bolafar og allt :) Nú get ég haldið áfram að sitja inni og lesa, ég lýsi upp í myrkrinu með fallega rjóða húðlitnum mínum núna. Lífið er ljúft.

posted by benony 1:59:00 f.h.


{sunnudagur, maí 15, 2005}

 
Case..

Fór á case-fund í gær með íslensku læknanemunum. Harpa var með case um nýrnasjúkdóm sem leiddi til kölkunar æða og sármyndunar á húð. Íslensku læknanemarnir hérna í Odense eru alltaf með svona case annan hvorn laugardag þar sem reynt er að komast að hvað amar að sjúklingnum með að spurja út í allskonar prófanir og sjá hvað kemur út. Þar sem ég hef ekki svo mikla vitneskju ennþá þá fylgdist ég með eldri nemendunum blómstra og lærði af þeim. Ég get ekki skilið að ég eigi eftir að vita svo mikið og muna svo mikið en ég hlakka bara til.

Ég er annars bara í próflestri og fannst mér við vinkonurnar ansi sorglegar í gærkvöldi þegar við skreiddumst klyfjaðar bókum uppúr lessalnum klukkan 23:00 og það var brjálað partý uppi á ganginum. Við alveg fölar og þreyttar í skólafötunum innan um dansandi partýdýr haha.
Ég er að fara í lífefnafræðipróf eftir 2 vikur og efnið er ansi mikið. Mér er mikið búið að vera hugsað til efnafræðikennarans míns í FB sem hristi allaf hausinn við mér því ég lærði aldrei. Ég var í tímum hjá honum þegar ég var sem villtust í félagslífinu og ég skildi ekkert hvað hann var að tala um í tímum. Glýkólýsa og krebshringur???? NADH OG FADH2???? Mér fannst þetta svo mikið bull bara....Til hvers og hvað er þetta?? En ég hafði ekki svo mikinn tíma til að pæla í þessu því ég þurfti að vera á leiklistaræfingum eða undirbúa skemmtun fyrir skólafélaga mína. En hann sagði bara "Þetta fag er ekki fyrir stelpur að læra, stelpur geta ekki lært efnafræði". Ég leit yfir bekkinn sem samanstóð 80% af stelpum og var pirruð yfir að hann væri ekki að peppa upp liðið í staðinn fyrir að brjóta niður. En nú er ég að fara í próf úr sama efni bara ansi mikið flóknara og meiri details og ég skal sko sýna honum!!!! :p

posted by benony 12:51:00 e.h.


{föstudagur, maí 13, 2005}

 
Það sannaði sig í gær...

..hvað ég er orðin alveg viðbjóðslega ryðguð í enskunni eftir að danskan hefur yfirtekið annað tungumálið. Ég var að hjóla downtown þegar hópur af stelpum koma hlaupandi að mér. "Do you speak english??" hrópaði ein að mér. Mig langaði nú bara að svara "I doubt that" en ég kinkaði bara kolli. Do you know where the Australian bar is??. "Yes" segi ég voða sposk því þessu ætti ég að geta svarað án vandræða. "den ligger...nej, öhh it is ehhh there" og bendi eftir götunni. "Ok, somewhere there???" spyr þá ein af aumingjans stúlkukindunum í hópnum. "yes, on the right side der er en..nej öhh, on the right side is a small street and it is there". Svo var ég allt í einu komin í alveg ham með rosa hreim og læti og segi "Yes, it is far away you have to walk like 20 meters down that street or something" hahahahhaha
Þær urðu voða sáttar við mig og eftir að þær höfðu þakkað mér fyrir og ég hjólaði voða ánægð með mig áfram þá rann upp fyrir mér hve heimskulega ég hef hljómað. 20 meter = far away, yeah ræt!!!!!!! Ég er ennþá að skella hausnum á mér við vegg fyrir heimskuna.

posted by benony 10:46:00 f.h.


{fimmtudagur, maí 12, 2005}

 
Adalkonan á afmæli í dag!!!!

Já, thad er hún módir mín sem er afmælisbarn dagsins í dag. Mamma mín er hetja og ég elska hana út af lífinu. Tjéddlingin er 61 árs í dag og thar med er hún næstum hætt ad vera tjéddling og komin yfir thad ad vera gamalmenni. Nei nei, mamma mín thú er mesta pæjan!

Mamma er svona mamma sem bakadi ofaní allt hverfid thegar vid vorum lítil. Vinkonur mínar muna enn eftir skúffukökunni, snúdunum og sjónvarpstertunni sem mútta galdradi fram eftir ad vid vorum búnar ad vera ad leika af okkur allt vit.

Mamma er líka svona mamma sem madur getur sagt ALLT.

Mamma er svona mamma sem ég vek alltaf á nóttunni thegar ég er ad koma heim eftir djamm til ad segja henni frá öllu spennandi sem gerdist á djamminu. Hún er reyndar ekkert voda hrifin af thví hahahaha

Mamma er svona mamma sem ekki getur farid á klósettid í fridi thví allir gríslingarnir hennar eru mættir til ad tala. HAHAHAHHAHA

Mamma er svona mamma sem gaman er ad fara í búdir med thví thó madur eigi ekki fyrir einhverju sem manni langar í thá segir hún "Thú ert mergjud í thessu....splæstu thessu bara á thig..."

Mamma er sú sem saknar mín mest...og mamma er sú sem ég sakna mest.

Til hamingju med afmælid gamla. Hlakka til ad heyra hvernig er ad vera 61 ;)
Love you

posted by benony 11:02:00 f.h.


{þriðjudagur, maí 10, 2005}

 
Kaldhæðni...

Brynja says: hvað er að frétta?
Saran says: bara lítið
Brynja says: það er nú alltaf svo spennandi hjá þér í hversdagslífinu
Saran says: yeah ræt, gerist ekki neitt
Brynja says: jú, alltaf svo spennandi
Saran says: ég er í próflestri
Brynja says: já, en mér finnst bloggið þitt svo spennandi


Eftir þetta samtal við vinkonu mína þá fékk ég svei mér þá samviskubit. Ég hef ekkert verið að blómstra hérna á blogginu og hef engu logið eða verið að ýkja eitthvað hérna á síðunni uppá síðkastið. Þarf að bæta úr því....

Kom heim úr skólanum í kvöld og ljósin inni í íbúðinni minni voru kveikt. Ég fann hvernig ég svitnaði og opnaði hægt hurðina og fann þar sem sæt kökulyktin barst fyrir vitum mér. Þegar inn kom stóð sætur bumbu karlmaður með svuntu við eldavélina mína og brosti og sagði "hæ, Sara, gott að þú ert komin heim". Ég hoppaði á hann lamdi hann í hausinn með hans eigin kökukefli því ekki var þetta mitt. Rotaði hann og dró hann að lyftunni.....(glötuð saga enda login)

En ok, ein sönn....ég var að fara út í búð áðan sem ekki er frásögum færandi en jú, ég labba niður tröppurnar sem liggja svona utan á húsinu. Í garðinum sitja stelpa og strákur að tala táknmál og ég brosi til þeirra. Þegar ég var komin alveg út og út á götu fatta ég að ég gleymdi að taka með mér plastpoka fyrir innkaupin þannig að ég sný við en í staðinn fyrir að labba stigann aftur upp þá tek ég lyftuna þannig að þau sjá mig ekki fara upp. Ég fór inn til mín sæki poka og labba svo tröppurnar aftur niður og er því að labba framhjá þeim í annað sinn á stuttum tíma úr sömu átt. Svipurinn sem kom á parið var alveg stórkostlegur 8O...Þau hafa kannski haldið að þau væru að fá flashback eða að ég væri illi tvíburinn að koma á eftir þeim... múhahahaha

ohh, Brynja I lost it...

posted by benony 11:38:00 e.h.
 
Trúið þið þessu...

...ég var að skrá mig í fög fyrir næsta ár, og þetta voru barasta þriðja árs fög. Tíminn er aldeilis fljótur að líða. Ef ég stend mig vel í prófunum núna þá byrja ég á þriðja ári næst. Gleði gleði gleði!!!!

Annars er myglan að taka við völd og það eru 3 vikur í fyrra prófið. En við segjum bara fuck you ég geri mitt besta. :)

Svo er brúðkaup 18 júní... má maður nokkuð missa af því??

posted by benony 9:00:00 e.h.
 
Green eyes, I want you to fly!!!

posted by benony 7:21:00 e.h.
 
Ekki fréttir....

- það rifjaðist upp mér að það getur stundum rignt alveg uppúr þurru þegar maður er að hjóla. Var alveg búin að gleyma því.

- ég hugsaði með mér hvort það væri flipp að hlaupa út nakin í hagléli og láta berja sig sundur og saman af élinu.

- ákvað svo með sjálfri mér að það væri líklegast bara vont...

- hef sett mér takmark að láta penustu vinkonu mína fara að tala dirty eftir eitt ár. Hún myndi aldrei segja orð eins og jahh, blæðingar í dag.

- hringdi í mömmu því það var mæðradagur og hún sagði að ég væri sú eina af 5 systkinum sem hefði munað eftir henni. Jahh, hver ætli sé uppáhalds þá ha??? ;)

posted by benony 12:42:00 f.h.


{mánudagur, maí 09, 2005}

 
Thad er fyndid ad láta Elvu bregda....

....thad er nefnilega nóg ad ég standi og stari á hana med einhvern vidbjódurssvip. Hún fattar allt í einu ad thad er einhver ad horfa á hana og lítur snöggt vid og svo hoppar hún einhvernveginn til og badar höndunum í allar áttir. Ef ég er heppin thá heyrist svona "ÖHHHH" hljód med. Híhíhí...svoooo gaman.
Í gær stód einhver karl fyrir utan gluggann og rýndi inn um hann og Elva alveg hoppadi í sætinu og hrópadi "AHH, sjáid Söru...nei, thetta er ekki Sara"! hahaha... Greyid, ef hún fer ad fá hjartsláttartruflanir eda eitthvad thadan af verra thá er hægt ad segja ad thad sé mér ad kenna. :)

Elva mín, mér thykir svo vænt um thig...má ég thá ekki halda thessu áfram????

posted by benony 12:52:00 e.h.


{sunnudagur, maí 08, 2005}

 
Langar að...

...eyða sumrinu með bakpoka að ferðast um heiminn og láta ævintýrin koma hlaupandi á eftir mér. Upplifa hluti sem láta mig fá gæsahúð, og láta mig gapa af undrun og hrifningu.

...kaupa mér gítar og læra á hann.

posted by benony 10:10:00 f.h.


{föstudagur, maí 06, 2005}

 
Snillingur...

...er hún Ásta því hún er lánaði mér aukahjólið sitt. Nú er ég bara eins og vindurinn og feykist á milli eins og ekkert sé meira sjálfsagðara. Ég var farin að sakna þess að hjóla og strætó var ekki alveg að blífa fyrir mig lengur. Mun þó eftilvill sakna strætófólksins sem byrjaði að spjalla um veðrið og þess háttar þegar biðin eftir bussinum var orðin leiðigjörn.

Fór til Bryndísar í gærkvöldi þar sem hún bauð uppá pulsur í flatbrauði sem var bara svo gott. Svo komu nokkrar stelpur sem búa á Rasmus Rask kolleginu þar sem ég bjó fyrsta eina og hálfa árið mitt hérna. Þær voru rosa hressar og gaman að hitta þær og skiptast á sögum. Ég sagði nú bara líksögur :p

Svo á Jákup hennar Ástu 25 ára afmæli í dag og við það er blásið í partýlúðrana í kvöld. Ekki ónýtt að þau eru nágrannar mínir þannig að það er stutt að fara.

Annars er ég bara að læra undir próf...

posted by benony 1:03:00 e.h.


{fimmtudagur, maí 05, 2005}

 
ótrúlegt...

Ég var að labba heim frá spítalanum í kvöld...klukkan var um 23 og ég var eitthvað í eigin hugsunum eins og svo oft þegar ég á þessa göngutúra mína frá lestri dagsins. Þegar ég var komin inn í bæinn og er að labba yfir götuna hjá Ryans skemmtistaðnum þá sé ég þar sem bíll kemur fyrir hornið. Fyrstu viðbrögðin voru að frjósa og ég stend eitt augnablik og tek mig til að hlaupa yfir. Bíllinn var kominn ansi nálægt mér og í staðinn fyrir að hægja á sér þá gefa gaurarnir í. Ég get svo svarið það að ég var viss um að þetta yrði mitt síðasta og ég man það augnablik þegar ég hugsaði "nei, þetta er búið...damn það er ekkert smá ömurlegt". Ég einhvernveginn náði að stökkva undan bílnum og ég virkilega strauk bílinn. Ég hefði getað sparkað í bílinn eða hrækt á hann en mín reaktion var að gefa gaurunum svona "talk to the hand" merki og labba í burtu með dúndrandi hjartslátt og tár í augunum því mér brá svo mikið. Frekar glatað þetta með "talk to the hand" merkið en ég veit svei mér þá ekki afhverju ég brást þannig við. Hefði bara frekar átt að sparka í bílinn.

posted by benony 12:55:00 f.h.


{þriðjudagur, maí 03, 2005}

 
Já, ég var búin að lofa sjálfri mér að ég skyldi fagna...

...rosalega mikið þegar ég væri búin með videnskabsteori áfangann (vísindafræði, heimspeki einhver) og skála í kók með klaka. Er búin að skila fjórum svona stórum verkefnum fyrir þetta og í öll skipti nema síðasta skipti var ég alla nóttina fyrir skiladaginn að bagslast við að pikka inn eitthvað sem ég skildi varla sjálf. Síðasta verkefnið var svo siðfræðiritgerð sem ég, Elva og Valdís gerðum saman um "fosterreduktion". Við fengum bestaaet fyrir hana þannig að nú er ég búin með videnskabsteori. En ég gleymdi alveg að fagna og því geri ég það núna. JJJJJJIIIIIIBBBBBBÝýýýýýyýýýý Vúhúúúúúúúúú EKKI MEIRI VIDENSKABSTEORI Í BILI!!!! VEIIIIIHHHHHHHH

(ég er á handahlaupum hérna sko...alveg að pikka inn á tölvuna í leiðinni). :p

posted by benony 11:09:00 e.h.
 
Held svei mér þá að Jói vinur minn sé fyndnasti maður sem ég þekki....

...síðasta bloggfærslan hans fór alveg með mig...

Gáfur

Að ganga með gleraugu þarf ekki að merkja að fólk sé gáfað. Ég hef persónulega reynslu af því sjálfur, í gegnum móður mína.

posted by benony 6:10:00 e.h.
 
Vitið hvað ég gerði villt um helgina???

Nei, þið vitið ekki!!! Mánuður í próf og ég sit á föstudagskvöldi með Elvu að læra uppí skóla. Er að mygla og sé fram á næstu daga með engu skemmtilegu á dagskrá nema lestri og svoleiðis rugli bara. Tilboðið berst og við erum farnar....já, með engum fyrirvara erum við á leiðinni til Svíþjóðar!!! OG það var óóóóóóóóóótrúlega gaman. Ég er búin að setja inn myndir þær eru hér, hér, og hérna.

mmmmmmmmm, það var svo gaman!!!!!!

posted by benony 1:45:00 f.h.

spacer