Ég er að lesa Harry Potter þessa dagana. Fyrstu bókina sko, ég veit ég er sein en betra er seint en aldrei. Mér finnst ég svolítið eins og Harry, ég finn mig í stráknum, allavega í dag. Ég stóð allan daginn í Kringlunni og beið. Stóð við innkaupakörfuna meðan mamma beið í röðum, þetta var alveg sick. En á meðan ég stóð þarna og beið og skoðaði fólkið þá fór að vaxa lubbi á mér og mér fannst ég vera með gleraugu alveg eins og Harry. Ok, nú missti ég mig aðeins, en mér fannst allt í einu ég hafa sofnað og vaknað inn í nýjan heim.
1) Ég held að það hafi einhver gaur staðið á Esjunni fyrri hluta ársins og sprautað yfir Reykjavíkina þannig að það kom úrhellissæðisrigning. Og allar stelpur sem voru úti að leika sér bara "úpps". Kannski voru þetta alveg nokkrir gaurar, en afraksturinn var rosalegur, það eru svo margar kunningjakonur mínar með barnavagn. Ég hafði ekki við að kíkja í vagnana. Ég var heppin að hafa flúið að landi brott...ætli ég smitist þar sem ég verð svo lengi í þetta skipti?
2) Vinir litla bróður míns eru orðnir fullorðnir menn með kærustur og eru að versla í ríkinu. Fara svo upp í bílana sína og rappa. Ég er bara næstum feimin við þá...næstum sko.
3) Það er ekki hægt að keyra lengur um bæinn því maður er alltaf staddur á hringtorgi, alltaf að keyra í hringi núna. Ótrúlegt..
4) Pabbi var alltaf að skamma mig á gelgjunni fyrir að tyggja tyggjó. Fór geggjað í taugarnar á honum. "hættu þessu jórtri stelpa". Haldiði ekki að gæinn hann faðir minn sé ekki bara jórtrandi eins og belja í sífellu núna. Stoppa í sjoppu og kaupa tyggjó... tyggjóklessurnar eftir hann út um allt... Ég held honum finnist hann eitthvað kúl, stoppa í sjoppu að kaupa tyggjó og sígó. Detti mér allar...
5) En alltaf er eitt eins... Íslendingar eru manískir, það sést á jólaljósunum í bænum og röðunum í búðunum í dag. En við erum stolt af okkur..og ég stolt af því að vera íslensk...þó svo að það séu furðulegir hlutir að gerast eins og hjá Harry Potter.
Hver ætlar að koma með mér út að búa til engla!!?? posted by benony 2:42:00 f.h.
mánudagur, desember 29, 2003
Jæja....
Þá er það LOTR í kvöld, þ.e.a.s ef ég kemst út úr húsi fyrir snjó! posted by benony 7:46:00 e.h.
laugardagur, desember 27, 2003
Djammið í gær er djamm eins og öll djömm eiga að vera..
...samt er ég smá hrædd við að fara inn á Vegamót aftur..var svolítið villt en það var Jóa að kenna. Hann var að æsa mig upp í þessu rugli. En váhh, hvað ég skemmti mér vel. Einn starfsmaður Vegamóta vatt sér svo upp að mér og sagði að ég kæmi örugglega í næstu Undirtónum með vibbamyndinni sem er á síðunni þeirra. En það er bara gaman að því. Stefnan er tekin á djammið aftur í kvöld til að þjálfa upp J-lo dansinn minn. :) posted by benony 7:50:00 e.h.
Ó mæ goooooooood hvað ég var mikil gella....ó mæ god. Spurjið bara Jóa hann er þjálfari minn og umboðsaðili. posted by benony 7:35:00 f.h.
fimmtudagur, desember 25, 2003
Gleðileg jól
Jólin eru hopp og jólin eru hí
jólin eru spariföt og jólagotterí
Jólin er göfug, friður og frí.
Jólin eru gömul og jólin eru ný
jólagotterí jólagotterí.
Jólin voru yndisleg, ég fékk alla mína drauma næstum uppfyllta og ég át á mig gat. Ég held samt að kertasníkir sé eitthvað að missa sig karlinn þessi jólin. Hann nefnilega gaf mér tvennar g-streng nærbuxur... já, það er svona með karla í uniformi þeir eru eitthvað sjúkir í mig.
Dóri þekkir mig vel og gaf mér æðislega peysu sem er heiðgræn og fer vel við rauða hárið, og svo fékk ég æðislegan slopp frá mömmu og pabba. Þetta er svona boxarasloppur með hettu þannig að ég verð að taka smá hopp og kýla í loftið í hvert sinn sem ég fer í hann. Svo náttúrulega fékk ég inniskó, hálsmen, krydd, baðkörfur, sandala, ilmvatn og bodylotion og allskonar fallega hluti sem eiga eftir að nýtast mér í lífinu. Nady sys fór hamförum í pökkunum, hún elskar að fá pakka og gefa pakka...þetta er hápunktur í lífinu hennar þegar hún fær gjafir. Hjálmar sem er 17 ára fékk óvart bók í töskunni sem hann fékk frá Silla og Margréti sem fjallaði um praktical ways to help babys to sleep during the night. Ég sagði familýunni að ég ætlaði að lesa upp ljóð og allir þögnuðu og hlustuðu en þá las ég með svona ljóðatón upp úr bók sem fjallar um skemmtilega kynlífsleiki. Það vakti kátínu og hæst hló amma sem er 82 ára. Hún var líka svo sæt þegar hún var að lesa jólakortin sín því hún las alltaf sömu kortin aftur og aftur og var alltaf jafn hissa. Algjör dúlla skvísan. Svo grét ég yfir mínum jólakortum eins og hvert einasta ár og allt var voða happy....
Yndislegast var að um klukkan hálf tvö fór ég í smá göngutúr út í nóttina. Það var snjór og rosalega stillt veður og ég labbaði og skoðaði jólaljósin. Svo fór ég í Neðstabergið þar sem fjölskylda Margrétar á heima og þar var Silli að halda jólin og Tindur litli. Ég fékk að sjá hann sofandi og hann brosti í svefni...hve yndislegur er hægt að vera? Hann er orðinn hlunkur og ég hlakka svo til að kynnast honum betur.
Nú er jóladagur og ég er búin að vera að leika mér með Brynju og Drífu. Við vorum að hipp hoppa eins og þegar við vorum 13 ára....hve glataðar vorum við þá, en okkur fannst við geggjað töff!!! :)
Hangikjötið bíður mín, ég ætla að fara að belgja mig upp... úff
..angar um Háberg 26 núna því mamma er búin að setja kjötið á suðu. Amma Baddý er komin í heimsókn og gistir hjá okkur yfir hátíðirnar alveg í stuði beint frá Grund. Skrautið komið á jólatréð og í stofuna og nokkrir pakkar undir tréð. Ég er búin að setja sokkinn minn upp við beddann sem ég sef á og ég hef góðar heimildir fyrir því að Kertasníkir sé ekki að fara að svíkja mig um eitthvað sætt þessi jólin :)
Ég fékk jólastemmninguna yfir mig um leið og húsið byrjaði að anga og góðir vinir hringdu til að óska mér gleðilegra jóla. Jólin eru þægileg stemmning... posted by benony 1:19:00 f.h.
þriðjudagur, desember 23, 2003
Ég held að löggum finnist ég hot...eða eitthvað allavega!
Ég veit ekki hve oft í gegnum tíðina löggan hefur stoppað mig..eða allavega skipt sér af mér í umferðinni í gegnum árin. Ég er búin að hafa bílpróf síðan ég var 17 og það eru þá komin..17-18-19-20-21-22-23 ok 6 ár og þeir hafa örugglega stoppað 12 sinnum. Bíddu ég ætla að telja upp svona það helsta og fyndnasta.
1) Það nýjasta er núna fyrir 2 dögum. Ég var að sækja litla bróður minn á Skjálfta upp í Kópavogi. Þegar við sitjum svo systkinin í hrókasamræðum um hvernig kappanum gekk í tölvuleiknum sjáum við að það er kviknað á vélarljósinu þannig að við keyrum upp á bílastæði rétt hjá. Við löbbum út og erum að bakstra við að opna vélarhlífina þegar löggan rennir sér upp að okkur, skrúfar niður rúðuna og tuldrar "hvað er eitthvað vesen?" Geta má þess að löggumann var með tannstöngul og var svona að stanga úr neðri tönnunum á meðan við spjölluðum saman. Ég sagði bara að við værum að tékka á vélinni út af því að það hefði komið ljós... "já já" muldraði hann með tannstöngulinn leikandi við skánina. "Þið reddið þessu".
2) Árið er 2000, ég er tvítug og Eva vinkona 22 ára...það er maí og við erum að útskrifast úr FB. Við sitjum í bílnum stoltar með stúdentahúfurnar okkar og erum að syngja hástöfum með einhverju lagi í græjunum. Gæti meira en vel verið að við séum að dilla okkur og slamma jafnvel!! Byrjar ekki bláa ljósið að blikka... ég stoppa bílinn og tveir hönk löggumannar spyrja "Er verið að skemmta sér stelpur". "Jáhá, rosa vel!!!" segjum við þá. "já já og hafið þið verið að drekka" spyrja þeir sem ég skil reyndar alveg að þeir hafi gert þar sem við vorum í stuði með stúdentahúfur. Ég lít þá bara djúpt í augu annars og segi "nei, veistu ég drekk ekki svoleiðis.." Okkur var sleppt.
3) Held sumar 2000, ég og Eva aftur staddar í bíl en nú er Eva að keyra. Við erum að keyra niður Laugaveginn í rosa samræðum um eitthvað mjög mikilvægt örugglega þegar mótorhjólalögga í fullum skrúða bandar hendinni í fullu og við stoppum. Hann argar "ERTU BRJÁLUÐ??? ÞAÐ ER SPRUNGIÐ HJA ÞER, ÞÚ VERÐUR AD LAGA ÞETTA". Eva alveg skíthrædd keyrir út í kant og við stökkvum út úr bílnum. Jú jú það var sprungið en við höfðum ekkert tekið eftir því. (engar smá bílaljóskur) Löggumann rosa reiður og var alveg að sýna hver væri við völd. Við í gellufötum vitum ekki alveg hvernig við eigum að höndla þetta en erum eitthvað að spá sko hvernig við eigum að redda dekkinu þegar þessir tveir löggumannar í fullum skrúða...við erum að tala um í fullum skrúða eru komnir á fullt að sækja varadekk og við vitum ekki fyrr en annar þeirra er bara byrjaður að tjakka bílinn upp og haldiði ekki bara að hann skipti fyrir okkur. Og ekki nóg með það þá byrjaði hann að daðra karlinn "já, stelpur, hvaða skemmtistaði farið þið svona helst á þegar þið eruð að skemmta ykkur?" Það hefur verið fyndin sjón fyrir þá sem voru að keyra Laugarveginn að sjá löggumann í fullum skrúða að skipta um dekki hjá tveimur litlum gelgjum. Enda þegar við settumst inn í bílinn eftir að hafa þakkað vel fyrir okkur þá örguðum við af hlátri!!
4) Ég er að keyra með bílinn fullan af fólki og þar á meðal eru tveir dökkir vinir vinkvenna minna. Ég er að keyra bara ósköp venjulega og ekkert að þegar heyrist í sírennum fyrir aftan og bláa ljósið alveg á fullu. Ég stoppa bílinn og fer út í kant og spyr hvað gangi á þegar löggan kom. Hún bað mig að koma með sér inn í bíl til þeirra og ég geri það að sjálfsögðu. Þegar inn í löggubílinn kom talaði löggumanninn inn í talstöð og sagði "já, Sara Bjarney Jónsdóttir, kt XXXXXX-XXXX geturðu tékkað á henni fyrir mig. Eftir stutta stund heyrist rödd í talstöðinni "Sara er í lagi". Þá brosa löggurnar og segja "Farðu bara varlega". Ég var brjáluð
5) Er dræver eitt djammkvöld fyrir stærsta (samt minni en ég) bróðir minn og er stoppuð þegar ég hef aðeins einn vin bróður míns eftir í bílnum. "Var verið að skemmta sér". "já" segjum við. "Má ég biðja þig um að blása fyrir mig". Ég hrópa upp yfir mig þá "YES, Mig hefur alltaf langað að prófa, já komdu með þetta". Hann réttir mér tólin og ég frussa þarna eitthvað í tækið...ekki alveg að kunna handtökin og vinur bróður míns flissar bara þarna við hliðina. Okkur var sleppt.
6) Já, síðast en ekki síst...þá er ég þekkt í bænum Bíldudal fyrir að hafa verið stoppuð af löggunni. Bíldurdalur er lítill bær bara ein gata með smá hring á endanum og ég keyrði frá einni íbúð og svona 20 metra til þeirrar næstu...en löggan náði að stoppa mig. Þetta hefur víst aldrei gerst áður.
Hvað haldiði...löggunni finnst ég eitthvað HOT...eða hvað?? posted by benony 4:58:00 f.h.
fimmtudagur, desember 18, 2003
Jæja, þá er maður komin hjem!!!
En hvað þetta er notaleg tilfinning, samt ekki búin að hitta allt fólkið en hef tekið það rólega bara svona fyrst. Búin að vera chilla með múttunni og litla bróður svolítið mikið og við skelltum okkur í Kringluna í dag og ég fékk mér númer í símann og svona. Ég er reyndar eitthvað að vesenast með símann minn því hann er læstur fyrir að setja önnur kort í hann...en það verður komið í lag bráðum.
Annars var Kringlan ekki að gera það fyrir mig í dag. Hún er flott og allt það en ég varð eitthvað pirruð á öllum látunum. Við Hjálmar vorum næstum komin í slag, svona systkinaslag meðan við vorum að bíða eftir mömmu sem var í heila eilífð að versla í matinn. Ég sá heldur eiginlega engan sem ég þekkti en ég held að það geti verið að það sé út af prófunum í Háskólanum.
Í gær fór ég með mömmu og pabba í góðum fíling að borða Hlölla, mér fannst það mjög fyndið. Enda höfðu þau aldrei smakkað hann áður. Þarna sátum við á Hlölla öll út ötuð í sósu og lásum blöðin...algjörir töffarar. Eftir það hringdi Toggií mig sem var einmitt í sjónvarpinu þetta sama kvöld...stóð sig eins og hetja og hann sótti mig til að fara með mig í púl með strákunum. Við vorum nú ekki alveg að meika það í púlinu við Toggi en ég er alveg viss um að ég verði orðin góð eftir smá æfingu;) Arnar 6 og Bjarki sýndu samt bestu taktana, jú og gaurinn sem var á borðinu vinstra megin við okkur. En hann var einn að spila.
Svo skelltum við okkur á Vegamót þar sem aðdáendur Toggalétu sig ekki vanta...tíhíhíhí
Jæja, nú er ég að fara að lenda í fleirum ævintýrum...þið bíðið bara spennt!!
Ég er alveg á spíttinu núna til að ná að vera komin á lestarstöðina á réttum tíma. Ég á flug um tólf frá Kastrup og verð því lent á Keflavíkurflugvelli klukkan 14:15 að staðartíma.
Ég hlakka óendalega mikið til að hitta ykkur.
Jæja, núna kem ég....(ekki í dónalegri merkingu)....Sjáumst!!!!
Ef þetta er ekki það fyndnasta sem ég hef lent í....
ég fór í próf í dag sem kannski er ekki frásögum færandi en þetta var próf sem var næstum því bara skemmtilegt...allavega fyndið.
Þið vitið ekki hvað við erum búin að vera stressuð fyrir þetta próf því það er leikið og munnlegt og það tekur á sérstaklega þar sem það er á dönsku og ungir krakkar sem maður gæti jafnvel þekkt úr skólanum að spurja út úr.
En hvað var svona fyndið við þetta próf Sara, segðu okkur það, segðu okkur það!!!!!
Jæja, best að byrja á byrjuninni. Ég, Elva og Valdís hittumst á Winslow parken til að hlýða hvor annarri yfir áður en við héldum í prófið. Þá fórum við að ræða um hvað okkur fyndist nú stressandi við þetta próf. Aðallega fannst okkur erfitt að hugsa um að prófdómararnir væru krakkar á okkur aldri en ekki bara karlar og kerlingar eins og maður er vanur. Í þessu löbbuðu tveir drengir framhjá, einn George Clooney og einn Woddy í Staupasteini. Þá sagði ég..."ég myndi t.d deyja ef þessir gæjar myndu vera þarna í prófinu". Stelpurnar kinkuðu kolli.
Við lásum geggjað vel og vorum orðnar eldklárar...þegar við vorum að hjóla orguðum við upp öll sjokkstigin og hvað einkenndi þau. Fólk sem hefur heyrt til okkar hefur örugglega haldið að við værum að missa okkur...
Svo mættum við í prófið..... Við vorum fjórar sem áttum að byrja inni og það voru akkúrat við þrjár og ein dönsk sem heitir Lea.
Svo kemur prófið...jú jú haldiði ekki bara að George Clooney og Woddy standi þarna og heilsi okkur. Þarna var Valdís að springa úr hlátri og leit á mig því hvað hafði ég endað við að vera að segja. Ég held stundum að það sé einhver þarna uppi að stríða mér.;) En það var ekki bara þeir heldur var Brad Pitt og annar einhver sem líktist leikara brosandi til okkar þarna.
Prófið var þannig byggt upp að það voru fjögur rúm þar sem maður var í korter á hverju rúmi þannig að þetta var klukkutíma próf. Fyrsta rúmið sem ég fór á þá þurfti ég að hugsa um sómatískan sjúkling sem átti að vera sjötugur og ég þurfti að passa að hann dytti ekki úr rúminu og gefa honum að drekka. Með hlutverk sjúklingsins fór Brad Pitt, Brad Pitt á nærbuxunum. Eftir að ég hafði búið um rúmið og svarað spurningum um legusár og ýmislegt annað þá hoppaði Brad félagi upp í rúmið og fór að leika mjög órólegan gamlan mann sem pissaði í sig og vitiði hvað!!! Nei, ég veit að þið trúið þessu ekki.... Ég þurfti að skipta um bleyju á Bradda félaga Pitt. Ég get líka ímyndað mér að svipurinn á mér hafi verið fyndinn þegar hann sagðist hafa pissað í sig og ég lyfti sænginni og sá bleyjuna. Ég sagði eitthvað "nohh, du har en ble" og reyndi að halda hlátrinum niðri því ég mátti jú ekki hlægja.
Á rúmi númer tvö var ég spurð um teoríuna og þar sat ég með Woddy sem vinnur á Staupasteini þar sem hann spurði mig út úr bókinni og svona teoríska hlutann við hjúkrunina. Sjokkin og meðvitundarleysi, lyfin osfrv. Það gekk rosa vel á þessum bás og ég held að ég hafi bara fengið tíu því ég svaraði öllu rétt þó svo að ég væri ansi stressuð...þurfti að lýsa fyrir félaganum hvernig ég þvæði konum að neðan. ;)
Á rúmi númer þrjú átti ég að mæla ýmislegt eins og blóðþrýsting og púls og kíkja með ljósi í augasteinana. Það gekk vel og þau voru ákaflega næs á þessum bás. Enginn leikaraskapur.
Á rúmi númer fjögur var svo geðdeildin. Þar fór George Clooney með hlutverk maníusjúklings sem ekki mátti fara úr herberginu og ég átti að passa hann. Þarna var ég eins og heima hjá mér...eiginlega bara mætt í vinnuna á Landsspítalanum því George fór með leiksigur í þessu hlutverki. Hann var alltaf að láta mig stjana í kringum sig en ég náði að sýna festu og ekki láta vaða yfir mig. YES...ég er að koma til ;) Þó svo að George Clooney væri að biðja mig að syngja fyrir sig eins og konan hans gerði fyrir hann á kvöldin þá sagði ég bara "Ja, men jeg er ikke din kone". hehe
En ég NÁÐI og er nú SYGEPLEJEVIKAR og get farið að taka vaktir á spítalanum og fengið borgað fyrir það!!!!! posted by benony 2:04:00 f.h.
sunnudagur, desember 14, 2003
Meðan fréttir berast....
...um að Keikó sé dauður og Saddam Hussein sé fundinn þá sit ég með allt á rúi og stúi af þvotti, ferðatöskum og jólagjöfum fyrir aftan mig og les fyrir próf. Heimurinn hlær og grætur á sama mómenti.
Ég er án vafa spennt að koma heim, enda bara tveir dagar þangað til ég get hlaupið slow motion hlaupið mitt með hárið flaksandi í fangið á mömmu, pabba og Hjálmari. Eva hringdi í mig áðan og er búin að panta miðana með lestinni á þriðjudagsmorgun klukkan 7:47 þannig að það er ekkert til fyrirstöðu að við gellurnar, ég, Elva og Eva getum gellast á ferðalagi.
En fyrst er próf.
Ég er að fara í próf úr námskeiðinu sem ég var í hjá hjúkku dauðans eins og ég hef kallað grey konuna sem á það kannski ekki alveg skilið. Ég þarf bara að sýna mig því þetta próf er munnlegt og leikið, ég hef nú leiklistarþjálfun þannig að það ætti að reddast. ;)
En ég les áfram og hugsa um hve gaman það verður að hitta alla heima...strax búin að ákveða deit með Evu vinkonu sem er nýbökuð móður og hennar syni sem ég hef bara séð á myndum....hann heitir Hafþór Örn.
Til hamingju með afmælið elsku skvísa. Það verður gaman hjá okkur í kvöld!!! posted by benony 12:57:00 e.h.
Ég gæfi fólkinu mínu heiminn....
...ef ég gæti.
Ég er búin að versla jólagjafir og það er bara góð tilfinning. Nú get ég komið heim og notið þess að vera til og ekkert stress. Mamma var einmitt að segja mér hvað hún hlakkaði til að fá mig heim og ég fékk smá sting því ég alveg þrái að komast heim og faðma fjölskylduna mína. Mamma spurði líka hvað mig langaði að borða daginn sem ég kem heim og svo ákváðum við að við myndum baka piparkökur saman, eins og þegar ég var lítil. :) Ég hlakka svo til að koma heim og upplifa jólin aftur.
Ég, Elva og Katla fórum í bæinn eftir skóla og þá barasta kláraði ég innkaupin, en buddan er tóm.... Kórinn sem ég var í í fyrra var að syngja á göngugötunni í bænum og mig langaði alveg að syngja með þeim en ég dillaði mér bara í staðinn og brosti til Guðnýjar sem var svo glöð og sæt þarna. Svo kom lagið mitt eins og ég kalla það eða sko lagið sem ég söng sóló við í kirkjunni á jólunum í fyrra og það var komin ný söngkona að syngja það. Mjög flott hjá Gitte, hún er söngdíva bara.
Svo sátu ég og Elva á bekk inní SuperBrugsen eins og rónarnir og drukkum kók og spjölluðum. Við vorum nefnilega svo þreyttar í fótunum og í höfðunum að við duttum í rónasvaðið bara. Þarf ekki mikið til ;)
Þarna sátum við og þá kom Sören bekkjarbróðir og spjallaði við okkur. Honum fannst svo langt síðan hann hafði séð mig í skólanum en ég er samt búin að mæta alla vikuna...hef kannski bara látið lítið fyrir mér fara í 150 manna fyrirlestrarsalnum. Ég fann að ég þarf að rækta vinskapinn við Sören því hann er góður strákur, er ekki sama um vitlausa rauðhærða útlendinginn. posted by benony 12:56:00 e.h.
fimmtudagur, desember 11, 2003
Viðtal við hjúkku dauðans...
...gekk fínt bara. Við sátum saman vinkonurnar og fórum yfir ritgerðina sem ég skilaði um praktíkina sem ég átti á nýrnadeildinni. Ég stóðst en hún vildi fara með mér yfir ákveðin atriði. Það sem henni fannst gott var að ég gerði lesturinn léttan og skemmtilegan, svo fannst henni ég observera (skoða og túlka) sjúklingin vel því ég hafði skrifað að hann hafi verið kátur og gantast mikið en ég teldi að hann brygðist þannig við því honum fyndist aðstæður óþægilegar og hann væri því óöruggur. Það sem henni fannst slæmt var að hún var ekki nógu djúp hjá mér ritgerðin og ég fjallaði ekki nógu djúpt um teoríuna á bakvið ástæður ýmissa aðgerða. Ég bað hana að taka dæmi fyrir mig og þá kom frá henni.... "t.d þú talar hérna um að þú hafir matað sjúklingin og það mætti ekki mata hann of hratt og það þyrfti að leyfa sjúklingnum að kyngja vel áður en hann fengi næstu skeið, en þú segir ekkert afhverju það megi ekki mata hratt?". Ég kinkaði bara kolli og sagði "ok, ég skil". Þegar ég kom út fór ég að pæla hvaða rugl væri í gangi... ég þurfti að skrifa afhverju ég mætti ekki mata karlinn minn hratt...nú ég vissi náttúrulega ekki að ég hafi verið að skrifa ritgerð fyrir smábörn!
Svo svona í lokin, þá sagði hún... "er du klar for eksamen?" Ég játti því að ég væri sko helt sikker klar. En þá sagði hún "Sara, gerðu mér greiða, ekki vera stressuð í prófinu og mundu að hlusta vel á það sem sagt er því þitt VANDAMÁL er tungumálið. Þarna var mómentið sem ég þurfti að svara fyrir mig en ég umlaði bara "men jeg har ikke problemer med at forstaa". og þá sagði hún "það er þitt eina vandamál fyrir þetta próf". Hlustaði ekkert á mig.
Ástæðan fyrir því að mér finnst leiðinlegt að hún hafi sagt þetta er að ég er búin að búa hér í rúmlega eitt ár og skil alveg dönsku og hún hefur aldrei verið í vandræðum með að skilja mig. Við ræddum saman þarna í þessu viðtali og þetta voru mjög svona smooth umræður og það virtist sem hún skildi mig og ég skildi hana alveg. Þess vegna finnst mér ég ekki eiga skilið að hún kalli þetta vandamál hjá mér þar sem hún minnist ekki á það hjá öðrum útlendingum. T.d ein norsk sem er soldið erfitt að skilja... Stundum finnst mér eins og hún noti þetta til að pikka í mig en ég er kannski bara ímyndunarveik...
YESSS!!! ÉG ELSKA AÐ VERA SETT Á HOLD!!!! SÉRSTAKLEGA ÞEGAR ÉG ER BÚIN AÐ BÍÐA Í KORTER!!! TIME OF MY LIFE! ;) posted by benony 6:22:00 e.h.
Suðupunktur....
...allt að gerast, próf að nálgast, jól að nálgast og stóri heimferðardagurinn er eftir 5 daga. Bíddu var fyrir 20 dögum síðan ekki bara í gær?? :)
Dóri bróðir minn var hjá mér í tvær nætur og við náðum að klára (næstum) jólagjafirnar. Það er alltaf svo gott að fá Dóra í heimsókn því við tölum svo mikið og hlægjum enn meira. Svo vorum við að reyna að reikna hvort annað út.. þ.e ef Dóri sýndi einhverjum hlut mikinn áhuga þá svona "hey, ég gæti gefið honum svona", Dóri var að pæla í því sama hjá mér þannig að ég varð að passa mig á því hvað ég skoðaði...hehe Einu sinni stóð Dóri svolítið lengi með bleikan trefil í höndunum og þá náttúrulega sagði ég hann ætti á hættu að fá hann í jólagjöf frá mér. Hann var fljótur að sleppa honum....var víst að pæla í hann fyrir mömmu en ég segi nú bara "bullshit"!!!
Gaman að komast í smá jólaskap og gott að vera búin með næstum allar jólagjafir, það er þá minna stress. Ég kem á þriðjudaginn og fer í próf á mánudaginn þannig að það verður frekar mikið um helgina að stússast. Svo á Elva afmæli og við verðum nú að tjútta í tilefni þess...og svo auðvitað kveðja allt liðið.
Það var sorglegt að kveðja Dóra í morgun því við föðmuðumst og sögðum svo "Gleðileg jól"....ég hef aldrei upplifað jól án Dóra bróður!!!
Ég er ótrúlega dygtig..hérna fáiði myndir frá heimsókninni hans Dóra. posted by benony 3:16:00 e.h.
mánudagur, desember 08, 2003
Sammari....
.....alveg er ég að deyja úr samviskubiti eftir atvik sem gerðist í gær. Kannski alveg óþarfi en mér líður illa yfir þessu.
Já, þetta er sagan um samviskubitið sem nagar mig....
Ég fór á skauta með Cecile sambýliskonu minni og vinum hennar. Hún á ógrynnin af vinum sem eru að vinna með henni sem koma allsstaðar að úr heiminum og ég hef hitt þau flest. Einn félagi hennar er sá sem kallar mig Miss Iceland og sama hvort ég komi til dyra úfin með bauga í náttbuxunum og jafnvel hor lekandi niður á kinn þá er ég bara "the most beautiful girl in the world". Hann kemur líka alltaf hrópandi "MISS ICELAND, ARE YOU HOME!!" og ég ekki að kaupa þennan sleikjuhátt í honum brosi bara eða hlæ að honum.
Í gær var hann náttúrulega mættur á skautasvellið og þegar hann sá mig var ég náttúrulega orðin fegurðardrottning og guð minn góður ég var með æðislega eyrnalokka og flotta húfu og ég var svo beautiful þetta kvöldið lét hann mig heyra. Ég skellti mér á svellið og hann beið eftir að ég tæki spinningin en ég svona truntaðist á svellinu eins og belja því ég er ekki búin að standa á skautum síðan ég var bara lille. Svo komu íslenskir vinir mínir, Elva og Davíð og ég fór að kynna þau, svona varð það vandræðalegt:
Ég: Yes, this is Mr. Dominic Republicum and....
Gaurinn: What did you say?
Ég: Mr. Dominic Republicum??
Gaurinn: Don´t you know where I come from Serah?? I come from a country in Europe
Ég: Not from Dominic Republicum??
Gaurinn: No, that´s not in Europe
Ég: Ok, where are you from then?
Gaurinn: I´m from Albania
Ég: nohh, ok, I just thought....
Gaurinn: But you know my name right??
Ég: Yes, ofcourse...
Gaurinn: SERAHH???
Ég: I know it...it´s uhhhhh
Gaurinn: You don´t know my name and we have been talking so many times!!"
Nú var ég farin að svitna og fór eitthvað að reyna að bjarga þessu..
Ég: But you know, you have such a difficult name for me to remember. It´s easier for you because my name is Sara
Gaurinn: My name is not difficult
Ég: Yes, it is...
Gaurinn: NO!!!!!!!!!! My name is Tony
Ég: ahhh, I knew that!!!!!!
Ég var algjörlega búin að klúðra þessu....en þá stundi ég upp og blikkaði augnhárunum:
Ég: You know, it´s just because I am a beautiqueen, so I can´t be clever to!!!!
Þarna hló hann en labbaði svo í burtu og hann var virkilega fúll....ég held ég hafi misst titilinn "Miss Iceland." :( posted by benony 8:16:00 e.h.
laugardagur, desember 06, 2003
Litlu hlutirnir....
...í umhverfinu og lífinu og litlu atvikin...þau gera líf mitt svo ævintýralegt. Ég er sögð vera draumóramanneskja og oft á tíðum væmin því ég lifi í ævintýraheimi. En ég neita því ekkert að stundum get ég misst mig í ævintýraleitinni en finn oftast ævintýrin þegar ég síst leita þeirra....
í gær var svolítill ævintýradagur, því það voru svo margir litlir hlutir sniðugir sem gerðu daginn eftirminnilegan.
Þetta byrjaði allt saman í efnafræðifyrirlestri. Þetta leit út fyrir að verða bara venjulegur fyrirlestur þar sem maður situr og glósar og klórar sér í hausnum en hann varð þannig að ég fór aftur í tímann þegar ég var lítil að gera dyraat og mér var náð. Málið er nefnilega að í pásunni fór strákur að skrifa á töfluna eitthvað um megafest þann 13 des á hunderupvej fyrir medicin krakkana. Ég minntist þá á við stelpurnar að það væri verið að halda megafest á afmælisdeginum hennar Elvu því hún á jú afmæli þann 13 des. Þá sagði ég "ætti ég að skrifa á töfluna að Elva eigi afmæli þá". Valdís byrjaði þá að mana mig geðveikt... Það virðist ekki vera neitt voðalega erfitt að mana mig út í vitleysu, allt fyrir djókið. Þannig að ég fór þrátt fyrir hávær mótmæli frá Elvu upp á sviðið fyrir framan alla 100 nemendurnar og skrifaði fyrir neðan partýauglýsinguna "Pa grund af Elvas födselsdag" og settist svo eldrauð og flissandi í sætið mitt. Ekki leið að löngu þar til gaurinn sem var að halda partýið kom til okkar og var ekki hress!!!! Hann tók það fram við Elvu að það væri sko ekki partý út af afmælinu hennar og ef við myndum auglýsa þetta sem afmælispartý myndi örugglega bara 10 manns koma. Þarna hló ég svo mikið að mér var illt því gaurinn var ekki að fatta djókið í þessu öllu saman. Hann fór svo og strokaði það sem ég hafði skrifað út en kom svo frekar vandræðalegur og spurði hvort við ætluðum ekki að mæta í partýið. Milli hlátursekkasogana stundum við upp "jú jú við mætum". Besta við þetta var að fólkið í salnum var alveg að fatta djókið og var að hlægja þannig að við komum ekkert voðalega asnalega út...Elva greyið fékk kannski verstu útreiðina. Hún segir sína hlið á síðunni sinnihérna
Eftir tímann fór ég upp í lessal til að lesa smá efnafræði og sat þar í góðum fíling þangaði til Eva hringdi í mig. Hún var með mér í FB en við þekktumst lítið þá, bara svona brosogsegjahæ en nú býr hún í Odense og þá þekkir maður alla miklu betur þ.e ef þeir eru íslendingar. Allir að fást við sömu vandamálin. En hún semsagt hringdi í mig til að tékka hvort ég væri ekki heil á húfi. Hún hafði verið að hlusta á fréttirnar með öll innbrotin á kolleginu mínu. Agalegt alveg því fólk er búið að vera pyntað hérna í næstu húsum við mig. Ég sagði henni að ég væri heil því ég hefði verið heppin að lenda ekki í körlunum. Við kjöftuðum svo í símann dálitla stund og komumst að því að við erum að fara heim til Íslands með sama flugi þann 16 des!!! Jibbý Þá verðum við fleiri að gellast á Kastrup ;) Við enduðum svo á að ákveða að skella okkur í bíó á stelpumynd. Hugh Grant maður, urðum að kíkja á karlinn!!!
Við drógum svo Elvu, Valdísi og Davíð með okkur. Davíð var eitthvað að reyna að vera með töffarastæla en hann fílaði held ég myndina meira en hann gaf upp...er það ekki Davíð? Þetta reyndist vera algjör "ó mæ god ég er með gæsahúð" mynd og við stelpurnar emjuðum við fíluðum okkur svo mikið. Eftir myndina þurfti ég sko aldeilis að tékka á gemsanum mínum. Mér fannst þetta alveg mómentið til að gaurinn sem er alltaf á hvítum hesti í góðum fíling myndi senda sms á rauðhærða útlendinginn. ;)
Á leiðinni heim var stormur!!! Fellibylir eins og við kusum að kalla á leiðinni. Við hjóluðum á móti vindi og þetta var mjög ævintýralegt móment því þetta myndi aldrei gerast heima að við værum að hjóla í þessu veðri. Svo voru risa leðurblökur að ráðast á okkur sem réðu ekkert við sig út af vindinum. Á leiðinni voru fullt af löggubílum og sjúkrabílum og meira að segja rannsóknarlögreglubíll að keyra frá Bolbro, hverfinu sem ég bý í. Ég byrjaði eitthvað að emja "ég vona að það sé allt í lagi með Cecile" Cecile er stelpan sem býr með mér. Ég fékk á tilfinninguna að bófarnir væru búnir að vera hjá okkur og ég hafi ekki verið á staðnum til að taka við höggunum. Ég er nefnilega karlmaðurinn á heimilinu því ég er stærri og af víkingaættum. Ég var alveg komin með tár í augun ég var svo hrædd um að Cecile lægi í blóði sínu heima og ég hefði ekkert getað gert til að vernda hana. En svo kom ég heim og hún bara í góðum fíling á djamminu auðvitað á föstudagskvöldi.
En já, þetta fannst mér ævintýradagur...svona er ég einföld! posted by benony 6:39:00 e.h.
fimmtudagur, desember 04, 2003
já, ég ætlaði að segja ykkur frá julefrokostunum síðustu helgi....
...en ég er að spá í að segja bara létt frá því, því þetta var nú bara djamm, reyndar stórskemmtilegt djamm. Á julefrokosti íslensku læknanemana hérna í Odense var ég í undirbúningsnefnd og það tókst svona líka rosalega vel því allir voru að skemmta sér glimrandi. Ég fékk að stjórna leikjum og svo voru strákarnir mættir með gítarana og við sungum alveg fullt. Lagavalið var ansi skemmtilegt því þetta voru ekki hefðbundin lög eins og "fyrr var oft í koti kátt" heldur voru þetta lög með Megasi, Ómari Ragnarsyni og fleiri snillingum. Svo vorum við tryllt á dansgólfinu fram eftir nóttu og sumir þurftu að skipta um föt vegna þess hve svitinn spratt hratt fram.
Fyndnastur fannst mér svo dagurinn eftir. Ég og Elva fengum að krassa heima hjá Valdísi því hún býr rétt hjá Íslendingafélagshúsinu þar sem frokostið var haldið. Við ætluðum að mæta þangað klukkan 14 til að taka til því fólk var ekki í ástandi til þess þarna um nóttina. Síminn hringir svo hjá Valdísi og það er gellan sem lánaði okkur húsið og spyr hvenær við höfum hugsað okkur að koma og taka til. Valdís algjör snillingur, varla vöknuð en bablandi á dönsku segir að við ætlum að koma eftir klukkutíma. Konan segir þá að það eigi að nota húsið klukkan 14 og við verðum því að koma strax. (húsið var á hvolfi) Þá hrópaði ég upp yfir mig "ERTU EKKI AÐ DJÓKA" með svona reka-rollur-tón, ekki enn búin að opna augun og stekk svo á fætur. Ég hringdi svo í Andra og Heiðdísi og það er bara snilld að vekja fólk daginn eftir djamm. Ég eiginlega bara flissaði í símann... T.d var Andri svo sofandi að hann heyrði ekki rétt...
Ég: Andri, það á að nota húsið klukkan 2
Andri: Á AÐ LOKA HÚSIÐ KLUKKAN 2!!!!
Hann sagði þetta með svona Ó-Mæ-god-tón
Já, þetta var snilld...við vorum að klára að taka til þegar börn fóru að streyma inn til að fara í jólaföndur þarna. hjúkk mar
Setti inn myndir sem Valdís sendi mér...þetta er svona úr ýmsum áttum en alveg brill myndir finnst mér. Þær eru hér
Svo er Elva farin að blogga líka. Endilega kíkið á hana því hún er að upplifa sömu hluti og ég svona oftast, allavega að fást við það sama!! posted by benony 2:11:00 f.h.
miðvikudagur, desember 03, 2003
Í rapportinu í morgun...
var ég alveg að meika það! Ég nefnilega er svo kvefuð og var nýbúin að vera að hjóla þannig að ég sat og hlustaði og það lak stanslaust niður úr nebbanum mínum. Ég var svo feimin að ég gat ekki staðið upp og náð mér í pappír heldur sat bara með hendurnar fyrir rennslinu og lét eins og ég væri geðveikt að hugsa. Held samt að það hafi alveg komist upp mig....
Mér brá svo smá eftir rapportið þegar múttan sem ég fylgi sagði "Sara mín, farðu inn á herbergi 3 og taktu blóðþrýsting af herrunum tveimur og svo þarf að mæla þá og vikta þá". Ég hugsaði bara "fokk maður, á ég að gera það sjálf??" En fór svo og náði í blóðþrýstingsmælinn, hitamælana og viktunarstólinn. Ég sagði herrunum hvað ég væri að fara að mæla og þeir tóku vel í þetta. Ég er svo vön að hjúkra fólki með andlega vanlíðan að ég verð alltaf svo hissa þegar sjúklingarnir taka rosa vel í það sem ég segi.. alveg hissa hvað allir eru næs við mig hérna. En annar herran var strákur sem var bara þremur árum eldri en ég þannig að ég var ekkert að mæla hann í rassinn...lét hann bara hafa mælinn sjálfur og kenndi honum á mælinn. Svo sagði ég honum að standa upp því ég ætlaði að vikta hann, honum fannst það eitthvað fyndið og gantaðist með það eitthvað. Ég reyndi bara að fela hvað ég var ég var feimin að vera að tala dönsku við þessar aðstæður og gantaðist eitthvað á móti. Ganti ganti ganti
En nú er ég búin að taka þessar fylgivaktir og ég fékk voða mikið út úr þessu...já já! Múttan var svo hjálpsöm og hlýddi mér yfir og svona, ég er nefnilega að fara í próf í þessu daginn áður en ég kem heim.
En mikið hlakka ég til að flytja frá Rasmus Rask. Það er nefnilega orðið hættulegt að vera hérna. Eins og fram hefur komið fyrr þá er búið að vera mikið um innbrot hérna og fólk að missa aleiguna sína í stríðum straumum. En nú er þetta orðið meira brútal. Bara hérna í hverfinu var bankað hjá einum strák og hann opnar. Þar standa fjórir gaurar sem ráðast á hann og berja hann þar til hann missir meðvitund. Svo stela þeir öllu sem hann átti. Þetta er bara að gerast í næstu húsum við mig fyrir nágranna mína. Ég er smá skelkuð... posted by benony 11:58:00 e.h.
þriðjudagur, desember 02, 2003
Hvað er málið með að vakna klukkan 05:30
...ég var ekki viss hvað væri málið þegar ég var að hjóla klukkan 6 um NÓTT að mér finnst til þess að fara á vakt á spítalanum. Allt var dimmt og fáir á ferli. En ég hjólaði og saug upp í nebbakút því það vildi leka úr honum í stríðum straumum.
Þegar komið var á spítalann þurftum við að fara beint niður í kjallara til að sækja okkur kjóla. Mér leið eins og fífli þegar ég mátaði kjólinn....hvað er málið með að við séum í kjól í vinnunni!!! Hann er svona hvítur og rykktur í mittinu og nær rétt niður fyrir hné. Ég þurfti að kaupa sokkabuxur til að vera í.... Svo fór ég að leita að deildinni og loks fann ég deildina sem ég átti að vera á þessi hér og fór í kjólinn. Þegar ég kom fram...leið eins og idiot, þá vísaði næturvaktin mér inn í herbergi þar sem átti að vera rapport. Ég var svona eitthvað í mínum eigin heimi að hugsa hvað ég væri nú asnaleg, íslensk, rauðhærð stelpa í kjól klukkan 7 á þriðjudagsmorgni og þ.a.l með stírurnar í augunum þegar gella með dimma whiskyrödd hreytir "Er du stud.med?". Ég alveg hrekk við og hugsanir mínar um að ég sé nú bara í ruglinu í þessum kjól svona snemma morguns og með hita í þokkabót og að ég ætti að lauma mér í burtu fljúga burt og ég stama: "ja, det er jeg faktiskt". Þá bendir hún mér á krúttlega mömmu sem situr og skrifar eitthvað og segir mér að ég eigi að fylgja henni í dag.
Ég fylgdi múttunni sem sagt allan daginn og hún var voða góð við mig, var samt ekkert voðalega mikið að spjalla við mig um annað en þetta faglega en ég svona hlustaði á það sem þær voru að tala um kellurnar. Það er nefnilega alveg sama stemmningin á deildum hér og heima á Íslandi...þetta eru náttúrulega kvennavinnustaðir og þá sérstaklega á deildinni sem ég var á í dag. Ég var komin inn í voða umræður um handavinnu og var allt í einu með rosa skoðanir á þessu umræðuefni. Ég kann ekkert í handavinnu en hef samt verið leiðbeinandi í því...en bara til að hvetja fólkið. Svo var allt svo jólalegt á deildinni...það héngu pakkar í loftinu og það á alltaf einn starfsmaður að að klippa niður gjöf á hverjum morgni og opna. Ég man að við gerðum þetta þegar ég var í grunnskóla og mér fannst gaman að sjá svona aftur. Ég spurði múttuna hvort að hún væri búin að fá gjöf...en það var ekki búið að koma að henni. Þá fór ég eitthvað að reyna að babla "jeg synes det er saa hyggeligt at have saadan". Hún leit á mig með skrýtnum svip því ég var eitthvað of mikið að fýla þetta hehe.
Það var búið að vara mig við smá fordómum gagnvart okkur stud.med krökkunum sem komum að taka vaktir á deildinni. Ekki það að starfsfólkinu sé illa við okkur en ég held að það sé bara þannig að við erum ekki fast starfsfólk og því alltaf að koma nýir og nýir til að vinna og því vill fasta starfsfólkið ekki tengjast okkur mikið. Enda fann ég það alveg smá. En fyndnast fannst mér að inn í staffaherberginu hékk svona listi með reglum og ein reglan var "verið góð við stud.med starfsfólkið sem kemur og látið því líða eins og þau séu velkomin". Það þarf að setja í reglur að vera almennileg við okkur!!! hehehe
Ég var svo í því að taka blóðþrýsting og hjúkra gömlum manni sem mátti ekki hreyfa sig í 6 tíma. Hann var svo veikur og átti erfitt með andardrátt en hann lét samt sitt ekki liggja í daðrinu. Blikkaði mig sundur og saman og sagði svo að ég ætti bara að leggjast hjá honum. Hann hefur fílað mig í hjúkkukjólnum!!! posted by benony 9:44:00 e.h.
mánudagur, desember 01, 2003
Ég átti geggjaða helgi!!!
Ég var að setja inn myndir frá helginni og ég hef alveg hugsað mér að skrifa hvernig var en ég er bara svo slöpp núna. Vaknaði með hálsbólgu og kvíði voða fyrir að vakna klukkan hálf sex í fyrramálið. Ég er að fara að taka vakt á spítalanum frá 7 til 15 og fæ ekkert borgað fyrir það!!! Þarf að vera vel upplögð!
Bara að segja smá um helgina því myndirnar eru frá henni.
Föstudagskvöld-julefrokost með gamla bekknum mínum!! Mér sýndist krakkarnir glöð að sjá mig og ég lenti meira að segja á trúnó á dönsku!!
Laugardagskvöld-julefrokost með íslensku læknanemunum í Odense. Ég var að hjálpa til við að undirbúa þetta partý og það þótti takast rosalega vel! Fullt af skemmtilegum sögum frá kvöldinu...eins og þegar ég hellti sósunni...mér fannst hún vond! Svo heyrðust setningar eins og "nei, Sara drekkur ekki", "glætan að Sara sé edrú í kvöld". Madjó stælar í strákunum og stelpurnar sem hafa alltaf rétt fyrir sér. Svo skemmtilegar sögur frá deginum eftir djammið :)
Allt þetta og meira til þegar Sara er ekki eins slöpp...