be Rauðhærði útlendingurinn

online

{Rauðhærði útlendingurinn } spacer
spacer

This page is powered by Blogger. Is yours?

spacer
powered by blogger

Íslendingar

Ásdís frænka
Bendt
Danni
Disco Dóri
Dísa skvísa
DJ Diljá
Eiríkur
Guðjón
Gummi Jóh
Gunna frænka
HÁS
Hlynur
Ívar
Jóinn
Kolla
Kreisígörl
Lára babe
Lukka
Maj-Britt
Ziggy
Vigdís
Örn Ingi og Elín

Danir

Ásta
Bryndís
Davíð
Elva
Freyja
Gummi
Gunnhildur
Gunni
Harpa og Elvar
Heiðdís
Helena
Hjördís
Katla
Kolla
Margrét Lára
Ragnheiður
Sigurrós
Sólveig

Daglegir linkar fyrir mig

Skólinn minn
FÍLÓ
FÍLD
FADL
medicalstudent.dk
doctor.is
Odense


{þriðjudagur, desember 30, 2003}

 
Nýr heimur...

Ég er að lesa Harry Potter þessa dagana. Fyrstu bókina sko, ég veit ég er sein en betra er seint en aldrei. Mér finnst ég svolítið eins og Harry, ég finn mig í stráknum, allavega í dag. Ég stóð allan daginn í Kringlunni og beið. Stóð við innkaupakörfuna meðan mamma beið í röðum, þetta var alveg sick. En á meðan ég stóð þarna og beið og skoðaði fólkið þá fór að vaxa lubbi á mér og mér fannst ég vera með gleraugu alveg eins og Harry. Ok, nú missti ég mig aðeins, en mér fannst allt í einu ég hafa sofnað og vaknað inn í nýjan heim.

1) Ég held að það hafi einhver gaur staðið á Esjunni fyrri hluta ársins og sprautað yfir Reykjavíkina þannig að það kom úrhellissæðisrigning. Og allar stelpur sem voru úti að leika sér bara "úpps". Kannski voru þetta alveg nokkrir gaurar, en afraksturinn var rosalegur, það eru svo margar kunningjakonur mínar með barnavagn. Ég hafði ekki við að kíkja í vagnana. Ég var heppin að hafa flúið að landi brott...ætli ég smitist þar sem ég verð svo lengi í þetta skipti?

2) Vinir litla bróður míns eru orðnir fullorðnir menn með kærustur og eru að versla í ríkinu. Fara svo upp í bílana sína og rappa. Ég er bara næstum feimin við þá...næstum sko.

3) Það er ekki hægt að keyra lengur um bæinn því maður er alltaf staddur á hringtorgi, alltaf að keyra í hringi núna. Ótrúlegt..

4) Pabbi var alltaf að skamma mig á gelgjunni fyrir að tyggja tyggjó. Fór geggjað í taugarnar á honum. "hættu þessu jórtri stelpa". Haldiði ekki að gæinn hann faðir minn sé ekki bara jórtrandi eins og belja í sífellu núna. Stoppa í sjoppu og kaupa tyggjó... tyggjóklessurnar eftir hann út um allt... Ég held honum finnist hann eitthvað kúl, stoppa í sjoppu að kaupa tyggjó og sígó. Detti mér allar...

5) En alltaf er eitt eins... Íslendingar eru manískir, það sést á jólaljósunum í bænum og röðunum í búðunum í dag. En við erum stolt af okkur..og ég stolt af því að vera íslensk...þó svo að það séu furðulegir hlutir að gerast eins og hjá Harry Potter.






posted by benony 9:57:00 e.h.
 
Hver ætlar að koma með mér út að búa til engla!!??

posted by benony 2:42:00 f.h.


{mánudagur, desember 29, 2003}

 
Jæja....

Þá er það LOTR í kvöld, þ.e.a.s ef ég kemst út úr húsi fyrir snjó!

posted by benony 7:46:00 e.h.


{laugardagur, desember 27, 2003}

 
Djammið í gær er djamm eins og öll djömm eiga að vera..

...samt er ég smá hrædd við að fara inn á Vegamót aftur..var svolítið villt en það var Jóa að kenna. Hann var að æsa mig upp í þessu rugli. En váhh, hvað ég skemmti mér vel. Einn starfsmaður Vegamóta vatt sér svo upp að mér og sagði að ég kæmi örugglega í næstu Undirtónum með vibbamyndinni sem er á síðunni þeirra. En það er bara gaman að því. Stefnan er tekin á djammið aftur í kvöld til að þjálfa upp J-lo dansinn minn. :)

posted by benony 7:50:00 e.h.
 
Ó mæ goooooooood hvað ég var mikil gella....ó mæ god. Spurjið bara Jóa hann er þjálfari minn og umboðsaðili.

posted by benony 7:35:00 f.h.


{fimmtudagur, desember 25, 2003}

 
Gleðileg jól

Jólin eru hopp og jólin eru hí
jólin eru spariföt og jólagotterí
Jólin er göfug, friður og frí.
Jólin eru gömul og jólin eru ný
jólagotterí jólagotterí.

Jólin voru yndisleg, ég fékk alla mína drauma næstum uppfyllta og ég át á mig gat. Ég held samt að kertasníkir sé eitthvað að missa sig karlinn þessi jólin. Hann nefnilega gaf mér tvennar g-streng nærbuxur... já, það er svona með karla í uniformi þeir eru eitthvað sjúkir í mig.

Dóri þekkir mig vel og gaf mér æðislega peysu sem er heiðgræn og fer vel við rauða hárið, og svo fékk ég æðislegan slopp frá mömmu og pabba. Þetta er svona boxarasloppur með hettu þannig að ég verð að taka smá hopp og kýla í loftið í hvert sinn sem ég fer í hann. Svo náttúrulega fékk ég inniskó, hálsmen, krydd, baðkörfur, sandala, ilmvatn og bodylotion og allskonar fallega hluti sem eiga eftir að nýtast mér í lífinu. Nady sys fór hamförum í pökkunum, hún elskar að fá pakka og gefa pakka...þetta er hápunktur í lífinu hennar þegar hún fær gjafir. Hjálmar sem er 17 ára fékk óvart bók í töskunni sem hann fékk frá Silla og Margréti sem fjallaði um praktical ways to help babys to sleep during the night. Ég sagði familýunni að ég ætlaði að lesa upp ljóð og allir þögnuðu og hlustuðu en þá las ég með svona ljóðatón upp úr bók sem fjallar um skemmtilega kynlífsleiki. Það vakti kátínu og hæst hló amma sem er 82 ára. Hún var líka svo sæt þegar hún var að lesa jólakortin sín því hún las alltaf sömu kortin aftur og aftur og var alltaf jafn hissa. Algjör dúlla skvísan. Svo grét ég yfir mínum jólakortum eins og hvert einasta ár og allt var voða happy....
Yndislegast var að um klukkan hálf tvö fór ég í smá göngutúr út í nóttina. Það var snjór og rosalega stillt veður og ég labbaði og skoðaði jólaljósin. Svo fór ég í Neðstabergið þar sem fjölskylda Margrétar á heima og þar var Silli að halda jólin og Tindur litli. Ég fékk að sjá hann sofandi og hann brosti í svefni...hve yndislegur er hægt að vera? Hann er orðinn hlunkur og ég hlakka svo til að kynnast honum betur.

Nú er jóladagur og ég er búin að vera að leika mér með Brynju og Drífu. Við vorum að hipp hoppa eins og þegar við vorum 13 ára....hve glataðar vorum við þá, en okkur fannst við geggjað töff!!! :)

Hangikjötið bíður mín, ég ætla að fara að belgja mig upp... úff

Gleðileg jól :)

posted by benony 9:30:00 e.h.


{miðvikudagur, desember 24, 2003}

 
Jólailmurinn....

..angar um Háberg 26 núna því mamma er búin að setja kjötið á suðu. Amma Baddý er komin í heimsókn og gistir hjá okkur yfir hátíðirnar alveg í stuði beint frá Grund. Skrautið komið á jólatréð og í stofuna og nokkrir pakkar undir tréð. Ég er búin að setja sokkinn minn upp við beddann sem ég sef á og ég hef góðar heimildir fyrir því að Kertasníkir sé ekki að fara að svíkja mig um eitthvað sætt þessi jólin :)

Ég fékk jólastemmninguna yfir mig um leið og húsið byrjaði að anga og góðir vinir hringdu til að óska mér gleðilegra jóla. Jólin eru þægileg stemmning...

posted by benony 1:19:00 f.h.


{þriðjudagur, desember 23, 2003}

 
Ég held að löggum finnist ég hot...eða eitthvað allavega!

Ég veit ekki hve oft í gegnum tíðina löggan hefur stoppað mig..eða allavega skipt sér af mér í umferðinni í gegnum árin. Ég er búin að hafa bílpróf síðan ég var 17 og það eru þá komin..17-18-19-20-21-22-23 ok 6 ár og þeir hafa örugglega stoppað 12 sinnum. Bíddu ég ætla að telja upp svona það helsta og fyndnasta.

1) Það nýjasta er núna fyrir 2 dögum. Ég var að sækja litla bróður minn á Skjálfta upp í Kópavogi. Þegar við sitjum svo systkinin í hrókasamræðum um hvernig kappanum gekk í tölvuleiknum sjáum við að það er kviknað á vélarljósinu þannig að við keyrum upp á bílastæði rétt hjá. Við löbbum út og erum að bakstra við að opna vélarhlífina þegar löggan rennir sér upp að okkur, skrúfar niður rúðuna og tuldrar "hvað er eitthvað vesen?" Geta má þess að löggumann var með tannstöngul og var svona að stanga úr neðri tönnunum á meðan við spjölluðum saman. Ég sagði bara að við værum að tékka á vélinni út af því að það hefði komið ljós... "já já" muldraði hann með tannstöngulinn leikandi við skánina. "Þið reddið þessu".

2) Árið er 2000, ég er tvítug og Eva vinkona 22 ára...það er maí og við erum að útskrifast úr FB. Við sitjum í bílnum stoltar með stúdentahúfurnar okkar og erum að syngja hástöfum með einhverju lagi í græjunum. Gæti meira en vel verið að við séum að dilla okkur og slamma jafnvel!! Byrjar ekki bláa ljósið að blikka... ég stoppa bílinn og tveir hönk löggumannar spyrja "Er verið að skemmta sér stelpur". "Jáhá, rosa vel!!!" segjum við þá. "já já og hafið þið verið að drekka" spyrja þeir sem ég skil reyndar alveg að þeir hafi gert þar sem við vorum í stuði með stúdentahúfur. Ég lít þá bara djúpt í augu annars og segi "nei, veistu ég drekk ekki svoleiðis.." Okkur var sleppt.

3) Held sumar 2000, ég og Eva aftur staddar í bíl en nú er Eva að keyra. Við erum að keyra niður Laugaveginn í rosa samræðum um eitthvað mjög mikilvægt örugglega þegar mótorhjólalögga í fullum skrúða bandar hendinni í fullu og við stoppum. Hann argar "ERTU BRJÁLUÐ??? ÞAÐ ER SPRUNGIÐ HJA ÞER, ÞÚ VERÐUR AD LAGA ÞETTA". Eva alveg skíthrædd keyrir út í kant og við stökkvum út úr bílnum. Jú jú það var sprungið en við höfðum ekkert tekið eftir því. (engar smá bílaljóskur) Löggumann rosa reiður og var alveg að sýna hver væri við völd. Við í gellufötum vitum ekki alveg hvernig við eigum að höndla þetta en erum eitthvað að spá sko hvernig við eigum að redda dekkinu þegar þessir tveir löggumannar í fullum skrúða...við erum að tala um í fullum skrúða eru komnir á fullt að sækja varadekk og við vitum ekki fyrr en annar þeirra er bara byrjaður að tjakka bílinn upp og haldiði ekki bara að hann skipti fyrir okkur. Og ekki nóg með það þá byrjaði hann að daðra karlinn "já, stelpur, hvaða skemmtistaði farið þið svona helst á þegar þið eruð að skemmta ykkur?" Það hefur verið fyndin sjón fyrir þá sem voru að keyra Laugarveginn að sjá löggumann í fullum skrúða að skipta um dekki hjá tveimur litlum gelgjum. Enda þegar við settumst inn í bílinn eftir að hafa þakkað vel fyrir okkur þá örguðum við af hlátri!!

4) Ég er að keyra með bílinn fullan af fólki og þar á meðal eru tveir dökkir vinir vinkvenna minna. Ég er að keyra bara ósköp venjulega og ekkert að þegar heyrist í sírennum fyrir aftan og bláa ljósið alveg á fullu. Ég stoppa bílinn og fer út í kant og spyr hvað gangi á þegar löggan kom. Hún bað mig að koma með sér inn í bíl til þeirra og ég geri það að sjálfsögðu. Þegar inn í löggubílinn kom talaði löggumanninn inn í talstöð og sagði "já, Sara Bjarney Jónsdóttir, kt XXXXXX-XXXX geturðu tékkað á henni fyrir mig. Eftir stutta stund heyrist rödd í talstöðinni "Sara er í lagi". Þá brosa löggurnar og segja "Farðu bara varlega". Ég var brjáluð

5) Er dræver eitt djammkvöld fyrir stærsta (samt minni en ég) bróðir minn og er stoppuð þegar ég hef aðeins einn vin bróður míns eftir í bílnum. "Var verið að skemmta sér". "já" segjum við. "Má ég biðja þig um að blása fyrir mig". Ég hrópa upp yfir mig þá "YES, Mig hefur alltaf langað að prófa, já komdu með þetta". Hann réttir mér tólin og ég frussa þarna eitthvað í tækið...ekki alveg að kunna handtökin og vinur bróður míns flissar bara þarna við hliðina. Okkur var sleppt.

6) Já, síðast en ekki síst...þá er ég þekkt í bænum Bíldudal fyrir að hafa verið stoppuð af löggunni. Bíldurdalur er lítill bær bara ein gata með smá hring á endanum og ég keyrði frá einni íbúð og svona 20 metra til þeirrar næstu...en löggan náði að stoppa mig. Þetta hefur víst aldrei gerst áður.

Hvað haldiði...löggunni finnst ég eitthvað HOT...eða hvað??

posted by benony 4:58:00 f.h.


{fimmtudagur, desember 18, 2003}

 
Jæja, þá er maður komin hjem!!!

En hvað þetta er notaleg tilfinning, samt ekki búin að hitta allt fólkið en hef tekið það rólega bara svona fyrst. Búin að vera chilla með múttunni og litla bróður svolítið mikið og við skelltum okkur í Kringluna í dag og ég fékk mér númer í símann og svona. Ég er reyndar eitthvað að vesenast með símann minn því hann er læstur fyrir að setja önnur kort í hann...en það verður komið í lag bráðum.

Annars var Kringlan ekki að gera það fyrir mig í dag. Hún er flott og allt það en ég varð eitthvað pirruð á öllum látunum. Við Hjálmar vorum næstum komin í slag, svona systkinaslag meðan við vorum að bíða eftir mömmu sem var í heila eilífð að versla í matinn. Ég sá heldur eiginlega engan sem ég þekkti en ég held að það geti verið að það sé út af prófunum í Háskólanum.

Í gær fór ég með mömmu og pabba í góðum fíling að borða Hlölla, mér fannst það mjög fyndið. Enda höfðu þau aldrei smakkað hann áður. Þarna sátum við á Hlölla öll út ötuð í sósu og lásum blöðin...algjörir töffarar. Eftir það hringdi Toggií mig sem var einmitt í sjónvarpinu þetta sama kvöld...stóð sig eins og hetja og hann sótti mig til að fara með mig í púl með strákunum. Við vorum nú ekki alveg að meika það í púlinu við Toggi en ég er alveg viss um að ég verði orðin góð eftir smá æfingu;) Arnar 6 og Bjarki sýndu samt bestu taktana, jú og gaurinn sem var á borðinu vinstra megin við okkur. En hann var einn að spila.
Svo skelltum við okkur á Vegamót þar sem aðdáendur Toggalétu sig ekki vanta...tíhíhíhí

Jæja, nú er ég að fara að lenda í fleirum ævintýrum...þið bíðið bara spennt!!


posted by benony 8:44:00 e.h.


{þriðjudagur, desember 16, 2003}

 
Hæ hæ allir!!!

Ég er alveg á spíttinu núna til að ná að vera komin á lestarstöðina á réttum tíma. Ég á flug um tólf frá Kastrup og verð því lent á Keflavíkurflugvelli klukkan 14:15 að staðartíma.

Ég hlakka óendalega mikið til að hitta ykkur.

Jæja, núna kem ég....(ekki í dónalegri merkingu)....Sjáumst!!!!

bæ á meðan!

posted by benony 6:43:00 f.h.
 
Ef þetta er ekki það fyndnasta sem ég hef lent í....

ég fór í próf í dag sem kannski er ekki frásögum færandi en þetta var próf sem var næstum því bara skemmtilegt...allavega fyndið.
Þið vitið ekki hvað við erum búin að vera stressuð fyrir þetta próf því það er leikið og munnlegt og það tekur á sérstaklega þar sem það er á dönsku og ungir krakkar sem maður gæti jafnvel þekkt úr skólanum að spurja út úr.

En hvað var svona fyndið við þetta próf Sara, segðu okkur það, segðu okkur það!!!!!

Jæja, best að byrja á byrjuninni. Ég, Elva og Valdís hittumst á Winslow parken til að hlýða hvor annarri yfir áður en við héldum í prófið. Þá fórum við að ræða um hvað okkur fyndist nú stressandi við þetta próf. Aðallega fannst okkur erfitt að hugsa um að prófdómararnir væru krakkar á okkur aldri en ekki bara karlar og kerlingar eins og maður er vanur. Í þessu löbbuðu tveir drengir framhjá, einn George Clooney og einn Woddy í Staupasteini. Þá sagði ég..."ég myndi t.d deyja ef þessir gæjar myndu vera þarna í prófinu". Stelpurnar kinkuðu kolli.
Við lásum geggjað vel og vorum orðnar eldklárar...þegar við vorum að hjóla orguðum við upp öll sjokkstigin og hvað einkenndi þau. Fólk sem hefur heyrt til okkar hefur örugglega haldið að við værum að missa okkur...
Svo mættum við í prófið..... Við vorum fjórar sem áttum að byrja inni og það voru akkúrat við þrjár og ein dönsk sem heitir Lea.
Svo kemur prófið...jú jú haldiði ekki bara að George Clooney og Woddy standi þarna og heilsi okkur. Þarna var Valdís að springa úr hlátri og leit á mig því hvað hafði ég endað við að vera að segja. Ég held stundum að það sé einhver þarna uppi að stríða mér.;) En það var ekki bara þeir heldur var Brad Pitt og annar einhver sem líktist leikara brosandi til okkar þarna.
Prófið var þannig byggt upp að það voru fjögur rúm þar sem maður var í korter á hverju rúmi þannig að þetta var klukkutíma próf. Fyrsta rúmið sem ég fór á þá þurfti ég að hugsa um sómatískan sjúkling sem átti að vera sjötugur og ég þurfti að passa að hann dytti ekki úr rúminu og gefa honum að drekka. Með hlutverk sjúklingsins fór Brad Pitt, Brad Pitt á nærbuxunum. Eftir að ég hafði búið um rúmið og svarað spurningum um legusár og ýmislegt annað þá hoppaði Brad félagi upp í rúmið og fór að leika mjög órólegan gamlan mann sem pissaði í sig og vitiði hvað!!! Nei, ég veit að þið trúið þessu ekki.... Ég þurfti að skipta um bleyju á Bradda félaga Pitt. Ég get líka ímyndað mér að svipurinn á mér hafi verið fyndinn þegar hann sagðist hafa pissað í sig og ég lyfti sænginni og sá bleyjuna. Ég sagði eitthvað "nohh, du har en ble" og reyndi að halda hlátrinum niðri því ég mátti jú ekki hlægja.
Á rúmi númer tvö var ég spurð um teoríuna og þar sat ég með Woddy sem vinnur á Staupasteini þar sem hann spurði mig út úr bókinni og svona teoríska hlutann við hjúkrunina. Sjokkin og meðvitundarleysi, lyfin osfrv. Það gekk rosa vel á þessum bás og ég held að ég hafi bara fengið tíu því ég svaraði öllu rétt þó svo að ég væri ansi stressuð...þurfti að lýsa fyrir félaganum hvernig ég þvæði konum að neðan. ;)
Á rúmi númer þrjú átti ég að mæla ýmislegt eins og blóðþrýsting og púls og kíkja með ljósi í augasteinana. Það gekk vel og þau voru ákaflega næs á þessum bás. Enginn leikaraskapur.
Á rúmi númer fjögur var svo geðdeildin. Þar fór George Clooney með hlutverk maníusjúklings sem ekki mátti fara úr herberginu og ég átti að passa hann. Þarna var ég eins og heima hjá mér...eiginlega bara mætt í vinnuna á Landsspítalanum því George fór með leiksigur í þessu hlutverki. Hann var alltaf að láta mig stjana í kringum sig en ég náði að sýna festu og ekki láta vaða yfir mig. YES...ég er að koma til ;) Þó svo að George Clooney væri að biðja mig að syngja fyrir sig eins og konan hans gerði fyrir hann á kvöldin þá sagði ég bara "Ja, men jeg er ikke din kone". hehe

En ég NÁÐI og er nú SYGEPLEJEVIKAR og get farið að taka vaktir á spítalanum og fengið borgað fyrir það!!!!!

posted by benony 2:04:00 f.h.


{sunnudagur, desember 14, 2003}

 
Meðan fréttir berast....

...um að Keikó sé dauður og Saddam Hussein sé fundinn þá sit ég með allt á rúi og stúi af þvotti, ferðatöskum og jólagjöfum fyrir aftan mig og les fyrir próf. Heimurinn hlær og grætur á sama mómenti.

Ég er án vafa spennt að koma heim, enda bara tveir dagar þangað til ég get hlaupið slow motion hlaupið mitt með hárið flaksandi í fangið á mömmu, pabba og Hjálmari. Eva hringdi í mig áðan og er búin að panta miðana með lestinni á þriðjudagsmorgun klukkan 7:47 þannig að það er ekkert til fyrirstöðu að við gellurnar, ég, Elva og Eva getum gellast á ferðalagi.

En fyrst er próf.

Ég er að fara í próf úr námskeiðinu sem ég var í hjá hjúkku dauðans eins og ég hef kallað grey konuna sem á það kannski ekki alveg skilið. Ég þarf bara að sýna mig því þetta próf er munnlegt og leikið, ég hef nú leiklistarþjálfun þannig að það ætti að reddast. ;)

En ég les áfram og hugsa um hve gaman það verður að hitta alla heima...strax búin að ákveða deit með Evu vinkonu sem er nýbökuð móður og hennar syni sem ég hef bara séð á myndum....hann heitir Hafþór Örn.




posted by benony 8:25:00 e.h.


{laugardagur, desember 13, 2003}

 
ELVA Á AFMÆLI Í DAG!!!!!!

Til hamingju með afmælið elsku skvísa. Það verður gaman hjá okkur í kvöld!!!

posted by benony 12:57:00 e.h.
 
Ég gæfi fólkinu mínu heiminn....

...ef ég gæti.

Ég er búin að versla jólagjafir og það er bara góð tilfinning. Nú get ég komið heim og notið þess að vera til og ekkert stress. Mamma var einmitt að segja mér hvað hún hlakkaði til að fá mig heim og ég fékk smá sting því ég alveg þrái að komast heim og faðma fjölskylduna mína. Mamma spurði líka hvað mig langaði að borða daginn sem ég kem heim og svo ákváðum við að við myndum baka piparkökur saman, eins og þegar ég var lítil. :) Ég hlakka svo til að koma heim og upplifa jólin aftur.

Ég, Elva og Katla fórum í bæinn eftir skóla og þá barasta kláraði ég innkaupin, en buddan er tóm.... Kórinn sem ég var í í fyrra var að syngja á göngugötunni í bænum og mig langaði alveg að syngja með þeim en ég dillaði mér bara í staðinn og brosti til Guðnýjar sem var svo glöð og sæt þarna. Svo kom lagið mitt eins og ég kalla það eða sko lagið sem ég söng sóló við í kirkjunni á jólunum í fyrra og það var komin ný söngkona að syngja það. Mjög flott hjá Gitte, hún er söngdíva bara.

Svo sátu ég og Elva á bekk inní SuperBrugsen eins og rónarnir og drukkum kók og spjölluðum. Við vorum nefnilega svo þreyttar í fótunum og í höfðunum að við duttum í rónasvaðið bara. Þarf ekki mikið til ;)
Þarna sátum við og þá kom Sören bekkjarbróðir og spjallaði við okkur. Honum fannst svo langt síðan hann hafði séð mig í skólanum en ég er samt búin að mæta alla vikuna...hef kannski bara látið lítið fyrir mér fara í 150 manna fyrirlestrarsalnum. Ég fann að ég þarf að rækta vinskapinn við Sören því hann er góður strákur, er ekki sama um vitlausa rauðhærða útlendinginn.

posted by benony 12:56:00 e.h.


{fimmtudagur, desember 11, 2003}

 
Viðtal við hjúkku dauðans...

...gekk fínt bara. Við sátum saman vinkonurnar og fórum yfir ritgerðina sem ég skilaði um praktíkina sem ég átti á nýrnadeildinni. Ég stóðst en hún vildi fara með mér yfir ákveðin atriði. Það sem henni fannst gott var að ég gerði lesturinn léttan og skemmtilegan, svo fannst henni ég observera (skoða og túlka) sjúklingin vel því ég hafði skrifað að hann hafi verið kátur og gantast mikið en ég teldi að hann brygðist þannig við því honum fyndist aðstæður óþægilegar og hann væri því óöruggur. Það sem henni fannst slæmt var að hún var ekki nógu djúp hjá mér ritgerðin og ég fjallaði ekki nógu djúpt um teoríuna á bakvið ástæður ýmissa aðgerða. Ég bað hana að taka dæmi fyrir mig og þá kom frá henni.... "t.d þú talar hérna um að þú hafir matað sjúklingin og það mætti ekki mata hann of hratt og það þyrfti að leyfa sjúklingnum að kyngja vel áður en hann fengi næstu skeið, en þú segir ekkert afhverju það megi ekki mata hratt?". Ég kinkaði bara kolli og sagði "ok, ég skil". Þegar ég kom út fór ég að pæla hvaða rugl væri í gangi... ég þurfti að skrifa afhverju ég mætti ekki mata karlinn minn hratt...nú ég vissi náttúrulega ekki að ég hafi verið að skrifa ritgerð fyrir smábörn!
Svo svona í lokin, þá sagði hún... "er du klar for eksamen?" Ég játti því að ég væri sko helt sikker klar. En þá sagði hún "Sara, gerðu mér greiða, ekki vera stressuð í prófinu og mundu að hlusta vel á það sem sagt er því þitt VANDAMÁL er tungumálið. Þarna var mómentið sem ég þurfti að svara fyrir mig en ég umlaði bara "men jeg har ikke problemer med at forstaa". og þá sagði hún "það er þitt eina vandamál fyrir þetta próf". Hlustaði ekkert á mig.
Ástæðan fyrir því að mér finnst leiðinlegt að hún hafi sagt þetta er að ég er búin að búa hér í rúmlega eitt ár og skil alveg dönsku og hún hefur aldrei verið í vandræðum með að skilja mig. Við ræddum saman þarna í þessu viðtali og þetta voru mjög svona smooth umræður og það virtist sem hún skildi mig og ég skildi hana alveg. Þess vegna finnst mér ég ekki eiga skilið að hún kalli þetta vandamál hjá mér þar sem hún minnist ekki á það hjá öðrum útlendingum. T.d ein norsk sem er soldið erfitt að skilja... Stundum finnst mér eins og hún noti þetta til að pikka í mig en ég er kannski bara ímyndunarveik...

posted by benony 10:47:00 e.h.
 
YESSS!!! ÉG ELSKA AÐ VERA SETT Á HOLD!!!! SÉRSTAKLEGA ÞEGAR ÉG ER BÚIN AÐ BÍÐA Í KORTER!!! TIME OF MY LIFE! ;)

posted by benony 6:22:00 e.h.
 
Suðupunktur....

...allt að gerast, próf að nálgast, jól að nálgast og stóri heimferðardagurinn er eftir 5 daga. Bíddu var fyrir 20 dögum síðan ekki bara í gær?? :)

Dóri bróðir minn var hjá mér í tvær nætur og við náðum að klára (næstum) jólagjafirnar. Það er alltaf svo gott að fá Dóra í heimsókn því við tölum svo mikið og hlægjum enn meira. Svo vorum við að reyna að reikna hvort annað út.. þ.e ef Dóri sýndi einhverjum hlut mikinn áhuga þá svona "hey, ég gæti gefið honum svona", Dóri var að pæla í því sama hjá mér þannig að ég varð að passa mig á því hvað ég skoðaði...hehe Einu sinni stóð Dóri svolítið lengi með bleikan trefil í höndunum og þá náttúrulega sagði ég hann ætti á hættu að fá hann í jólagjöf frá mér. Hann var fljótur að sleppa honum....var víst að pæla í hann fyrir mömmu en ég segi nú bara "bullshit"!!!
Gaman að komast í smá jólaskap og gott að vera búin með næstum allar jólagjafir, það er þá minna stress. Ég kem á þriðjudaginn og fer í próf á mánudaginn þannig að það verður frekar mikið um helgina að stússast. Svo á Elva afmæli og við verðum nú að tjútta í tilefni þess...og svo auðvitað kveðja allt liðið.
Það var sorglegt að kveðja Dóra í morgun því við föðmuðumst og sögðum svo "Gleðileg jól"....ég hef aldrei upplifað jól án Dóra bróður!!!

Ég er ótrúlega dygtig..hérna fáiði myndir frá heimsókninni hans Dóra.

posted by benony 3:16:00 e.h.


{mánudagur, desember 08, 2003}

 
Sammari....

.....alveg er ég að deyja úr samviskubiti eftir atvik sem gerðist í gær. Kannski alveg óþarfi en mér líður illa yfir þessu.

Já, þetta er sagan um samviskubitið sem nagar mig....

Ég fór á skauta með Cecile sambýliskonu minni og vinum hennar. Hún á ógrynnin af vinum sem eru að vinna með henni sem koma allsstaðar að úr heiminum og ég hef hitt þau flest. Einn félagi hennar er sá sem kallar mig Miss Iceland og sama hvort ég komi til dyra úfin með bauga í náttbuxunum og jafnvel hor lekandi niður á kinn þá er ég bara "the most beautiful girl in the world". Hann kemur líka alltaf hrópandi "MISS ICELAND, ARE YOU HOME!!" og ég ekki að kaupa þennan sleikjuhátt í honum brosi bara eða hlæ að honum.
Í gær var hann náttúrulega mættur á skautasvellið og þegar hann sá mig var ég náttúrulega orðin fegurðardrottning og guð minn góður ég var með æðislega eyrnalokka og flotta húfu og ég var svo beautiful þetta kvöldið lét hann mig heyra. Ég skellti mér á svellið og hann beið eftir að ég tæki spinningin en ég svona truntaðist á svellinu eins og belja því ég er ekki búin að standa á skautum síðan ég var bara lille. Svo komu íslenskir vinir mínir, Elva og Davíð og ég fór að kynna þau, svona varð það vandræðalegt:

Ég: Yes, this is Mr. Dominic Republicum and....
Gaurinn: What did you say?
Ég: Mr. Dominic Republicum??
Gaurinn: Don´t you know where I come from Serah?? I come from a country in Europe
Ég: Not from Dominic Republicum??
Gaurinn: No, that´s not in Europe
Ég: Ok, where are you from then?
Gaurinn: I´m from Albania
Ég: nohh, ok, I just thought....
Gaurinn: But you know my name right??
Ég: Yes, ofcourse...
Gaurinn: SERAHH???
Ég: I know it...it´s uhhhhh
Gaurinn: You don´t know my name and we have been talking so many times!!"

Nú var ég farin að svitna og fór eitthvað að reyna að bjarga þessu..

Ég: But you know, you have such a difficult name for me to remember. It´s easier for you because my name is Sara
Gaurinn: My name is not difficult
Ég: Yes, it is...
Gaurinn: NO!!!!!!!!!! My name is Tony
Ég: ahhh, I knew that!!!!!!

Ég var algjörlega búin að klúðra þessu....en þá stundi ég upp og blikkaði augnhárunum:

Ég: You know, it´s just because I am a beautiqueen, so I can´t be clever to!!!!

Þarna hló hann en labbaði svo í burtu og hann var virkilega fúll....ég held ég hafi misst titilinn "Miss Iceland." :(

posted by benony 8:16:00 e.h.


{laugardagur, desember 06, 2003}

 
Litlu hlutirnir....

...í umhverfinu og lífinu og litlu atvikin...þau gera líf mitt svo ævintýralegt. Ég er sögð vera draumóramanneskja og oft á tíðum væmin því ég lifi í ævintýraheimi. En ég neita því ekkert að stundum get ég misst mig í ævintýraleitinni en finn oftast ævintýrin þegar ég síst leita þeirra....

í gær var svolítill ævintýradagur, því það voru svo margir litlir hlutir sniðugir sem gerðu daginn eftirminnilegan.

Þetta byrjaði allt saman í efnafræðifyrirlestri. Þetta leit út fyrir að verða bara venjulegur fyrirlestur þar sem maður situr og glósar og klórar sér í hausnum en hann varð þannig að ég fór aftur í tímann þegar ég var lítil að gera dyraat og mér var náð. Málið er nefnilega að í pásunni fór strákur að skrifa á töfluna eitthvað um megafest þann 13 des á hunderupvej fyrir medicin krakkana. Ég minntist þá á við stelpurnar að það væri verið að halda megafest á afmælisdeginum hennar Elvu því hún á jú afmæli þann 13 des. Þá sagði ég "ætti ég að skrifa á töfluna að Elva eigi afmæli þá". Valdís byrjaði þá að mana mig geðveikt... Það virðist ekki vera neitt voðalega erfitt að mana mig út í vitleysu, allt fyrir djókið. Þannig að ég fór þrátt fyrir hávær mótmæli frá Elvu upp á sviðið fyrir framan alla 100 nemendurnar og skrifaði fyrir neðan partýauglýsinguna "Pa grund af Elvas födselsdag" og settist svo eldrauð og flissandi í sætið mitt. Ekki leið að löngu þar til gaurinn sem var að halda partýið kom til okkar og var ekki hress!!!! Hann tók það fram við Elvu að það væri sko ekki partý út af afmælinu hennar og ef við myndum auglýsa þetta sem afmælispartý myndi örugglega bara 10 manns koma. Þarna hló ég svo mikið að mér var illt því gaurinn var ekki að fatta djókið í þessu öllu saman. Hann fór svo og strokaði það sem ég hafði skrifað út en kom svo frekar vandræðalegur og spurði hvort við ætluðum ekki að mæta í partýið. Milli hlátursekkasogana stundum við upp "jú jú við mætum". Besta við þetta var að fólkið í salnum var alveg að fatta djókið og var að hlægja þannig að við komum ekkert voðalega asnalega út...Elva greyið fékk kannski verstu útreiðina. Hún segir sína hlið á síðunni sinnihérna


Eftir tímann fór ég upp í lessal til að lesa smá efnafræði og sat þar í góðum fíling þangaði til Eva hringdi í mig. Hún var með mér í FB en við þekktumst lítið þá, bara svona brosogsegjahæ en nú býr hún í Odense og þá þekkir maður alla miklu betur þ.e ef þeir eru íslendingar. Allir að fást við sömu vandamálin. En hún semsagt hringdi í mig til að tékka hvort ég væri ekki heil á húfi. Hún hafði verið að hlusta á fréttirnar með öll innbrotin á kolleginu mínu. Agalegt alveg því fólk er búið að vera pyntað hérna í næstu húsum við mig. Ég sagði henni að ég væri heil því ég hefði verið heppin að lenda ekki í körlunum. Við kjöftuðum svo í símann dálitla stund og komumst að því að við erum að fara heim til Íslands með sama flugi þann 16 des!!! Jibbý Þá verðum við fleiri að gellast á Kastrup ;) Við enduðum svo á að ákveða að skella okkur í bíó á stelpumynd. Hugh Grant maður, urðum að kíkja á karlinn!!!

Við drógum svo Elvu, Valdísi og Davíð með okkur. Davíð var eitthvað að reyna að vera með töffarastæla en hann fílaði held ég myndina meira en hann gaf upp...er það ekki Davíð? Þetta reyndist vera algjör "ó mæ god ég er með gæsahúð" mynd og við stelpurnar emjuðum við fíluðum okkur svo mikið. Eftir myndina þurfti ég sko aldeilis að tékka á gemsanum mínum. Mér fannst þetta alveg mómentið til að gaurinn sem er alltaf á hvítum hesti í góðum fíling myndi senda sms á rauðhærða útlendinginn. ;)

Á leiðinni heim var stormur!!! Fellibylir eins og við kusum að kalla á leiðinni. Við hjóluðum á móti vindi og þetta var mjög ævintýralegt móment því þetta myndi aldrei gerast heima að við værum að hjóla í þessu veðri. Svo voru risa leðurblökur að ráðast á okkur sem réðu ekkert við sig út af vindinum. Á leiðinni voru fullt af löggubílum og sjúkrabílum og meira að segja rannsóknarlögreglubíll að keyra frá Bolbro, hverfinu sem ég bý í. Ég byrjaði eitthvað að emja "ég vona að það sé allt í lagi með Cecile" Cecile er stelpan sem býr með mér. Ég fékk á tilfinninguna að bófarnir væru búnir að vera hjá okkur og ég hafi ekki verið á staðnum til að taka við höggunum. Ég er nefnilega karlmaðurinn á heimilinu því ég er stærri og af víkingaættum. Ég var alveg komin með tár í augun ég var svo hrædd um að Cecile lægi í blóði sínu heima og ég hefði ekkert getað gert til að vernda hana. En svo kom ég heim og hún bara í góðum fíling á djamminu auðvitað á föstudagskvöldi.

En já, þetta fannst mér ævintýradagur...svona er ég einföld!

posted by benony 6:39:00 e.h.


{fimmtudagur, desember 04, 2003}

 
já, ég ætlaði að segja ykkur frá julefrokostunum síðustu helgi....

...en ég er að spá í að segja bara létt frá því, því þetta var nú bara djamm, reyndar stórskemmtilegt djamm. Á julefrokosti íslensku læknanemana hérna í Odense var ég í undirbúningsnefnd og það tókst svona líka rosalega vel því allir voru að skemmta sér glimrandi. Ég fékk að stjórna leikjum og svo voru strákarnir mættir með gítarana og við sungum alveg fullt. Lagavalið var ansi skemmtilegt því þetta voru ekki hefðbundin lög eins og "fyrr var oft í koti kátt" heldur voru þetta lög með Megasi, Ómari Ragnarsyni og fleiri snillingum. Svo vorum við tryllt á dansgólfinu fram eftir nóttu og sumir þurftu að skipta um föt vegna þess hve svitinn spratt hratt fram.

Fyndnastur fannst mér svo dagurinn eftir. Ég og Elva fengum að krassa heima hjá Valdísi því hún býr rétt hjá Íslendingafélagshúsinu þar sem frokostið var haldið. Við ætluðum að mæta þangað klukkan 14 til að taka til því fólk var ekki í ástandi til þess þarna um nóttina. Síminn hringir svo hjá Valdísi og það er gellan sem lánaði okkur húsið og spyr hvenær við höfum hugsað okkur að koma og taka til. Valdís algjör snillingur, varla vöknuð en bablandi á dönsku segir að við ætlum að koma eftir klukkutíma. Konan segir þá að það eigi að nota húsið klukkan 14 og við verðum því að koma strax. (húsið var á hvolfi) Þá hrópaði ég upp yfir mig "ERTU EKKI AÐ DJÓKA" með svona reka-rollur-tón, ekki enn búin að opna augun og stekk svo á fætur. Ég hringdi svo í Andra og Heiðdísi og það er bara snilld að vekja fólk daginn eftir djamm. Ég eiginlega bara flissaði í símann... T.d var Andri svo sofandi að hann heyrði ekki rétt...
Ég: Andri, það á að nota húsið klukkan 2
Andri: Á AÐ LOKA HÚSIÐ KLUKKAN 2!!!!
Hann sagði þetta með svona Ó-Mæ-god-tón

Já, þetta var snilld...við vorum að klára að taka til þegar börn fóru að streyma inn til að fara í jólaföndur þarna. hjúkk mar

posted by benony 2:22:00 e.h.
 

posted by benony 2:22:00 f.h.
 
Setti inn myndir sem Valdís sendi mér...þetta er svona úr ýmsum áttum en alveg brill myndir finnst mér. Þær eru hér

Svo er Elva farin að blogga líka. Endilega kíkið á hana því hún er að upplifa sömu hluti og ég svona oftast, allavega að fást við það sama!!

posted by benony 2:11:00 f.h.


{miðvikudagur, desember 03, 2003}

 
Í rapportinu í morgun...

var ég alveg að meika það! Ég nefnilega er svo kvefuð og var nýbúin að vera að hjóla þannig að ég sat og hlustaði og það lak stanslaust niður úr nebbanum mínum. Ég var svo feimin að ég gat ekki staðið upp og náð mér í pappír heldur sat bara með hendurnar fyrir rennslinu og lét eins og ég væri geðveikt að hugsa. Held samt að það hafi alveg komist upp mig....

Mér brá svo smá eftir rapportið þegar múttan sem ég fylgi sagði "Sara mín, farðu inn á herbergi 3 og taktu blóðþrýsting af herrunum tveimur og svo þarf að mæla þá og vikta þá". Ég hugsaði bara "fokk maður, á ég að gera það sjálf??" En fór svo og náði í blóðþrýstingsmælinn, hitamælana og viktunarstólinn. Ég sagði herrunum hvað ég væri að fara að mæla og þeir tóku vel í þetta. Ég er svo vön að hjúkra fólki með andlega vanlíðan að ég verð alltaf svo hissa þegar sjúklingarnir taka rosa vel í það sem ég segi.. alveg hissa hvað allir eru næs við mig hérna. En annar herran var strákur sem var bara þremur árum eldri en ég þannig að ég var ekkert að mæla hann í rassinn...lét hann bara hafa mælinn sjálfur og kenndi honum á mælinn. Svo sagði ég honum að standa upp því ég ætlaði að vikta hann, honum fannst það eitthvað fyndið og gantaðist með það eitthvað. Ég reyndi bara að fela hvað ég var ég var feimin að vera að tala dönsku við þessar aðstæður og gantaðist eitthvað á móti. Ganti ganti ganti

En nú er ég búin að taka þessar fylgivaktir og ég fékk voða mikið út úr þessu...já já! Múttan var svo hjálpsöm og hlýddi mér yfir og svona, ég er nefnilega að fara í próf í þessu daginn áður en ég kem heim.

En mikið hlakka ég til að flytja frá Rasmus Rask. Það er nefnilega orðið hættulegt að vera hérna. Eins og fram hefur komið fyrr þá er búið að vera mikið um innbrot hérna og fólk að missa aleiguna sína í stríðum straumum. En nú er þetta orðið meira brútal. Bara hérna í hverfinu var bankað hjá einum strák og hann opnar. Þar standa fjórir gaurar sem ráðast á hann og berja hann þar til hann missir meðvitund. Svo stela þeir öllu sem hann átti. Þetta er bara að gerast í næstu húsum við mig fyrir nágranna mína. Ég er smá skelkuð...

posted by benony 11:58:00 e.h.


{þriðjudagur, desember 02, 2003}

 
Hvað er málið með að vakna klukkan 05:30

...ég var ekki viss hvað væri málið þegar ég var að hjóla klukkan 6 um NÓTT að mér finnst til þess að fara á vakt á spítalanum. Allt var dimmt og fáir á ferli. En ég hjólaði og saug upp í nebbakút því það vildi leka úr honum í stríðum straumum.
Þegar komið var á spítalann þurftum við að fara beint niður í kjallara til að sækja okkur kjóla. Mér leið eins og fífli þegar ég mátaði kjólinn....hvað er málið með að við séum í kjól í vinnunni!!! Hann er svona hvítur og rykktur í mittinu og nær rétt niður fyrir hné. Ég þurfti að kaupa sokkabuxur til að vera í.... Svo fór ég að leita að deildinni og loks fann ég deildina sem ég átti að vera á þessi hér og fór í kjólinn. Þegar ég kom fram...leið eins og idiot, þá vísaði næturvaktin mér inn í herbergi þar sem átti að vera rapport. Ég var svona eitthvað í mínum eigin heimi að hugsa hvað ég væri nú asnaleg, íslensk, rauðhærð stelpa í kjól klukkan 7 á þriðjudagsmorgni og þ.a.l með stírurnar í augunum þegar gella með dimma whiskyrödd hreytir "Er du stud.med?". Ég alveg hrekk við og hugsanir mínar um að ég sé nú bara í ruglinu í þessum kjól svona snemma morguns og með hita í þokkabót og að ég ætti að lauma mér í burtu fljúga burt og ég stama: "ja, det er jeg faktiskt". Þá bendir hún mér á krúttlega mömmu sem situr og skrifar eitthvað og segir mér að ég eigi að fylgja henni í dag.

Ég fylgdi múttunni sem sagt allan daginn og hún var voða góð við mig, var samt ekkert voðalega mikið að spjalla við mig um annað en þetta faglega en ég svona hlustaði á það sem þær voru að tala um kellurnar. Það er nefnilega alveg sama stemmningin á deildum hér og heima á Íslandi...þetta eru náttúrulega kvennavinnustaðir og þá sérstaklega á deildinni sem ég var á í dag. Ég var komin inn í voða umræður um handavinnu og var allt í einu með rosa skoðanir á þessu umræðuefni. Ég kann ekkert í handavinnu en hef samt verið leiðbeinandi í því...en bara til að hvetja fólkið. Svo var allt svo jólalegt á deildinni...það héngu pakkar í loftinu og það á alltaf einn starfsmaður að að klippa niður gjöf á hverjum morgni og opna. Ég man að við gerðum þetta þegar ég var í grunnskóla og mér fannst gaman að sjá svona aftur. Ég spurði múttuna hvort að hún væri búin að fá gjöf...en það var ekki búið að koma að henni. Þá fór ég eitthvað að reyna að babla "jeg synes det er saa hyggeligt at have saadan". Hún leit á mig með skrýtnum svip því ég var eitthvað of mikið að fýla þetta hehe.

Það var búið að vara mig við smá fordómum gagnvart okkur stud.med krökkunum sem komum að taka vaktir á deildinni. Ekki það að starfsfólkinu sé illa við okkur en ég held að það sé bara þannig að við erum ekki fast starfsfólk og því alltaf að koma nýir og nýir til að vinna og því vill fasta starfsfólkið ekki tengjast okkur mikið. Enda fann ég það alveg smá. En fyndnast fannst mér að inn í staffaherberginu hékk svona listi með reglum og ein reglan var "verið góð við stud.med starfsfólkið sem kemur og látið því líða eins og þau séu velkomin". Það þarf að setja í reglur að vera almennileg við okkur!!! hehehe

Ég var svo í því að taka blóðþrýsting og hjúkra gömlum manni sem mátti ekki hreyfa sig í 6 tíma. Hann var svo veikur og átti erfitt með andardrátt en hann lét samt sitt ekki liggja í daðrinu. Blikkaði mig sundur og saman og sagði svo að ég ætti bara að leggjast hjá honum. Hann hefur fílað mig í hjúkkukjólnum!!!

posted by benony 9:44:00 e.h.


{mánudagur, desember 01, 2003}

 
Ég átti geggjaða helgi!!!

Ég var að setja inn myndir frá helginni og ég hef alveg hugsað mér að skrifa hvernig var en ég er bara svo slöpp núna. Vaknaði með hálsbólgu og kvíði voða fyrir að vakna klukkan hálf sex í fyrramálið. Ég er að fara að taka vakt á spítalanum frá 7 til 15 og fæ ekkert borgað fyrir það!!! Þarf að vera vel upplögð!

Bara að segja smá um helgina því myndirnar eru frá henni.

Föstudagskvöld-julefrokost með gamla bekknum mínum!! Mér sýndist krakkarnir glöð að sjá mig og ég lenti meira að segja á trúnó á dönsku!!

Laugardagskvöld-julefrokost með íslensku læknanemunum í Odense. Ég var að hjálpa til við að undirbúa þetta partý og það þótti takast rosalega vel! Fullt af skemmtilegum sögum frá kvöldinu...eins og þegar ég hellti sósunni...mér fannst hún vond! Svo heyrðust setningar eins og "nei, Sara drekkur ekki", "glætan að Sara sé edrú í kvöld". Madjó stælar í strákunum og stelpurnar sem hafa alltaf rétt fyrir sér. Svo skemmtilegar sögur frá deginum eftir djammið :)

Allt þetta og meira til þegar Sara er ekki eins slöpp...

En þangað til have fun

posted by benony 8:58:00 e.h.


{fimmtudagur, nóvember 27, 2003}

 
Sá er sem er númer 20.000 má gera grein fyrir sér í kommentunum. Og Bryndís það er bannað að ýta á REFRESH í sífellu eins og síðast ;)

posted by benony 11:18:00 e.h.
 
Það verður djamm...

...á kerlingunni um helgina..já svei mér þá!! Ég er að fara í tvö julefrokost þessa helgina og það verður aldeilis fjör á mér. Fyrra julefrokostið verður með gamla bekknum mínum frá því í fyrra, þau sem voru að læra með mér náttúrufræðina. Þarna verða strákarnir sem gerðu mér lífið leitt með stríðni og svo stelpurnar sem voru voða vingjarnlegar en reyndu ekkert voða mikið að kynnast mér. Ég skal aldeilis leika á als oddi og sýna þeim hvað ég er orðin sleip í dönskunni. Ég man í fyrra þegar ég fór á julefrokost með þeim og var að hlusta á þau þá datt ég stundum út og vissi ekkert um hvað þau voru að tala en núna verður þetta öðruvísi. Ég ætla að hitta Elinu norsku fyrir jólagleðina heima hjá henni því hún ætlar að sýna mér nýju íbúðina sína. Og svo ætlum við samferða. Ég er voða ánægð að við vinkonurnar séum að sameinast því ég hef lítið sem ekkert séð hana síðan ég byrjaði í læknisfræðinni. Hittumst eiginlega aldrei í skólanum. En nú tökum við á því saman ;)
Seinna julefrokostið er svo með íslensku læknanemunum hérna í Odense. Ég er í julefrokostnefnd og við erum voða spennt því þetta verður roooosalega gaman. Það verður danskur matseðill, þ.e síld, rúgbrauð og frikadellur en svo ætlum við að svindla smá og hafa hamborgarahrygg, brúnaðar kartöflur og Waldorfsalat. Andri og Elvar sem eru á 7 önn ætla að vera yfirkokkar og láta okkur skvísurnar vera svona hjálparhellur. Við eigum líka að sjá um leiki og skreytingar. Þetta verður æði!!! Ég hlakka svooo mikið til.

Ég var alveg búin að finna dressið á mig áðan bæði fyrir julefrokost og svo bara fyrir jólin og áramótin heima. Ég fann nefnilega kjól sem er alveg flottur. Ég tók þrjá kjóla með mér inn í mátunarklefann... Ég var eins og sebrahestur í fyrsta kjólnum og Elva sagði "já, þessi er rosalega flottur á þér, en hentar kannski betur ef þú átt hestabúgarð". Þetta sagði mér að ég væri awful í honum. :) Kjóll númer tvö var voða prinsessukjóll og ég var voða fín í honum, svona með flottu baki og svona perlum á , hann var svartur og sætur. Ég lagði hann til hliðar og ákvað að máta þriðja kjólinn og það sem ég sagði við stelpurnar þegar ég kom fram "Þessi er svona mest slöttí finnst ykkur ekki??". Þær voru sammála mér. En eftir miklar bollaleggingar og umræður þá komumst við að því að ég var bara flottust í þessum kjól. HVAÐ SEGIR ÞAÐ OKKUR???? Það segir mér að nú langar mig ekki lengur að vera fín heldur töff. Enda fann ég sko aldeilis skóna!!! Þeir eru silfurlitaðir með oddmjóum tám og pjonkuhæl, eiginlega ekki hæll. Ég hef aldrei átt svona mikla gelluskó.
Allavega ég gæti orðið skvís en við verðum bara að sjá til. Ég brosti voða fallega og spurði skvísurnar í afgreiðslunni um að geyma þetta fyrir mig þangað til á mánudaginn...gæti fundið pening á götunni eða eitthvað!! ;)


posted by benony 11:02:00 e.h.
 
Chestnut roasted on an open fire....

...raulaði ég fyrir munni mér á mánudaginn þegar ég ákvað að ég skyldi eiga íslensk jól. Gaur hjólaði framhjá mér með voða glott á vör og hefur örugglega hugsað "þessi búin að vera að fá sér julebryg!!"

Það er staðfest, ég kem á klakann 16 des og verð í rúman mánuð heima!!! JEI ;)

posted by benony 9:32:00 f.h.


{þriðjudagur, nóvember 25, 2003}

 
Þetta verður smá sárt...

...í dag æfði ég mig í skólanum að leggja venflon á samnemendur mína. Venflon er þetta sem lagt er í bláæðina á handabakinu ef maður þarf að fá vökva í æð. Þetta þarf lagni því í fyrsta lagi þarf maður að hitta á æðina og svo þarf maður að geta fylgt með nálinni eftir æðinni og passa að hún stingist ekki í gegnum æðina. Við byrjuðum að æfa okkur á dúkkuhöndum og svo tók við að stinga hvert annað. Magnus norski var með stærstu æðarnar og auðveldustu að sjá þannig að hann varð aldeilis fyrir barðinu á nálinni. En hann sat bara mjög afslappaður eins og sannur víkingur. Þegar ég fylgdist með fyrstu stungunni hélt ég alveg fyrir andlitið og lifði mig of mikið inn í þetta...Jens var alltaf að gera grín að mér því ég fór ósjálfrátt að klappa Magnusi á axlirnar til að peppa hann upp. Þetta var ekki ein stunga bara heldur var stungið oft og svo þurfti Christina sem var að stinga hann að draga úr og setja aftur í endalaust til að ná að fylgja æðinni eftir og svo sneri hún nálinni fram og tilbaka meðan hún var inni í hendinni hans. Svo var komið að mér að stinga og mér fannst það miklu erfiðara heldur en að láta stinga mig því ekki er ég hrifin af því að meiða fólk. En Tanní var tilbúin með höndina sína og norskur eldri læknanemi sat yfir mér til að segja mér til. Ég tók til allt dótið sem til þurfti nál, venflon, sprautu, teip, bómul, sótthreinsandi, plástur (leikföngin mín :) ) og hófst svo handa. Ég náði að hitta á æðina strax í fyrsta og fór svo rosalega varlega og ýtti nálinni eftir æðinni. Hún meiddi sig ekkert sagði hún sem betur fer en ég fann hvernig ég var að fá geðshræringarbletti á bringuna. Ég gat séð að ég væri að gera rétt þegar blóð tók að renna inn í venflonið en ég var ekki með nógu hraðar hendur og vandaði mig of mikið þannig að mér tókst að stinga nálinni í gegnum æðina eftir að ég var búin að koma henni inn. En þetta var bara fyrsta taka....vonandi gengur betur næst. ;)
Didde ætlaði svo að fara að stinga mig en ég er víst ekki með nógu góðar æðar í þetta þannig að ég slapp við stungu. Ég var samt ekki hrædd við að láta stinga mig...ég meina ég hef látið vaxa á mér fótleggina...það hlýtur að vera meiri sársauki heldur en þetta. :)


posted by benony 9:34:00 e.h.
 
Það er búið að vera furðuleg stemmning....

...á kolleginu í kvöld. Ég fékk upphringingu frá nágranna að sjónvarpskallarnir væru að ganga um hverfið. Þá eru þeir að athuga hvort maður sé með sjónvarp eða útvarp og ef svo er þá þarf maður að borga alveg geggjaðan pening. Allir ljúga og það er búið að vara mig svo oft við þessum körlum. En þegar ég kom heim var Cecile búin að frétta af þeim á ferðinni og við ákváðum bara að hafa allt slökkt hjá okkur og svara ekki þegar þeir kæmu. Ég er búin að sitja í myrkri og læðast um í allt kvöld...fór samt á ákveðnu tidspunkti að spá hvað ég væri eiginlega að sitja í myrkri því ég á náttúrulega hvorki sjónvarp né útvarp og þarf því ekki að hafa áhyggjur af þessu. En ætli það hafi bara ekki verið spennufíknin í mér....eða bara barnið sem langar alltaf að vera með í öllu.

Ég fór yfir til Elvu í kvöld til að fá hjá henni diska með Arethu Franklin. En svo labbaði ég út frá henni alveg með staflann af diskunum... það var eins og að koma í dótakassa þegar ég var að skoða diskana hennar. Ég hef voða breiðan tónlistarsmekk en mér finnst afskaplega gaman að syngja soul tónlist og svona blues. Hef alltaf átt mér draum um að standa grátandi á sviði og syngja frá hjartanum um horfnar ástir og komandi sorgir. Ég er búin að vera að halda geðveikt í mér að missa mig ekki bara í söngnum hérna heima því Cecile er jú heima og var með gesti hjá sér. (Hefði verið laglegt hefði ég verið grenjandi og syngjandi rokurnar með Öllu vinkonu meðan gestirnir væru). En Elva átti allavega fullt af soul-diskum og svo fékk ég hjá henni Coldplay og U2 líka.
Ég fann svo eitt lag á Arethu Franklin disknum sem ég átti einu sinni þegar ég var unglingur eða kannski var ég orðin 18! Get ekki alveg staðsett þetta... en ég fékk svona minningar-tilfinningu því ég var að hlusta á þetta lag þegar ég hef verið í ástarsorg. Fann það bara...kom svona sama tilfinningin yfir mig...kannist þið við þetta. Get samt enganveginn munað hvaða gæi það var!! :) hahahaa Ég læt textann fylgja...sjáið hvað ég hef verið langt leidd :)

My song

You told me..
that you would leave me here
in tears.
Now you´re gone
and hours seem like years.
So darling
I sing my song.

You´re leaving
Makes my heart beat slow
and slow
Now I´m wondering where
did you go.
Please tell me...
tell me what is wrong.

I still love you
Wan´t you please come back to me
come back where
where you oughta be.
Don´t stay away from me
Cause you´ll always be mine
We´ll be together for eternity

You told me
that you would leave me here in tears
Now you´re gone
and hours seem like years.
And you left me singing a song.

I´m just singing a song.


Ok, ég veit....sorgleg maður...en ég var bara lítil gelgjustelpa!!! Þá má maður, nú er það bara kúlið ;)



posted by benony 12:07:00 f.h.


{sunnudagur, nóvember 23, 2003}

 
Ef ég á að segja ykkur það sem ég er að hugsa....

...akkúrat á þessari stundu sem ég sit hérna og pikka inn þá get ég alveg gert það!!! MIG LANGAR SVO Í KÓÓÓÓK!!!! Ég er kóksjúk!!! Hvernig ætla ég að vera flott fyrir febrúar ef ég get ekki lifað án þessa drykkjar. Ég hugsa bara um hve gott það yrði ef ískaldur bobblandi vökvinn væri núna að renna niður spiseröret eins og það er kallað hérna í Danmörku. Eins gott að ég byrji ekki að drekka...ég yrði alki, ég get svo svarið það!!!

posted by benony 11:46:00 e.h.


{laugardagur, nóvember 22, 2003}

 
Var að fá bréf...

...um hvaða fölgevakt ég á að taka hérna á Odense Universitethospital. Fölgevaktir eru svona vaktir á spítalanum þar sem ég fylgi hjúkku allan daginn og læri inn á deildina og hvað mitt hlutverk er sem sygeplejevikar. Ég mun útskrifast sem sygeplejevikar þann 16 des ef ég næ prófinu. En það er partur af náminu að taka svona fölgevaktir (2) og ég fékk tilboð um að koma á deild C6 sem er medicinsk deild. Þar liggja sjúklingar með blóðtappa og einhverskonar hjartaóreglu. Ég fæ samt ekki að gera neitt skemmtilegt en ég gæti samt fræðst eitthvað á þessu...kannski fæ ég að taka blóðþrýsting ef ég er heppin...eða að baða einhvern!!! Búin að vera að æfa það í dag á námskeiðinu. Ég á samt að vera í krufningu sama dag og ég á að vera á vakt þannig að kannski skipti ég um deild og dag....það verður örugglega líka spennandi.

Annars er ég ekki að fíla stemmninguna á þessum námskeiðum. Hjúkkan er alveg að nýta sér vald sitt og er alltaf að pikka í okkur. Hún talar við mig eins og krakka og ég hef aldrei verið hrifin af því þegar talað er niður til mín. Svo var ein af dönsku stelpunum sem er líka á námskeiðinu svo dónaleg við eina af íslensku stelpunum meðan hún var að tala að ég varð ótrúlega reið. Við erum greinilega orðnar nánar því að mig langaði svoooo mikið að segja eitthvað og vernda vinkonu mína. Danska stelpan rúllaði nefnilega augunum og sagði "ég heyri ekkert hvað þú segir þú talar svo lágt" með geggjuðum frekjutón og hrissti svo alltaf hausinn þegar hún talaði. Ég var bara svooo stolt af vinkonu minni að tala og spurja svona mikið og bara búin að búa hérna síðan í september. Ég sæi þessa gellu fyrir mér gera sig skiljanlega á íslensku eftir aðeins þessa fáu mánuði á eyjunni fögru. ÉG er brjáluð......
En þetta námskeið er að fara að verða búið....bara morgundagurinn eftir og svo er upprifjunarfyrirlestur. Svo fer ég á fölgevakt og skrifa svo ritgerð um einhvern sjúkling á deildinni sem ég tók vakt á. Svo hitti ég hjúkku dauðans til að fara yfir ritgerðina og án efa mun hún setja eitthvað út á mig eins og vanalega, en ég skal kyngja því. Og svo er próf og eftir það er þetta bara búið og ég get farið að fá borgað fyrir vaktirnar. Ógissslega vel borgað nefnilega. Þá get ég keypt gulu peysuna sem ég sá!!!!!!!! Ó mæ god hvað ég er skotin í henni.........
Haldið að gulur fari mér ekki alveg?? Ég sá nefnilega sko svona gulan peysubol í búðarglugga sem svolítið síð með einhverri mynd framaná. Ég bara starði og langaði svoooo....en ég á eftir að máta hana og gráta fyrir framan spegilinn :) ;) hihihi

Góða nótt, þið eruð æði....svona flest..!! hehe

posted by benony 11:26:00 e.h.


{föstudagur, nóvember 21, 2003}

 
Það er held ég krónísk rigning úti..

...Föstudagskvöld og rigning..

hvað gera ungar dömur eða tjellingar á svona kvöldum???

Þvo þvott..sem er uppáhaldið mitt
Borða mandarínur því nammi er í lágmarki þar sem þær verða að vera flottar í feb.
Kveikja á kertum
Setja hreint á rúmið
Fara snemma að sofa

Ég verð á námskeiði alla helgina, haldið að það sé dögnaður. Þar mun hjúkka dauðans taka á móti mér sem talar við mig eins og ég sé lítið barn eða útlendingur sem skilur ekki neitt. Við ættum samt að skemmta okkur á námskeiði þar sem við erum að fara baða hvert annað...eigum að mæta í sundfötum eða víðum nærfötum. Já, það er alltaf stuð á þessum bænum.

posted by benony 11:18:00 e.h.
 
Davíð hetja

Haldið ekki að Davíð hafi fundið hjólið mitt sem hafði verið stolið. Hann auðvitað stal því tilbaka hehe... Ég sé þetta alveg fyrir mér, hann hefur verið með verið með svörtu húfuna og hjólað á milljón frá húsinu til að hann myndi ekki nást. En svo dinglaði hann hjá mér... tharaaaa!!! Ég er náttúrulega í skýjunum yfir að vera búin að endurheimta fákinn minn og get núna hjólað sem aldrei fyrr. Já, lífið er aldeilis eitt ævintýri hérna á Rasmus Rask....

posted by benony 5:13:00 e.h.


{miðvikudagur, nóvember 19, 2003}

 
Setti inn nokkrar myndir úr skólanum. Þ.e myndir af mér, Elvu og Valdísi í skurðsloppunum ;) Svo er eitthvað fleira líka t.d hárið á mér sem ég var að lita. Er með smá áhyggjur að ég hafi verið að klúðra því. Kannski glötuð að vera að taka myndir af hárinu á mér en ég vil endilega að mútta og vinkonur mínar heima sjái.

Jæja, njótið gott fólk

posted by benony 11:54:00 e.h.
 
Ég leik mér að því...

...að líkja krökkunum í skólanum við vini mína heima á Íslandi bara svona gamni því oft eru til svo svipaðar týpur. Ég hitti Sören í morgun til að fara yfir fyrirlesturinn okkar og hann er Örn Ingi Odense. Hann minnir mig alveg óneitanlega mikið á Örn Inga eins og hann var í FB þannig að Sören kemur með smá FB fíling í SDU. Sören getur auðveldlega farið að tala við mann um skyr held ég því hann hugsar mikið um líkamsrækt og mataræði. Svo er Sören með mikla snertiþörf og gjarnan fáum við bekkjarsystkini hans faðmlag svona í morgunsárið. Með Sören var Jens sem minnir mig á Disco Dóra. Hann er með skjannahvítar tennur og tekur oft dansspor bara svona upp úr þurru. Hann er líka alltaf syngjandi og tekur þá sporið í leiðinni auðvitað. Veit ekki alveg hvað það er við Jens sem minnir mig á Dóra....bara líkamstaktar eða eitthvað.

Strákarnir tveir tilkynntu mér að þeir hafi verið að búa til minnisreglu um mig. Það er allt morandi í minnisreglum í anatómíunni því það er svo margt að muna og þeir strákarnir bjuggu til eina um mig fyrir vöðva lærisins. Hún hljómar svona "Sara´s lille rectum vaskes med interesse". Eða á íslensku "Endaþarmurinn á Söru þvæst með áhuga. Frekar svona ógó ik´os??

posted by benony 11:53:00 e.h.
 
Úff...það verður gott þegar morgundagurinn er búinn...

...ég er orðin smá þreytt þar sem dagarnir eru rosalega langir. ÉG kom heim líka um miðnætti í kvöld með fulla dagskrá allan daginn. Á morgun á ég að halda fyrirlestur með Sören bekkjarbróður mínum og við ætlum að hittast áður en tíminn byrjar til að fara yfir það. Svo er síðasti líkskurðartíminn á morgun og það er alveg komin tími til því við erum orðin langþreytt. Ég var búin að hlakka svo til þessa tíma svo lengi og ég var líka að fá rosalega mikið úr þeim en þeir eru búnir að vera alla daga í næstum tvær vikur og það er búið að vera svolítið álag þennan tíma þannig að það verður örugglega fagnað smá á morgun.
Reyndar eru námskeið á spítalanum alveg að fara með mig líka því í kvöld sat ég í 4ra tíma fyrirlestri sem hafði varla pásu um geðdeildir og hvernig er að vera starfsmaður á svoleiðis deild. Ég var ekki að læra neitt nýtt og sat í þessa fjóra tíma og starði á klukkuna. Tók reyndar smá andköf þegar hún sagði "já og ef sjúklingurinn er órólegur þá er hann settur beint í belti bara" og svo kom líka spurning "hve lengi er sjúklingur í belti í einu? Þá var svarið: "það getur verið sólarhringur til 3 VIKUR" . Þá meikaði ég ekki að vera þarna inni lengur en hélt þetta út og þar sem við sitjum í hring tók fólk eftir að ég var hneyksluð. (Vona samt að ég hafi ekki rúllað augunum því það er svo glatað) Pælið í líðan manneskjunnar að liggja föst í rúmi í þrjár fokking vikur!!!!! Það verður erfitt fyrir mig að taka vakt á geðdeildum hérna þegar þar að kemur.

Við Valdís pöntuðum okkur pizzu upp á spítala í kvöld eftir námskeiðið því við höfum held ég aldrei á ævinni verið svona svangar. Ég hringdi til að panta og sagði "Hej, jeg vil gjerne bestille to pissa'er og en skal have pepperoni, skinke og ananas". Þá kom spurning frá karlinum í símanum.. "skal der være ost og tomato paa??" DÖHHH
Karlinn gat ekki skilið hvar við vorum staðsettar á spítalasvæðinu og lagði bílnum einhversstaðar, hringdi svo í mig og bibaði til að ég myndi renna á hljóðið...svo átti ég að koma hlaupandi til hans. Ég gat ekki fundið hann strax því hann var einhversstaðar langt í burtu og þegar ég loksins fann hann þá var karlinn bara fúll og sagði að hann væri með annan túr og hefði beðið of lengi eftir mér. Er ekki málið að hann eigi að vita hvar ég er...er það ekki...þetta var ekkert mér að kenna...er það nokkuð???? Hann spólaði alveg þegar hann keyrði burtu frá mér og mér fannst hann smá óréttlátur.

jæja...ég verð búin með dissektion á morgun og það verður næs...þá get ég aðeins farið að anda. Þetta er samt búið að vera rosalega spennandi og ég hef fundið enn sterkar að ég er á réttri leið í lífinu.

p.s eitt sem mér fannst fyndið í dag. Rasmus sem er með mér í bekk var að biðja mig að rappa inn á símsvarann hans. Ég tók smá demo fyrir hann og rappaði eitthvað "JEG HEDDER RASMUS" og hann var sáttur sko...svo vorum við að reyna að finna eitthvað sem passar við Rasmus og þá kom ég með Rasmus trash mus...ég held að hann sé hættur við að láta mig rappa hjá sér. :/

posted by benony 1:19:00 f.h.


{þriðjudagur, nóvember 18, 2003}

 
Flýgur fiskisagan...

...já, hjólinu mínu var stolið...beint fyrir utan heima hjá mér meðan ég skrapp aðeins inn til að sækja námsbækurnar og fara af stað aftur. Ég var smá svekkt í smá stund og hefði getað eytt deginum í að slá höfðinu í vegg því ég læsti hjólinu ekki því mér fannst ekki taka því. Það er greinilegt að það er verið að fylgjast með öllum mistökum sem ég geri.. Ég eyddi sem sagt ekki deginum í að slá höfðinu í vegg heldur setti bækurnar í poka og labbaði af stað upp á spítala því ég var að fara að hitta Valdísi því við vorum að fara að læra. Valdís var eina manneskjan sem ég sagði fréttirnar með hjólið og svo hætti ég að hugsa um þessa óheppni mína. (hætt að nenna að svekkja mig á svona hlutum...enda þá væri ég alltof oft svekkt) Sara=klaufastrumpur.
Þegar ég svo mætti í skólann í dag voru íslensku krakkarnir hvert af öðru að vinda sér að mér og vorkenna mér yfir hjólamissinum. Þau voru svo áhyggjufull mín vegna að það var eiginlega bara sætt. Þetta sýnir bara hve Íslendingar í útlöndum eru nánir!

Dagurinn í dag...mánudag var stútfullur. Ég mætti í líkskurð og er svo ánægð með að hafa fengið öxlina til að skera. Það er svo mikið af skemmtilegu dóti þarna inn í okkur sem ég er búin að skemmta mér við að læra í dag. Því svo áttum við að vera á námskeiði á geðdeildinni í dag en kennarinn mætti ekki þannig að ég fór ásamt Valdísi upp á spítala og við lærðum til klukkan hálf tólf í kvöld. Ýkt duglegar. Ég viðurkenni alveg að við spjölluðum smá en við gátum samt í lokin hlýtt hvor annarri yfir svæðin okkar og við gátum þulið allt dótið upp. Valdís er með lærið og það eru rosalega margir vöðvar staðsettir þar. Við vorum löngu búnar að ákveða að vera að læra til miðnættis þennan dag þannig að ég kom við í búð og keypti nammi og kók sem við gætum gætt okkur á til að gera þetta skemmtilegra. Enda skemmtum við okkur konunglega ;)


Ég get alveg fundið hvað ég hljóma leiðinlega núna...hehe..best að fara bara að lúlla.

Hugurinn er smá heima..

posted by benony 1:53:00 f.h.


{laugardagur, nóvember 15, 2003}

 


Take the What
animal best portrays your sexual appetite??
Quiz



H
Lookee here, you're a basic bra. Just the normal
bra that almost everyone has. You're
comfortable and hard not to like!


What Bra are You?
brought to you by Quizilla


Alltaf gaman að svona prófum...en kannski ekki gaman að fá það í feisið á sér að maður sé basic...mig langar ekkert voðalega mikið að vera basic. Þarf að fara að sleppa tígranum út!!! ;)

posted by benony 6:30:00 e.h.
 
Ég svindlaði smá...

...tvisvar bara í dag! Ég var nefnilega að lita á mér hárið og svo fór ég í ljós. Já, afhverju var ég að svindla gætuð þið spurt ykkur en málið er bara það að ég lofaði sjálfri mér að safna í minn upprunalega háralit og það var að ganga geðveikt vel og fólk var hætt að sjá rótina. Svo er svo hættulegt að fara í ljós út af húðinni eins og allir vita þannig að ég er ekkert rosalega sátt við mig fyrir að svindla svona en samt.... Ég var nefnilega farin að líta í spegil og hugsa "Djöfull ertu litlaus kerling" þannig að ég bjargaði bara málunum í dag. Hárliturinn sem ég keypti hét rauður kopar og mér fannst það hljóma rosalega vel og svo var svo sæt konan utan á pakkningunni þannig að mig langaði að vera eins og hún!!! ;)

Annars var ég að passa fjóra gríslinga í gærkvöldi og það var bara voða gaman. Það voru auðvitað litlu frændur mínir þeir Auðunn og Maron og svo líka tvær stelpur sem eru 7 ára og 8 ára. Þær voru mikið að spá í hvort ég ætti kærasta og hve gömul ég væri og fyrsta gisk hjá þeim var að ég væri 11 ára. Gaman að yngjast um 12 ár á einu kvöldi. Sólveig kerling kom svo til að kjafta við mig og hygge sig með mér. Við vorum voða mikið að spá í hvort við ættum að fara að kela því í unglingabókunum var alltaf kelað þegar einhver kom með að passa. En við slepptum því í þetta skiptið.
Ég svaf svo í sófanum og klukkan 4 kom svo partýliðið og Sveinbjörn þurfti auðvitað að byrja á því að kitla mig sundur og saman og svo laumaði hann einu fyllibyttuprumpi framan í mig svona til að ég myndi vakna alveg. ;) Klukkan 8 vöknuðu svo gríslingarnir og byrjuðu að hoppa á mér og sitja á mér því ég lá nú í sófanum. Teiknimyndirnar voru settar á blast og ég ákvað að vakna og gefa morgunmat.

Ég er smá þreyttur núna..en maður má ekki láta sig vanta á djammið. Reyndar var Valdís að bjóða nokkrum heim til sín og við ætlum að panta pizzu og kjafta. Einnig eigum við líka eftir að sjá íbúðina hennar því hún er jú nýflutt í hana. Ég get ekki sleppt svona fjöri!!

posted by benony 6:18:00 e.h.


{fimmtudagur, nóvember 13, 2003}

 
Þar sem ég hef svo mikið að gera....

...þá ákvað ég að fara að lesa gömul blogg sem ég hef bloggað... (ótrúlegt hvað maður finnur sér að gera þegar maður á að vera að lesa). Þá fann ég þennan lista sem ég skrifaði í fyrra einhverntímann. Ég er ekki alveg sammála honum en samt að mestu leyti. Margt sem ég skrifa þarna í "ég þoli ekki" listann sem ég þoli alveg. Ég held ég myndi vilja skipta út 5, 6 og 10 lið fyrir eitthvað annað.. ég finn út úr því á næstu dögum ;)


Ég þoli ekki

1. ......þegar mér er selt eitthvað sem mig langar ekkert í
2. ......þegar mamma vill endilega að ég máti einhverja hræðilega flík þannig að ég lít út eins og fáviti.
3. ......hvað kók er gott
4. ......hvað það er erfitt er að koma sér af stað í leikfimi
5. ......að allir bestu strákarnir eru fráteknir
6. ......hvað allt er dýrt út á landi en samt lélegri þjónusta
7. ......smjaður
8. ......óréttlæti
9. ......vel stæða menn sem stela frá þjóð sem inniheldur öryrkja og heimilislausa (Árni Johnsen)
10. ....hvað sumir þurfa að hafa lítið fyrir hlutunum en aðrir mikið

Ég elska:
1. ......Ísland á sumrin
2. ......heitt bað og kertaljós
3. ......að koma úr síðasta prófinu og hafa gengið rosa vel
4. ......tímann eftir langan hlaupatúr eða sundsprett
5. ......að fá blóm frá börnum sem þau hafa týnt
6. ......að hlægja mig máttlausa
7. ......horfa á hamingjusöm pör og vita að það kemur bráðum fyrir mig að vera ástfangin
8. ......fá bréf í gegnum póstlúguna
9. .....vera í góðu gítarpartýi
10. ...liggja endilöng á risastóru túni og finna hvað ég er lítil
11. ...velta mér upp úr heyi
12. ...slást við krakkalinga

posted by benony 11:27:00 e.h.
 
Váhh hvað mér leið vel...

...ég fékk að upplifa móment þar sem mér leið eins og proffa og það var góð tilfinning. Ég mætti semsagt í líkskurðartímann í dag og var að gera mig tilbúna til að hefja fyrirlesturinn minn um planta pedis þegar Anne sem átti að flytja fyrirlesturinn með mér kemur og segir..." Sara ertu ekki búin að lesa rosalega vel svæðið okkar?" Ég jánkaði og sagði að ég væri tilbúin. Þá sagði hún: ok, gott..ég kom nefnilega heim í gær eftir tíma með rosalegan hausverk og gat ekkert lesið þannig að þú gerir þetta bara". Ég starði bara á hana og trúði ekki að ég væri að heyra þetta, því þetta var lélegasta afsökun sem ég hafði heyrt. Ég hefði átt að segja við hana þá "já, eftir að ég kom heim í gær fór ég á þriggja tíma námskeið og þegar ég kom heim var ég dauðþreytt og með höfuðverk líka". En ég ákvað að ég myndi bara fá mest út úr þessu að gera þetta bara sjálf. Þannig að ég stóð og hélt á fót í höndinni (pælið í því) og talaði á dönsku og latínu í bland og þuldi þetta allt saman upp og það sem var skemmtilegt var að allir voru svo áhugasamir að hlusta á það sem ég hafði fram að færa og spurðu mig svo eftir fyrirlesturinn og mér leið eins og ég væri proffi og þannig hefur mér aldrei liðið. Ohh, hvað þetta var góð tilfinning. Í lokin þegar ég var búin að fá klapp þá rétti Anne mér bara þumalputtan og blikkaði mig. Hún græddi á því hvað ég las vel...en ég græddi á því að fá að njóta mín smá... 15 mín í proffa alsæluvímu!!!! hihihihihi

Eftir tíma hitti ég svo Davíð niðri í bæ því hann var mættur með járnsög til að hjálpa mér að saga lásinn af hjólinu mínu!!! Hann er svo góður við mig...stjanar bara við mig endalaust. Þetta var ekki auðvelt verk og þarna stóðum við í næstum miðri hjólaumferð að saga lás af hjóli og það voru þvílík læti í okkur. Fólk horfði á okkur eins og við værum krimmar enda vorum við bæði með svartar húfur eins og verstu bófar. Ég hugsaði með mér að fólk væri nú aldeilis fífl ef það myndi ekki skipta sér af okkur því þetta leit ekki vel út. Þar sem við vorum svolítið lengi að þessu þá kom auðvitað tími þar sem grimmur karl kallaði til okkar "Er I sikker paa at det er jeres cycle". Ég brosti bara róleg og sagði "ja, jeg er sikker". Og þá hnussaði í honum og hann hélt á brott. Eftir smá tíma kom eldri maður og hló hástöfum "Stjæler I den cycle??" ég leit upp og sagði bara "nej nej, det göre vi ikke.." og þá skellihló hann alveg og sagði eitthvað við félaga sína sem hlógu líka... skil ekki alveg hvað var svona fyndið. Þannig að fólk er ekki alveg fífl, því er ekki sama hvað er að gerast í kringum sig.

Áðan uppgötvaði ég hvað er yndislegt að búa í Danmörku. Ég var nefnilega að hjóla frá skólanum sem er staðsettur svolítið út úr bænum á risastórum akri og sá þá dádýr vera að hlaupa um. Ég stökk af hjólinu og ætlaði að fara að horfa á þau og læddist í áttina til þeirra en þau eru svo rosalega hrædd. Ætli þau hafi ekki verið alveg í 15 m fjarlægð en þau litu á mig og hlupu svo burt. Ég ákvað að hlaupa ekki á eftir þeim en stóð bara og horfði...ekkert smá falleg dýr. Þetta myndi ég ekki sjá á Íslandi.

posted by benony 12:14:00 f.h.


{miðvikudagur, nóvember 12, 2003}

 
Ég hef ekki lagt í vana minn....

...að posta samtöl sem ég á við einstaklinga á msn en ég bara varð núna með góðfúslegu leyfi viðmælanda míns! (váhh, hvað þetta var formlegt)

Sá sem ég er að spjalla við er hann Sigvaldi systursonur minn sem er 10 ára gamall.

silli cool says:
það var einn gaur í skólanum sem var að svindla og þá svindlaði ég líka við vorum sko í fótbolta og þá kom einn gaur og ýtti mér og þá ýtti ég honum og þá varð hann klikk og byrjaði að berja mig og ég barði hann á móti og þá kom einn annar gaur og barði mig þá hætti ég að berja hann og ég var að fara þá sparkaði hann svona 15 sinnum í mig

Sara skurðarmeistari says:
Ertu ekki að djóka
Sara skurðarmeistari says:
lentirðu í slagsmálum
silli cool says:
jamm en ég hætti því hann var mikið sterkari en ég og þegar hinn kom þá gat ég ekki gert neit
silli cool says:
t
Sara skurðarmeistari says:
gott hjá þér..
Sara skurðarmeistari says:
en meiddu þeir þig
silli cool says:
já ég var næstum grátandi eftir það
silli cool says:
því hann sparkaði svo oft
Sara skurðarmeistari says:
æi, dúllan mín
Sara skurðarmeistari says:
er hann eitthvað klikkaður eða hvað
Sara skurðarmeistari says:
ohh, ég hefði átt að taka í þessa stráka

Það er greinilega ekki auðvelt að vera 10 ára í dag!! Og ég elska svona samtöl...ég sakna Sigvalda míns.

posted by benony 9:32:00 e.h.
 
Hvað get ég sagt ykkur sniðugt...

...ég er alveg búin að komast að því að ég á ekkert að vera að segja of mikið um skólann hér á blogginu. Blogg er meira svona djammsögur eða grínsögur. Það er bara svo mikið að gerast hjá mér í skólanum og ég er svo ánægð þar að ég er bara kjaftstopp...já, ég get það líka!!! Fór að hugsa hvort ég ætti að gera svona 100 hlutir um sjálfan mig lista...en hætti við þar sem ég gæti gleymt mér í því að segja of mikið og ég hef bara engan áhuga á því að fólk viti of mikið um mig. Langar að vera svolítið dularfull sko...tíhíhíhí

En hvað gerðist fyndið í dag.... Það var eitt atriði þar sem ég hló svo mikið að tárin láku næstum í taumum niður eftir öllu. En kannski var þetta "had to be there" móment en við skulum prófa.

Ég fór á námskeið á spítalanum eftir líkskurðinn í dag eins og í gær. Það sem við lærðum í dag var hvernig við eigum að flytja fatlaðan einstakling eða veikan sem ekki getur hreyft sig sjálfur frá rúminu og niður á stól. Þessi flutningur átti sér stað í svona tæki eða krana sem hýfur sjúklinginn upp. Og svo var annað tæki þar sem bundið var um mittið á sjúklingnum og hann sat á rúminu og svo notuðum við tæki til að láta sjúklingin úr sitjandi stöðu í standandi og færðum svo á stól... (guð ég vona að þið skiljið hvað ég er að segja hérna). En allavega fyrst átti ég að leika sjúkling og Rasmus bekkjarbróðir minn stjórnaði flutningnum og það gekk svona líka vel hjá honum. Rosalega gott að við erum búin að prófa hvernig er að vera hýfður svona...frekar óþægileg tilfinning, þá vitum við hvernig sjúklingnum líður þegar við erum að gera þetta við þau. Svo var komið að mér að stjórna flutningnum og Valdís var sjúklingurinn. Ég setti belti um mittið á henni og lagði fætur hennar upp á tækið og svo byrjaði ég að ýta á takkana og hýfa hana upp. Þetta gekk allt vel í byrjun en þar sem ég hafði munað að Rasmus hýfði mig upp í efstu hæð gerði ég það líka við Valdísi...ahhahaha En þar sem Valdís er frekar minni en ég þá var Valdís komin með beltið alveg upp að brjóstunum og það var eins og hún væri í PUSH up og Rasmus benti mér góðlátlega á fæturnar hennar og hún stóð alveg á tánum hún hékk næstum!!! hahhahah Æ, þið hefðuð bara átt að sjá hana...ekki beint þægileg stelling og ég gerði ekkert til að hýfa hana niður heldur stóð ég bara skellihlægjandi og Valdís hló líka rosalega mikið í þessari push up stellingu. Leiðbeinandinn kom og argaði sjálfur úr hlátri og spurði Rasmus hvort að hann væri að stjórna þessu (út af því að brjóstin voru pushuð upp) en hann sagði "nej, det er faktiskt Sara der styrer det her...men jeg styrer Sara saa". Ef Gummi jóh vinur minn hefði verið á staðnum þá hefði verið öskrað ef ég þekki minn rétt ;)

ok, vona að þið hafið getað séð þetta fyrir ykkur.... :)

Ég er að fara að framleggja svæðið mitt á morgun fyrir bekknum í líkskurðartímanum...eða flytja fyrir bekknum planta pedis svæðið á líkamanum. Ég þarf að segja og nefna allt draslið sem er þarna undir ilinni og ég er búin að vera að þylja þetta upp. Held að þetta muni ganga vel, við erum tvær með þetta ég og Anne sem er dönsk skvísa með mér í bekk.

posted by benony 1:35:00 f.h.


{mánudagur, nóvember 10, 2003}

 
Dagur dauðans....

...í orðsins fyllstu merkingu. Þetta var stór dagur sem ég mun örugglega aldrei gleyma. Í dag var fyrsti líkskurðartíminn og við munum alla vikuna vera að líkskera frá 12-16. Þið hefðuð átt að skynja andrúmsloftið fram á gangi áður en við löbbuðum inn í salinn. Rosa spenna og kvíði. Það stóð maður við dyrnar og rétti okkur græna skurðsloppa um leið og við löbbuðum inn og við klæddum okkur í þá inn í fatahengi og tókum Atlasinn okkar og löbbuðum inn. Ég valdi mér svæðið planta pedis sem er undir fætinum eða ilinn því það er eitt erfiðasta svæðið. Mjög erfitt að skera það því það er þykkt og erfitt að læra það því það er svo mikið að litlu dóti þarna undir sem þarf að muna. En það er gott að ég fái að læra þetta svæði svona því það er örugglega erfitt að læra það fyrir prófið bara með því að lesa í bókinni. En ég ætla ekki að vera að angra ykkur með nákvæmum lýsingum á þessu, en þetta var stór dagur samt hjá mér. Auðvitað fyrsti skurðurinn eitthvað skrýtinn en svo var ég farin að syngja og djóka. Og það sem er ennþá furðulegra er að ég var geðveikt svöng....mig langaði að fara heim og detta geðveikt í það matarlega séð...hve furðulegt er það. En formalínið hefur víst þessi áhrif...vekur upp hungurtilfinningu.

Kalli kærastinn hennar Kötlu skutlaði okkur skvísunum svo beint frá skólanum og upp á spítala á námskeið. Þar vorum við að læra hvernig á að færa sjúklingin til í rúminu...þegar þarf t.d að setja kopp undir sjúklingin eða bleyju og ef við þurfum að skipta um lak á rúminu meðan sjúklingurinn liggur í því. Þetta æfðum við nokkrum sinnum og ég gat ekki hugsað um annað en mat allan tímann. Þess vegna skelltum ég og Elva okkur í Nettó áður en við fórum heim og ég troðfyllti ískápinn (ok, ekki mjög erfitt). Nú er ég búin að fara í sturtu til að taka af mér fýluna og hakka í mig matinn og er núna á súkkulaðinu. Er að hugsa um að lesa smá um planta pedis áður en ég fer að sofa...:)

Finnst eitthvað rosalega sorglegt að búa ein á svona stundum..því þegar ég kom inn úr dyrunum í dag með fullan innkaupapoka langaði mig svo að geta sagt einhverjum sem mér þykir vænt um frá upplifun dagsins. Í staðinn sat ég bara ein og borðaði og hugsaði...

Ég er búin að setja inn myndir frá því ég og Sólveig vorum í jólatívolíinu í Kaupmannahöfn áður en við komum heim til Íslands í jólafrí í fyrra. Endilega kíkið!! Jólin 2002


From the very first moment I saw you...that´s when I knew!!

posted by benony 11:40:00 e.h.
 
hæ hæ

Loksins náði ég að setja inn fleiri myndir...svolítið uppsafnað en líka frá helginni sem var að líða!!

Endilega kíkið



Stór dagur í dag mánudag...þið verðið að hugsa til mín frá 12-16 á dönskum tíma eða frá 13-17 á íslenskum tíma...þá er ég að dissikera.

posted by benony 12:30:00 f.h.


{fimmtudagur, nóvember 06, 2003}

 
Nóg að gera...

...það er að koma svona brjálað að gera tímabil og ég er rosalega ánægð með það. Samt kannski smá óþægilegt hvað það hellist yfir mann svona allt í einu en tíminn líður mun hraðar og ég þrífst best á því þegar ég er á fullu og hef þéttskipaða stundarskrá. Námskeiðið á spítalanum tekur rosalegan tíma og t.d fer öll helgin í það. Báða dagana frá 9-15 þannig að það er eins gott að ég verði ekki brjáluð á djamminu um helgina. Bara svona létt ;) Julebrygg dagurinn er nefnilega á morgun og þá detta danir sko í það. Þegar jólabjórinn er kominn þá eru jólin komin. :)
Svo er dissektion í næstu viku og það er brjálað að lesa og undirbúa sig fyrir það en rosaleg spenna...jiii hvað ég er spennt. Svo er ég með verkefni fyrir þorrablótið í feb og julefrokost íslenskra læknanema. Þetta verður skemmtilegur mánuður kryddað með jólainnkaupum og jólagleði. :) Jóla jóla.

Á námskeiðinu í dag tókum við próf og svo var kennsla strax. Fyrst áttum við að kynna okkur...ég hata þegar ég þarf að kynna mig fyrir hóp en er svolítið farin að venjast því, því maður þarf alltaf að segja frá sjálfum sér þegar maður er að byrja í nýjum hóp hérna. Leiðbeinandinn sem er stelpa á 11 önn í læknisfræði (soldið ströng...en það var bara gott) leit á mig og sagði "já vilt þú ekki bara byrja að segja hvað þú heitir og hvað þú ert búin að vera gera síðan þú varðst stúdent". Ég sagðist heita Sara og að ég kæmi frá Íslandi og bablaði svo um hvað ég hefði verið að gera. Svo kom Kristinn sem sat við hliðina á mér og hann sagði nafnið sitt og að hann kæmi frá Íslandi. Við hliðina á honum var Valdís sem sagðist vera frá Íslandi og við hliðina á henni sat Elva sem sagðist líka vera frá Íslandi. Þarna var fólkið í kringum okkur farið að hlægja og var að spá hvað væri eiginlega í gangi með alla þessa Íslendinga. Svo kom að einni norskri stelpu (mér finnst norsarar svo miklar dúllur....ég dýrka Norðmenn :) ) Og svo kom að Kötlu sem sagðist vera frá Íslandi og þá var aldeilis hlegið. Litla Ísland næstum bara í meirihluta :) Við fórum svo að kíkja á búningin sem við eigum að vera í niðri í búningsklefa og við stelpurnar eigum að vera í svona hvítum kjólum...soldið sætt..en samt fáránlegt ef maður spáir í það.
Ég er voða spennt þegar við erum búin með námskeiðið og fáum að taka vaktir.. bæði rosalega vel borgað og svo erum við send á hinar ýmsu deildir ekki endilega í Odense. Gætum þurft að ferðast með lestinni milli bæja.

Jæja, best að fara að sofa..þarf að mæta klukkan átta í dissektionfyrirlestur og svo er ég að fara minn fyrsta stofugang á morgun :)

p.s Nady systir hringdi í mig áðan þegar ég var að hjóla. Ég fékk alveg kitl í magann þegar ég sá íslenskt númer og það var svo gott að heyra röddina hennar að ég týmdi ekki að segja bæ :)

posted by benony 11:59:00 e.h.
 
Ég er að lesa undir próf...

..er nefnilega að fara að byrja á námskeiði á spítalanum á morgun sem kallast "sygeplejevikar kursus". Þetta er svona námskeið sem við læknanemar fáum að taka til þess að eiga möguleika á að taka vaktir á spítalanum. Þetta er alveg rúmlega mánaða námskeið margir klukkutímar á dag þannig að ég sé fram á að það verði brjálað að gera hjá mér. Þetta námskeið byrjar á prófi, einskonar inntökupróf þannig að það er eins gott að ná því. Við fengum rúmlega 200 síðna bók til að lesa undir þetta próf og ég er alveg að drattast við að lesa hana. Komin með 100 síður...YESS bara helmingurinn eftir. Ég var á kafla áðan þar sem var verið að lýsa mjög nákvæmlega hvernig ætti að þrífa körlum að neðan og ég hugsaði "JEDÚDDA MÍA, ætli ég geti gert þetta án þess að roðna". Lýsingarnar voru svo nákvæmar í bókinni og alltaf verið að segja að passa sig að vera ekki of mjúkhent. :) Ætli þetta venjist ekki eins og hvað annað...svo margt sem ég þarf að venjast þessa dagana. Ég hef oft baðað gamlar konur og mér fannst það ekkert mál, en ég las reyndar aldrei neina bók um hvernig átti að gera það...ég bara þvoði þeim.
En karlarnir eru flóknir sko...rosalegar aðferðir. Ætli maður megi hafa svindlmiða þegar maður á að þvo þeim. "Nej, vent lidt Rasmus, jeg skal lige kigge paa hvad jeg skal lave nu". Nei, ætli það!!

posted by benony 2:01:00 f.h.


{miðvikudagur, nóvember 05, 2003}

 
Indverski nágranni minn...

...sem talar eins og Abú í Simpsons kemur stundum til að fá mig til að þýða fyrir sig póstinn hans. Hann fær náttúrulega póst á dönsku og hann er ekki að botna neitt í því sem stendur. Ég reyni þá eftir bestu getu að þýða frá dönsku yfir á ensku. Það er ekkert smá erfitt maður...enskan situr einhversstaðar langt inn í heilaskúminu en ég babla eitthvað. Indverjinn er mjög stríðinn og hann alveg missti sig þegar hann sá að ég var með hauskúpu á skrifborðinu mínu. "Is that your boyfriend?? Is it he or she?? I can see from his teeth which gender it is. Yes, it is a man beause his teeth are clean". Og svo hlær hann. Og heldur áfram að stríða mér því honum finnst ég alltaf vera að læra... En halló hvað er hann að gera grín að mér??!!! Það er HANN sem talar eins og Abú í Simpsons!!!!

Ég sat inni hjá Cecile í kvöld og var að horfa á sjónvarpið hjá henni. Það var nefnilega verið að sýna Matrix 1 og mig langaði að sjá hana aðeins aftur. Svo komu spænskir vinir hennar í heimsókn. Annar af þeim er vinur hennar sem býr hérna á kolleginu og hinn var í heimsókn hjá honum frá Spáni. Hann talaði ekki ensku en var alveg að reyna...endaði með því að Cecile sagði að honum fyndist svo leiðinlegt að fólk hérna í Danmörku kyssast ekki þegar þau hittast því á Spáni er kysst tvisvar á kinn við kynningu. Ég rétti þá fram kinnina og svo hina kinnina. Hann varð sáttur og vildi endilega að vinur sinn tæki mynd af sér með okkur Cecile sitthvoru megin við sig!! Ég í náttfötunum búin að þvo mér í framan og frekar svona ógó en what the fokk!! :)

posted by benony 12:15:00 f.h.


{mánudagur, nóvember 03, 2003}

 
OOOOJJJJJJJ...

...það er svo leiðinlegt í strætó!!! Það var alveg hellidemba þegar ég var að fara að leggja af stað í skólann á fáknum mínum þannig að ég skellti mér í rauða bussinn. Ó mæ god, hvað það er leiðinlegt maður!!! Hann fer allar krókaleiðir og er alveg 45 mín á leiðinni í skólann minn, og svo er svo leiðinlegt fólk þarna líka. Einn gaurinn ákvað að stjórna hverjir ættu að standa upp og fyrir hverjum...hvernig hann nennti þessu veit ég ekki. "Det er masse plads her!!" hrópaði hann yfir strætóin. Fékk sína athygli karlinn.

Annars var ég að fá email frá leiðbeinandanum mínum í studiegrúppunni þar sem hann var að tilkynna okkur að við erum að fara stofugang á föstudaginn.... gæti orðið svolítið spennandi. Þá munum við líklegast elta einhvern lækni milli stofa og fá að fylgjast með honum tala við sjúklinginn. Finnst ykkur ekki magnað að ég sé strax byrjuð að fara stofugang... ég er nú bara búin að vera í skólanum í 2 mánuði. En þetta er það sem ég elska við að vera að læra hérna úti... við fáum miklu fyrr að fara út í aktionið...ekki bara bækurnar! Mér finnst nú leiðinlegt gagnvart sjúklingunum að við séum að elta lækninn og horfa á meðan verið er að tala við þau um mál sem skiptir þau svo miklu máli. En þetta er víst partur af því að koma menntuninni áleiðis til þeirra yngri.

Í skólanum núna erum við á fullu að undirbúa okkur fyrir dissektion sem er í næstu viku. Það eru fyrirlestrar á daginn um þau svæði sem við eigum að taka fyrir og það verður rosalega mikið að lesa hjá mér fyrir þetta því við eigum að flytja fyrir bekknum þau svæði sem við erum að skoða og þ.a.l vita allar vöðvafestur og vöðva sem og taugar og æðar, bein og liði sem eru á okkar svæði. Ég ætla mér að standa mig vel í þessu.

Ég er búin að vera smá sorgmædd í dag, því ég er að gera mér grein fyrir að ég missi af jólunum. Það er allt orðið svo jólalegt hérna og þar sem ég er svo mikið jólabarn þá hefur jólatilhlökkun verið að koma hjá mér en svo fatta ég að jólin verða ekki eins og alltaf. En ég þarf víst að venja mig á þetta og það verður örugglega voðalega kósý hjá okkur Dóra.
Ég fékk líka skemmtilegar fréttir áðan...en ekki víst að af þessu verði...en samt gaman!

posted by benony 10:44:00 e.h.
 
Fór á Kill Bill í gær....

med Örnu og Kötlu og vid skemmtum okkur bara vel. Vid fórum á myndina thví ad kærastar stelpnanna og vinir mínir sögdu ad thetta væri mynd sem vid yrdum ad sjá! :) Svona í byrjun thá hugsadi ég... "hvad eru strákarnir ad láta mig sjá", en svo thegar lída fór á myndina thá var ég farin ad fyla hana gedveikt. Mér fannst tónlistin ótrúlega gód í myndinni og allt svo töff eitthvad vid hana. Ég mun fara ad sjá framhaldid.

Svo vorum vid í tíma ádan og vorum ad fara yfir fótalidina thá fengum vid Katla svona hroll thví í myndinni var hásinin á vibbakarlinum tekin í tvennt. gaman ad thessu :)

posted by benony 2:39:00 e.h.


{sunnudagur, nóvember 02, 2003}

 
Ég var að fíla mig rosalega á fredagsbarnum...

í hjúkkubúningnum auðvitað því þemað var sjúkrahús. Hve pöþetikk er það að vera læknanemar og velja sjúkrahús sem þema. En ég varð að taka þátt í þessum fíflagang með þeim enda alveg að fíla mig að geta farið í hjúkkubúning klukkan 2 í skólanum mínum og bara í góðum fíling. Barinn var skreyttur með rauðum krossum og svo var hægt að fá skot á barnum úr sprautum og áður en skotið var tekið voru M&M pillur í pilluglösum skellt í sig. Ég var að afgreiða bjór á barnum í klukkutíma sem hjúkka og komst að því að Danir eru daðrarar dauðans. Ég var ekki tilbúin að taka við svona daðri klukkan tvö um dag, en reyndi bara að brosa og segja "hva ska du ha?" og þá var svarið yfirleitt "en grön tuborg og en almindelig Odense classic" og svo kom blikk. Ég sagði svo "veskú". atten kroner! Þetta var voða stuð eins og þið sjáið. hehe

Eftir mína fyrstu barafgreiðslureynslu í Danmörku fór ég í Bilka til að kaupa grillmat fyrir kvöldið. Bilka er alveg komin í jólaskap ég fór voða mikið að hugsa hvernig jólin mín verða eiginlega. Fyrstu jólin annars staðar en heima.... ég fæ ekki að upplifa mömmujól þetta árið og fæ ekki að sjá glitið í augunum á Hjálmari bróður mínum sem er svo mikið jólabarn. Ég fæ ekki að vakna við hangikjötslykt og læðast niður um hánótt til að horfa á ljósin á jólatréinu og anda að mér jólunum. Nú þarf ég að búa mér til mín eigin jól og eins og mamma sagði við mig þegar ég var leið yfir því að komast ekki heim "Sara mín, þú hefur bara gott af því að vera annarsstaðar en heima á jólunum". Ég verð þá bara að vona það. *Það sem drepur þig ekki gerir þig bara sterkari*stemmningin. Ætla að reyna að kaupa mér aðventuljós í gluggann því ég fæ góða tilfinningu að horfa á ljósin.
Í Bilka var saman komið alveg fullt af íslendingum sem voru greinilega í sömu erindagjörðum og ég, þ.e að kaupa grillmat fyrir grillpartýið sem var á kolleginu um kvöldið. Við erum svolítið eins og fjölskylda...

Það var svo rosalega gaman í grillinu. Ég var allavega í voða stuði og ég vona að ég hafi ekki bullað of mikið...vona að sumir nenni að tala við mig aftur :) Geta má þess að ég og Bryndís stukkum upp á borð og vorum einu edrú gellurnar en það er jú ekkert nýtt. Athyglissýkin alveg að fara með okkur..ha!!! Klukkan 12 var orðin svona sveitt eftirpartýstemmning....fólkið var semsagt orðið mjög fullt. En það var alveg afskaplega gaman að þeim og með þeim því allir sátu í hring og sungu og dönsuðu þegar fílingurinn kom yfir þau. Setning kvöldsins var "Sara, ég á pepsí".

Nú svo kom laugardagurinn og ég var búin að ákveða að vera róleg í fyrsta skiptið síðan ég kom hingað, þ.e um helgi. Ég fór í búðina og keypti mér nammi og kveikti á kertum og settist með anatómíubækunar mínar, tilbúin að eiga rólegt lærikvöld. Og bara sem dæmi um hvað það er alltaf eitthvað að gera hérna þá hringdi Ása fyrst og bað mig að koma í bíó með henni og sænskum vinkonum hennar. Ég hafnaði. Svo hringdi Ingibjörg Eva sem útskrifaðist með mér úr FB til að tékka á djammfíling og ég sagðist ætla að vera heima. Þá hafði Heiðdís samband og sagði að nokkrar stelpur frá 3 önn í læknisfræði væru að hittast í pizzu og fara svo í bíó og ég hafnaði því. Svo hringdi I.Eva aftur og spurði hvort hún mætti koma í heimsókn og auðvitað var ég til í að fá hana í heimsókn. Hún kom og við sátum í góðum fíling með nammi og kók að spjalla þegar Cecile tilkynnti mér að vinur hennar sem er frá Dóminikanska lýðveldinu væri að spurja um "Miss Iceland" og hvort hún kæmi ekki á barinn því það var sérstakt fest þar sem kallaðist "Kinky fest" arrrrr. Ég leit á Evu og ég sá að Eva var voðalega til í það. Haldiði ekki að gæinn hafi svo komið og byrjað að smeðjast. Ég tek bara svona tali sem smeðjuhátt "jú ar so bjútifúl, jú dónt have tú change jor cloths jú ar alveis sooo bjútifúl miss Iceland". Eva spurði hvort ég gæti ekki sent hann yfir stundum til sín til að hún fengi smá egókikk. :)
Við fórum svo á barinn bara svona til að kíkja á stemmninguna en okkur var meinaður aðgangur. Ég er ekki enn að skilja ástæðuna. Kannski vorum við bara ekki nógu kinký!

posted by benony 1:46:00 f.h.


{fimmtudagur, október 30, 2003}

 
YESS!!!

Freyja skvísa ætlar að redda mér með hjúkkuslopp þannig að ég get verið fín á Fredagsbarnum á morgun. Ég á að vinna á barnum frá 14-15 þar sem okkar bekkur sér um barinn þennan daginn. Þegar ég var að ákveða um daginn hvernig ég ætlaði að vera með stelpunum íslensku þá missti ég mig alveg í einhverju rugli! "Ég ætla að vera í hjúkkuslopp og hvítu pilsi og hvítum sokkabuxum. Svo ætla ég að vera með hjúkkukapp og hátt tagl með eldrauðan varalit". Þá heyrðist í einni stelpunni "Sara, þú ert ekkert að fara að leika í klámmynd er það?" hahahhahahahahah Missti mig smá ;) Þannig að ég ætla að vera bara svona hjúkka ekki slött hjúkka. hahaha

Og ef ykkur langar að vita þá er klósettpappírinn sem ég var að kaupa ekki alveg að gera það fyrir mig. Ég kaupi mjúkan næst það er augljóst. Jæja, best að hjóla í skólann með sáran rass. ;)

posted by benony 12:19:00 e.h.


{miðvikudagur, október 29, 2003}

 
HEY!!!!!!

Ég var búin að gleyma að ég er að fara að leika sexy hjúkku á Fredagsbarnum á föstudaginn!!!! Damn!! Mig vantar hjúkkubúning, hvernig gat ég gleymt þessu. Getur einhver reddað mér?? FREYJA ert þú ekki að vinna á spítalanum??

posted by benony 11:54:00 e.h.
 
Í morgun ætlaði ég að mæta....

..í studiegrúppu en gat með engu móti fundið hópinn minn. Þegar ég kom inn í kantínu stóðu Sören og Jens þar bara í góðum fíling að fá sér að borða. Ég spurði þá hvort við ættum ekki að vera í tíma en þá sögðu þeir að það væri ekki fyrr en klukkan 12. Þannig að ég var komin í skólann með enga tösku og engar bækur þar sem þessir studiegrúpputímar eru bara spjall....hvað átti ég að gera í 2 heila tíma í skólanum. Ég hefði getað farið að hanga í tölvunni en ég nennti því ekki þannig að ég ákvað að skrópa í tímann og fara bara að stússast.

Ég byrjaði á því að fara á kollegieboligselskabet eða kollegieskrifstofuna til að tékka hvort þeir væru með tilboð fyrir mig. Mig langar svoooo mikið að flytja núna STRAX í einstaklingsíbúðina niðri í bæ. Það gengur yfir innbrotaalda á kolleginu sem virðist ekkert vera að hætta. Davíð vaknaði við að það var verið að lýsa vasaljósi inn um gluggan hjá honum til að tékka hvort einhver væri heima og einn gaurinn kominn hálfa leið inn til hans þegar hann reis sig upp. Þá þutu þeir í burtu. Stelpurnar með mér í læknisfræðinni misstu fullt af eigum þegar þær voru rændar. Löggan gerir ekki neitt þó svo Bryndís vinkona
geti meira að segja bent á þessa gaura því hún sá þá. Löggan kemur alltaf bara daginn eftir til að taka skýrslu. Kollegieskrifstofan gerir ekki neitt heldur sagði bara "ef þið eruð óánægð þá verðið þið bara að flytja". Í gær var svo hringt í mig og ég heyrði bara í einhverjum gaur tala útlensku fyrir aftan og svo skellt á þannig að ætli ég sé ekki sú næsta í sigtinu. Ég á ekki margt, en ég á tölvu og myndavél, skólabækur og föt. Ekki mikið meira :) Það mundi fara með mig ef ég myndi tapa þessu...aleigan mín..
Hún sagði mér að það hafi ein íbúð verið að losna og hún hafi bara sent tilboð á eina stelpu sem var efst á listanum og hún sýndi mér listann og ég er nr 3 á honum. Ég vil bara losna héðan sem fyrst....

Svo ákvað ég að fara að kíkja á hjólið mitt sem er niðri í bæ síðan um helgina síðustu. Ég var á læknadjammi og við fórum á Ryans sem er írskur pöbb. Eftir að ég hafði komið við Kim Larsen og gert allt tryllt auðvitað á staðnum þá ætlaði ég bara í góðum fíling að opna lásinn á hjólinu með lyklinum en hann bara vildi ekkert opnast. Sama hvað ég reyndi. Yfir mér stóðu þrír tæknifræðistrákar og einn blindfullur læknisfræðistrákur og bísnuðust yfir aðgerðum mínum. "Sara, þú getur þetta ekki, ég skal gera þetta, svona farðu frá"!!! Svo gekk lykillinn á milli og allir prófuðu að opna lásinn en þeir gátu það sko ekkert betur en ég. Þannig að ég skildi hjólið mitt eftir þarna og það var sem betur fer enn á sama stað. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að koma því heim. Ég þarf að redda mér vírklippum og setja svo á mig ræningjahúfu og klippa á lásinn. Það mun líta mjög illa út að fara þarna og klippa á lásinn og hjóla svo af stað. Það er staðsett þar sem mikil umferð er af fólki þannig að ég veit ekki hvernig ég á að fara að þessu...

Geta má þess að ég fékk ekki að vera í friði með að skrópa því kellan með mér í bekk hringdi til að spurja afhverju ég væri ekki mætt í tímann. hahaha, mig grunaði að hún myndi gera það!!

posted by benony 9:01:00 e.h.
 
Ég á vinkonu sem....

....kom með yndislegt komment þar sem ég vissi ekki hvort ég ætti að hlægja eða gráta. Þannig að ég gerði bara bæði og grenjaði úr hlátri. Hún sagði: "Sara, EF þú eignast maka....." hahahahahhaha yndislegt hvað fólk hefur mikla trú á ástarlífinu mínu!


En eins og þið sjáið þá breytti ég smá útliti síðunnar og vil endilega að þið kommentið ef þið eruð ekki að fíla þetta og getið ekki hugsaði ykkur að koma aftur á síðuna vegna hættu á augnskaða!
Rautt táknar eldheitt hjartalag mitt og ástríður, grænt er tákn blíðu minnar og dökkblár er tákn þess hve dularfull ég er. (ein að missa sig út af kommentinu) :)

posted by benony 12:46:00 f.h.


{þriðjudagur, október 28, 2003}

 
Það var verið að hringja...

...og ég heyrði bara útlensku fyrir aftan og svo skellt á. Kannski er ég paranoid en ég tek tölvuna með mér í skólann á morgun!

posted by benony 7:17:00 e.h.
 
Þar sem ég er svolítið í því....

...að sitja og lesa þá leiðir hugurinn mig inn í draumaheima þar sem minningar og framtíðardraumar eru við völd. Það er auðvitað allt skemmtilegra en að sitja á rassinum og þylja upp bein og liði. Samt mjög skemmtilegt skoo...bara ekki eftir margar klukkutíma :) En allavega ég fór að hugsa um hvað það var ótrúlega margt sem við vinkonurnar tókum uppá þegar við vorum að leika okkur á okkar yngri árum. Ef við myndum taka uppá þessu í dag yrðum við heldur betur settar inn á stofnun eða allavega litnar hornauga. heheehe t.d:

1) Sungu ég og Brynja og Drífa öll kvöld við ljósastaurinn í hverfinu okkar. Við höfðum hatt fyrir framan okkur eða húfu og sungum jólalög eða dægurlög. Fólk í hverfinu var að koma til okkar og þakka okkur fyrir sönginn og mamma og pabbi vissu alltaf hvar ég var því það heyrðist greinilega :)

2) Brynja og Drífa klæddu mig oft upp í búninga og ég labbaði í hús til að plata fólk. Ég var að fara í kápu af mömmu þeirra og háu hælana. Svo settu þær klósettpappír upp í mig þannig að það var eins og ég væri með í vörinni. Svo labbaði ég í hús að selja happdrættismiða. Ég myndi arga úr hlátri ef einhverjar litlar skvísur tækju upp á þessu og koma til mín.

3) Við fengum oft allskonar mat úr eldhúsinu hjá mömmu og blönduðum saman í einn graut. Svo stóðum við í skotinu sem pabbi gerði fyrir mig sem vísti út að göngugötunni og vorum að bjóða fólki að smakka. "Endilega komið að smakka yndislegan graut". Þegar ég hugsa tilbaka þá finnst mér æði hvað nágrannakonur okkar voru góðar og smökkuðu hjá okkur og tókst meira að segja að láta okkur trúa að þetta væri gott.

4) Við vorum komnar út á skíði og skauta um leið og það var komin smá snjólag. Það voru kannski bara smá snjóskellur hingað og þangað en við fórum að skíða og skauta... Svo um leið og fór að sjást í malbikið eftir snjóin vorum við komnar á hjólaskauta!

5) Tókum upp útvarpsþætti á segulbandstæki sem stelpurnar áttu. Þær eiga suma þessa þætti ennþá og við getum argað úr hlátri að heyra okkur með okkar skræku barnaraddir vera að kvarta í þjóðarsálinni um lélegt kaup hjá holræsunum.

6) Þegar ég var í sveitinni þá var ég auðvitað mikið ein bara með fjölskyldunni minni og hitti ekki stelpur á mínu reki allt sumarið. Þá fór ég jafnan út til að lenda í ævintýrum. Ætlaði sko að hitta álfa og spjalla við þá og tala við blómin. Ég lenti alltaf í einhverjum ævintýrum og talaði við fullt af álfum um heima og geima. Svo æfði ég mig að ganga inn kirkjugólfið þ.e á túninu því ég gifti mig oft og hélt á vönd af fífum. Eins og ég hafi ekki getað skemmt mér :)
Mér fannst líka rosalega gott að fara til hestana og bara leggjast hjá þeim. Ég átti hest og við félagarnir þ.e ég og Smá Gull lágum bara í faðmlögum á túninu. Kannski ekki alveg faðmlögum en þið vitið ég allavega hélt utan um hann. :)

Váhh, nú langar mig á hestbak!!!

posted by benony 4:38:00 e.h.
 
Verð bara að segja....

að ég er með smá áhyggjur af henni Sólveigu vinkonu minni. Málið er að ég keypti í matinn og við elduðum yndislegt lasagna heima hjá henni til að eiga smá hyggestund. Erum svo sjaldan saman núorðið vegna þess að við erum ekki lengur saman í skólanum. En ástæða áhyggju minnar er að hún er farin að tala með auglýsingunum. Hver einasta auglýsing sem kemur þá talar hún með og syngur með öllum lögum. Hvort sem það er verið að auglýsa símafyrirtæki eða gosdrykki þá talar hún með. Ég held að mín diagnosa sé að hún horfi alltof mikið á sjónvarpið....þetta er ekki hægt.

Annars er ég að springa úr hamingju....rosalega gaman að vera til. :)

posted by benony 12:47:00 f.h.


{sunnudagur, október 26, 2003}

 
Matarboð og aðalfundarhöld...og auðvitað KIM LARSEN

Það er alltaf eitthvað að gera hérna í Danmörku. Það líður ekki helgi nema hún sé plönuð og það er auðvitað mjög jákvætt nema skólabækurnar sitja þá kannski smá á hakanum á þeirri stundu.

Á föstudagskvöldið fór ég að borða með studiegrúppunni minni heima hjá Kristine sem er tveimur árum eldri en ég og hefur upplifað svo rosalega margt miðað við hvað hún er fáum árum eldri en ég. Hún er búin ferðast um allan heim og búið í hinum ýmsu löndum. Hún hefur líka verið að læra allan fjandann og núna síðast var hún í fatahönnun í London en hætti í því og ákvað að flytja heim til Danmerkur í læknisfræðinám. Hún átti rosalega mikið og flott innbú og þar sem hún hefur flutt svo oft þá hafði hún sankað að sér allskonar hlutum allstaðar að úr heiminum. Á veggjunum voru svo myndir sem hún hafði sjálf teiknað og málað og voru rosalega flottar... ég alveg horfði aðdáunaraugum á þetta allt saman og gleymdi mér í að hlusta á sögur frá einhverju sem hún hafði upplifað. Hún sagði mér svo líka að hún hafi verið gift í 3 ár... veit ekki hvenær það var en greinilegt að hún er búin að prófa allt. Við spjölluðum mikið og fólkið í kringum mig var orðið ískyggilega fullt, sérstaklega hún Mette sem gat ekki gert neitt nema að hlægja og var alltaf að koma með skemmtilega leiðinleg komment. heheh en bara gaman að því. Eftir matarboðið hjóluðum ég og Sören svo saman heim upp á Rasmus Rask þar sem hann býr líka þarna í gettóinu. Ég var svo ánægð að ég náði að spjalla við hann bara alveg eins og jafningja og hann meira að segja gleymdi sér í að fara að tala um þessa "helv.. útlendinga sem væru að taka plássin frá þeim í læknisfræðinni". Ég svona góðlátlega minnti hann á að ég væri kannski ein af þeim... Við stoppuðum svo á bensínstöð til að kaupa gjöf handa kærustunni hans og mér fannst það voða sætt af honum. Hann fór beint í súkkulaðirekkan en ég fór auðvitað þar sem klámblöðin voru og fleygði í hann einu blaði með gellu í furðulegustu stellingu og sagði að þetta væri alveg gjöfin til kærustunnar! ;) Hann varð geðveikt skrýtin og var ekki að taka þessu sem djóki þannig að ég varð bara vandræðaleg og skilaði blaðinu á sinn stað. Það var ekki fyrr en við komum út og vorum að fara að hjóla af stað aftur sem hann fór að brosa og sagði "ég hefði kannski frekar átt að kaupa blaðið, það hefði allavega verið skemmtilegri gjöf". hahaha

Í gær svo laugardag var stofnfundur félags íslenskra læknanema í Danmörku. Læknanemar frá Árósum og Kaupmannahöfn komu til okkar í Odense og við stofnuðum hagsmunafélag sem einnig hefur félagslega atburði. Það var voða gaman að sjá aðra sem eru að læra hérna í Danmörku og ég kannaðist auðvitað við nokkra úr Clausus heima. Við fórum eftir fundinn út að borða á "Den grimme ælding" eða "Litli kjúklingurinn" eins og einn fyndinn sagði. Það var rosalega góður matur, svona hlaðborð með rosalega góðu kjöti og fullt af meðlæti. Allar gerðir af kartöflum og salatbar og allar kjöttegundir. Ég er eiginlega ennþá södd. Við fórum svo á Ryans sem er írskur pöbb og ég er ekki að grínast með að ég hitti sjálfan snillingin KIM LARSEN. Við erum að tala um að hann var þarna hress og Valdís náði mynd af honum og hann argaði á hana "LAD MIG I FRED". En váhh, hvað kallinn er sjúskaður en hann er samt frægur!! :)
Skemmtilegt kvöld...alveg frábært....reyndar sumir of fullir og ég fór að skipa fyrir með höstugum tón því sumir voru ekki að geta hugsað skýrt. Ég get greinilega verið grimm...en stundum verður maður að vera vondur til að vera góður er setning sem ég heyrði sem passar vel í þetta skiptið.

posted by benony 3:54:00 e.h.

spacer